Ferill 735. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1611  —  735. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um auglýsingar á samfélagsmiðlum.


     1.      Hvaða útgjöld hafa ráðuneytið og stofnanir sem undir það heyra haft ár hvert frá árinu 2015 vegna auglýsinga eða kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum, svo sem á Facebook, Instagram, YouTube og Twitter?
    
Dómsmálaráðuneytið og stofnanir sem undir það heyra hafa ekki keypt neinar auglýsingar eða kostaðar dreifingar á samfélagsmiðlum á tímabilinu frá árinu 2015.

     2.      Hvaða stefnu hefur ráðherra að því er snertir auglýsingakaup á samfélagsmiðlum?
    R
áðherra hefur ekki mótað stefnu um auglýsingakaup ráðuneytisins á samfélagsmiðlum.

     3.      Hvernig telur ráðherra það að kaupa auglýsingar eða kostaða dreifingu á erlendum samfélagsmiðlum samræmast stefnu ríkisstjórnarinnar um að efla íslenska fjölmiðla?

    Markmið ríkisstjórnarinnar um eflingu fjölmiðla tekur til starfsumhverfis fjölmiðla í víðu samhengi, sbr. skýrslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins um rekstrarumhverfi fjölmiðla frá árinu 2018 og drög að frumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra um opinberan fjárstuðning við öflun og miðlun frétta og fréttatengds efnis sem kynnt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Auglýsingamarkaðurinn skiptir þar miklu máli ásamt öðru og er mikilvægt að gagnsæi ríki um kaup opinberra aðila á auglýsingum, sbr. umfjöllun í framangreindri skýrslu mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Er einnig mikilvægt til lengri tíma litið að fylgst verði með þróun auglýsingamarkaðar og hlutdeild samfélagsmiðla á honum og hvaða áhrif markaðshlutdeild slíkra miðla hefur á auglýsingatekjur annarra fjölmiðla.
    Mikilsverður hluti af starfi Stjórnarráðsins og hins opinbera er að upplýsa almenning um þau verkefni og viðburði sem unnið er að á hverjum tíma. Mjög stór hluti þjóðarinnar notar samfélagsmiðla og því gagnlegt og eðlilegt að þeir séu nýttir að einhverju marki við boðmiðlun.
    Eins og sjá má af svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hefur umfang auglýsingakaupa og kostaðrar dreifingar á samfélagsmiðlum hjá dómsmálaráðuneyti og stofnunum sem undir ráðherra heyra verið ekkert á umliðnum árum. Verður því ekki séð að það raski stefnu ríkisstjórnarinnar um eflingu íslenskra fjölmiðla.