Ferill 935. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1571  —  935. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um útgjöld og notkun á almennum og sérsmíðuðum hugbúnaði hjá ráðuneytinu og sendiráðum.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver hafa verið útgjöld ráðuneytisins og sendiráða vegna hugbúnaðarkaupa frá árinu 2009? Hve háum fjárhæðum var varið til kaupa á sérsmíðuðum kerfum annars vegar og til kaupa á almennum hugbúnaði hins vegar?
     2.      Hve háum fjárhæðum vörðu ráðuneytið og sendiráð til greiðslu leyfisgjalda fyrir hugbúnað annars vegar og til greiðslu þjónustugjalda fyrir hugbúnað hins vegar frá árinu 2009?
     3.      Hvaða sérsmíðaða hugbúnað eru ráðuneytið og sendiráð að nota og:
                  a.      hver er eigandi hugbúnaðarins,
                  b.      eftir hvaða hugbúnaðarleyfi er hugbúnaðurinn gefinn út,
                  c.      var hugbúnaðurinn þróaður af verktökum eða af forriturum í starfi innan ráðuneytis eða hjá sendiráði,
                  d.      hver var kostnaðurinn við gerð hugbúnaðarins,
                  e.      hver er tilgangur hugbúnaðarins?


Skriflegt svar óskast.