Ferill 856. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1613  —  856. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Kolbeini Óttarssyni Proppé um rannsóknarleyfi og virkjanaleyfi.


     1.      Hversu mörg rannsóknarleyfi á vatnsaflsvirkjunum hefur Orkustofnun gefið út síðastliðin tíu ár, sundurliðað eftir árum, afli virkjanakosta og landsvæðum ásamt samanlögðu heildarafli allra virkjanakosta?
    Meðfylgjandi svör byggjast á upplýsingum frá Orkustofnun. Á árunum 2009–2018 hefur Orkustofnun gefið út alls 40 rannsóknarleyfi á virkjunarkostum í vatnsafli og þar af eru fimm leyfi framlenging á eldri leyfum. Orkustofnun bendir á að við útgáfu rannsóknarleyfa liggur ekki í öllum tilvikum fyrir hvert mögulegt uppsett afl virkjana kann að verða. Oft eru í umsóknum um rannsóknarleyfi gefnar upp hugmyndir að mögulegri stærð virkjunarkosta, sem ætlunin er að rannsaka, en það kann að taka breytingum á grundvelli rannsóknanna. Varðandi nánari sundurliðun er vísað til meðfylgjandi töflu um útgefin rannsóknarleyfi í vatnsafli (fylgiskjal I).

     2.      Hversu mörg virkjanaleyfi hefur Orkustofnun gefið út síðastliðin tíu ár, sundurliðað eftir árum, afli virkjana og landsvæðum ásamt samanlögðu heildarafli allra virkjanakosta?
    Á árunum 2009–2018 voru gefin út tvö virkjanaleyfi fyrir vatnsaflsvirkjanir með uppsett afl yfir 10 MW, þ.e. fyrir Mjólkárvirkjun í Arnarfirði (12,05 MW) og Búrfellsvirkjun 2 (100 MW). Á sama tímabili voru gefin út 17 virkjunarleyfi fyrir vatnsaflsvirkjanir með uppsett afl allt að 10 MW. Sundurliðun á virkjunarleyfum undir 10 MW, sem gefin voru út á árunum 2009–2018, er að finna í fylgiskjali II. Heildarafl allra virkjunarleyfa í vatnsafli sem gefin voru út á þessu tímabili er um 140 MW.

     3.      Hverjir eru handhafar útgefinna leyfa sem spurt er um í 1. og 2. lið?
    Í fylgiskjölum I og II er að finna upplýsingar um handhafa útgefinna rannsóknar- og virkjanaleyfa á tímabilinu 2009–2018.

     4.      Er ráðherra kunnugt um hversu mörg útgefinna leyfa hafi leitt til framkvæmda?
    Báðar vatnsaflsvirkjanirnar með uppsett afl yfir 10 MW hafa verið gangsettar, í samræmi við útgefin leyfi. Þau 17 virkjunarleyfi sem veitt hafa verið á tímabilinu 2009–2018 fyrir vatnsaflsvirkjanir minni en 10 MW hafa öll leitt til framkvæmda.

     5.      Er ráðherra kunnugt um hversu mörg rannsóknarleyfi hafa verið gefin út vegna virkjanakosta sem ekki hafa sætt mati samkvæmt rammaáætlun? Telur ráðherra að grundvöllur sé fyrir því að gefa út slík leyfi falli virkjanakostir að stærð og gerð undir rammaáætlun en hafi ekki sætt mati samkvæmt henni og hver er þá rökstuðningurinn fyrir því?
    Orkustofnun hefur veitt sex rannsóknarleyfi vegna virkjunarkosta sem ekki hafa sætt mati samkvæmt rammaáætlun. Samkvæmt 3. mgr. 5. gr. laga nr. 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, er heimilt að „veita leyfi tengd orkurannsóknum og stunda orkurannsóknir sem ekki eru leyfisskyldar vegna virkjunarkosta í biðflokki enda séu framkvæmdir vegna þeirra ekki matsskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum eða háðar mati á umhverfisáhrifum“. Í 4. mgr. 5. gr. laganna kemur fram að „virkjunarkostir sem verndar- og orkunýtingaráætlun á að taka til skv. 3. mgr. 3. gr. og ekki hefur verið tekin afstaða til í gildandi verndar- og orkunýtingaráætlun skulu lúta sömu reglum og virkjunarkostir í biðflokki áætlunarinnar“. Lög nr. 48/2011 gera því ráð fyrir að heimilt sé að veita rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta sem ekki hafa sætt mati samkvæmt rammaáætlun, með þeim takmörkunum sem fram koma í 3. og 4. mgr. 5. gr. laganna. Um nánari rökstuðning fyrir því má vísa til eftirfarandi umfjöllunar um 5. gr. frumvarpsins í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 48/2011:
    „Hvað rannsóknir snertir er hins vegar mikilvægt að unnt sé að afla þeirra upplýsinga sem þörf er á til að ákveða í hvaða flokk viðkomandi virkjunarkostir eiga að falla. … Takmarkanir á heimildum til rannsókna eiga því ekki að koma í veg fyrir að tekin sé afstaða til þess hvort virkjunarkostur falli í verndar- eða nýtingarflokk. Séu slíkar rannsóknir ekki tilkynningarskyldar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum er Orkustofnun heimilt að veita leyfi til rannsókna á grundvelli laga nr. 57/1998.“

Fylgiskjöl:
     1.      Listi yfir útgefin rannsóknarleyfi í vatnsafli frá 2009–2018.
     2.      Listi yfir útgefin virkjanaleyfi í vatnsafli frá 2009–2018, með uppsett afl allt að 10 MW.














Fylgiskjal I.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.






Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



Fylgiskjal II.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.