Ferill 905. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1521 — 905. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kostnað tiltekinna stofnana vegna kaupa og notkunar á Microsoft-hugbúnaði.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað árlega undanfarin fimm ár í leyfisgjöld til Microsoft vegna nota af hugbúnaði og stýrikerfum hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Hjúkrunarheimilinu Sólvangi og Lyfjastofnun? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum og jafnframt eftir leyfum vegna Windows-stýrikerfa, leyfum vegna Microsoft Office-hugbúnaðarsvítu og leyfum vegna annars hugbúnaðar frá Microsoft.
Skriflegt svar óskast.