Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1440 — 632. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um vátryggingastarfsemi og lögum um vátryggingasamstæður (reglugerðir og reglur).
(Eftir 2. umræðu, 6. maí.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, með síðari breytingum.
1. gr.
Fjármálaeftirlitið setur reglur þar sem fram koma upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla til að reikna besta mat vátryggingaskuldar vegna ársfjórðungslegra gagnaskila. Við setningu reglnanna er Fjármálaeftirlitinu heimilt að vísa til birtingar á framkvæmdarreglugerðum sem innihalda upplýsingarnar í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins á ensku.
Fjármálaeftirlitið birtir upplýsingar skv. 1. mgr. á vef sínum.
2. gr.
a. 2. tölul. orðast svo: Aðferðir við að reikna áhættulausan vaxtaferil til núvirðingar á besta mati vátryggingaskuldar skv. 2. mgr. 76. gr., þ.m.t. skilyrði þess að nota aðlögun á áhættulausum vaxtaferli vegna samræmingar, útreikninga á aðlögun vegna samræmingar og aðlögun á áhættulausum vaxtaferli vegna óstöðugleika.
b. Við bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Málsmeðferð sem fylgja skal við samþykki á umsókn um aðlögun vegna samræmingar.
II. KAFLI
Breyting á lögum um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017, með síðari breytingum.
3. gr.
4. gr.
Fjármálaeftirlitið setur reglur um ferli vátryggingasamstæðu við gerð skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu og um form skýrslunnar.
5. gr.