Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1616 — 594. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Smára McCarthy um hugbúnaðarkerfið Sögu.
1. Hver er formlegur eigandi höfundarréttar að hugbúnaðarkerfinu Sögu?
Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hf. er eigandi höfundarréttar að hugbúnaðinum Sögu og er verksali. Heilbrigðisstofnanir og aðrir veitendur heilbrigðisþjónustu eru verkkaupar og kaupa notendaleyfi af Origo hf. og gera notkunarsamninga við fyrirtækið.
2. Hver er heildareignarhaldskostnaður ríkisins af hugbúnaðarkerfinu Sögu, sundurliðað eftir upprunalegum þróunarkostnaði, viðhaldskostnaði og kostnaði við útvíkkun á eiginleikum?
Hið opinbera er ekki með eignarhald á sjúkraskrárkerfinu Sögu en greiðir fyrir framþróun og viðhald þess.
Innan heilsugæslunnar hafa heilbrigðisstofnanir gert samninga um notkun á kerfinu og greiða þjónustu- og viðhaldsgjöld til verksala. Verksali er ábyrgur fyrir virkni hugbúnaðarins, þjónustu og uppfærslum samkvæmt samningi við verkkaupa. Frá árinu 2000 hefur fjárveiting vegna þjónustu og viðhalds verið 34 millj. kr. á ári. Árið 1998 var Saga tekin í notkun á heilsugæslustöðvum landsins og var vélbúnaður tekinn á rekstrarleigu. Frá árinu 1999 hefur árleg fjárveiting vegna leigunnar verið 55 millj. kr. Sama ár, 1999, var veitt 23,6 millj. kr. fjárveiting, til þróunar og útvíkkunar á eiginleikum kerfisins, sem hefur staðið óbreytt síðan. Árið 2015 var fjárveiting til uppbyggingar rafrænnar sjúkraskrár á landinu aukin um 80 millj. kr. Árið 2018 var fjárveiting til uppbyggingar rafrænnar sjúkraskrár enn aukin um 250 millj. kr., annars vegar um 50 millj. kr. til frambúðar og 200 millj. kr. í þriggja ára átaksverkefni. Samanlagður kostnaður hins opinbera vegna hluta heilsugæslunnar frá árinu 1997 er því um 3,2 milljarðar kr. án þess að tekið sé tillit til verðlagsbreytinga.
Innan sjúkrahúsþjónustunnar má rekja notkun sjúkraskrárkerfisins hjá Landspítala aftur til ársins 1997 með þróunarsamstarfi þar sem byrjað var að nota kerfið á bráðamóttöku í Fossvogi og á bæklunarskurðdeild á Hringbraut en árið 2003 var ákveðið að nota kerfið á öllum spítalanum. Ekki liggur fyrir hver kostnaður spítalans vegna þróunar og notkunar kerfisins var á þessu tímabili.
Árið 2004 var gerður þjónustusamningur milli LSH og eMR hugbúnaðar ehf. um notkun kerfisins. Árið 2007 var samningurinn endurskoðaður og honum skipt upp í nokkra hluta, almenn þjónustugjöld, tímakörfu og framþróunarverkefni. Árleg heildarupphæð var breytileg eftir árum en ætla má að samanlagt hafi kostnaðurinn verið um 1,1 milljarður kr. án þess að tekið sé tillit til verðlagsbreytinga.
Sögu-kerfið er enn mikið notað á spítalanum en framþróun í Sögu á vegum Landspítala hefur minnkað síðustu árin samhliða því sem áhersla á framþróun Heilsugáttar hefur stóraukist.
3. Hvers vegna hefur kóðinn að hugbúnaðinum ekki verið gefinn út opinberlega, í samræmi við stefnu stjórnvalda um frjálsan og opinn hugbúnað?
Frumkóðinn að hugbúnaðinum er í eigu Origo hf. og þess vegna er ekki mögulegt að gefa hann út opinberlega.
4. Er auðkenningarkerfi notað til að stýra aðgangi að hugbúnaðinum og ef svo er, hvert er það kerfi?
Við innskráningu í Sögu er notað notendanafn og lykilorð. Þetta er metið nægjanlega öruggt vegna þess að Sögu-kerfið er rekið á lokuðu neti hverrar heilbrigðisstofnunar.