Ferill 697. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1609 — 697. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Álfheiði Eymarsdóttur um kostnað ráðuneytisins og undirstofnana þess vegna kaupa og notkunar á Microsoft-hugbúnaði.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hversu miklum fjármunum hefur verið ráðstafað árlega undanfarin fimm ár í leyfisgjöld til Microsoft vegna nota af hugbúnaði og stýrikerfum í ráðuneytinu og undirstofnunum þess? Svar óskast sundurliðað fyrir ráðuneytið og hverja undirstofnun og jafnframt eftir leyfum vegna Windows-stýrikerfa, leyfum vegna Microsoft Office-hugbúnaðarsvítu og leyfum vegna annars hugbúnaðar frá Microsoft.
Svar við fyrirspurn þessari birtist í töflum hér á eftir. Tölurnar byggjast á upplýsingum sem aflað var frá Rekstrarfélagi Stjórnarráðsins og ríkislögreglustjóra. Á árinu 2017 var innanríkisráðuneyti skipt upp í dómamálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Árið 2018 var því fyrsta eiginlega rekstrarár dómsmálaráðuneytisins þar sem sameiginlegum kostnaði var skipt á milli ráðuneytanna árið 2017. Tölurnar fyrir 2014–2017 eru því fyrir innanríkisráðuneytið í heild sinni.
| Dómsmálaráðuneytið, aðalskrifstofa | |||||
| 2014* | 2015* | 2016* | 2017* | 2018 | |
| Windows-stýrikerfi | 102.535 | ||||
| Office-hugbúnaðarsvíta | 66.058 | 232.954 | 26.646 | 3.800.111 | 3.039.772 |
| Annar hugbúnaður frá Microsoft | 2.577 | ||||
| Árlegur kostnaður | 168.593 | 232.954 | 26.646 | 3.802.688 | 3.039.772 |
Stofnanir á málefnasviði ráðherra eru margar í þjónustu hjá Þjóðskrá Íslands. Þannig er dómstólaráð sem fer með málefni dómstóla og sýslumannsembættin níu innifalin í tölum Þjóðskrár Íslands sem hægt er að kynna sér í svari samgöngu- og sveitastjórnarráðherra við sömu fyrirspurn.
Í eftirfarandi töflu eru tölur sem ráðuneytið fékk frá Rekstrarfélagi Stjórnarráðsins. Þetta eru þær tölur sem fram koma í yfirlitum birgja sem Rekstrarfélagið hefur verslað við.
| 2014 | 2015 | 2016 | 2017 | 2018 | |
| Fangelsismálastofnun ríkisins | 58.727 | ||||
| Windows | 58.727 | ||||
| Hæstiréttur Íslands | 543.735 | 597.391 | 683.407 | 233.609 | 519.452 |
| Annað | 392.750 | 142.127 | |||
| Office | 543.735 | 683.407 | 519.452 | ||
| Windows | 204.641 | 91.482 | |||
| Kærunefnd útlendingamála | 114.509 | ||||
| Windows | 114.509 | ||||
| Útlendingastofnun | 13.858 | ||||
| Office | 13.858 |
Ríkislögreglustjóri hefur annast innkaup á nytjaleyfum hugbúnaðar frá Microsoft fyrir þær stofnanir sem eru innan lokaðs netkerfis ríkislögreglustjóra. Innan kerfis ríkislögreglustjóra eru lögreglustjórar, ríkissaksóknari, héraðssaksóknari og Útlendingastofnun. Reikningstímabil fyrir innkaupin eru frá mars til mars, ekki er um almanaksár að ræða.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir nytjaleyfiskostnað Microsoft-vara sem ríkislögreglustjóri annaðist innkaup fyrir á tímabilinu 2014 til og með 2016. Á árunum 2014–2016 er leyfakostnaður stýrikerfis og Office ákvarðaður út frá fjölda tækja sem hafa viðkomandi hugbúnað uppsettan.
| 2014 | 2015 | 2016 | |
| Windows-stýrikerfi | 6.940.200 | 8.121.600 | 8.140.800 |
| Office-hugbúnaðarsvíta | 18.964.500 | 21.911.400 | 21.963.200 |
| CAL-tengileyfi | 15.171.600 | 17.596.800 | 17.638.400 |
| Kostnaður vegna netþjóna | 10.087.500 | 11.674.800 | 11.702.400 |
| Alls | 51.163.800 | 59.304.600 | 59.444.800 |
Á árinu 2016 urðu breytingar á leyfamálum Microsoft ásamt því að embætti ríkislögreglustjóra ákveður að miða við fjölda notenda en ekki tæki sem grunn fyrir nytjaleyfi hugbúnaðar. Embætti ríkislögreglustjóra kaupir frá þeim tíma vöru sem heitir Office365 E3 og innifelur m.a. stýrikerfisleyfi og Office-vörur. Ekki liggur fyrir einingaverð einstakra þátta innan Office365 E3-leyfa. Samanburður á milli tímabila er því ekki fyllilega marktækur.
| 2017 | 2018 | |
| Notendur | 1.105 | 1.104 |
| Kostnaður við Office 365 | 47.183.500 | 49.238.400 |