Ferill 902. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1614 — 902. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um biðlista eftir hjúkrunar- og dvalarrýmum á Vesturlandi.
Á Heilbrigðisstofnun Vesturlands liggja átta einstaklingar sem bíða eftir varanlegu hjúkrunarrými.
2. Hversu stórt hlutfall þessara einstaklinga liggur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og bíður eftir hjúkrunar- eða dvalarrými á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða?
Af þessum átta einstaklingum eru fimm einstaklingar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi sem bíða þess að komast á hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfða, eða 62,5%.
3. Hversu mörg legurými eru á A- og B-deild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi?
Á lyflækningadeild er 18 bráðarými og á handlækningadeild eru 10 rými fyrir skurðsjúklinga.