Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.

Þingskjal 1624  —  495. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.



Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (stofnanir á málefnasviði félags- og barnamálaráðherra).

Frá velferðarnefnd.


     1.      C-liður 1. gr. orðist svo: Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                 Tryggingastofnun ríkisins ber að upplýsa viðkomandi aðila um fyrirhugaða upplýsingaöflun skv. 1. og 2. mgr. í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     2.      3. efnismgr. 3. gr. orðist svo:
                 Vinnumálastofnun ber að upplýsa umsækjanda um fyrirhugaða vinnslu persónuupplýsinga í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     3.      B-liður 4. gr. orðist svo: Á eftir 5. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                 Vinnumálastofnun ber að upplýsa umsækjanda um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     4.      5. gr. orðist svo:
                 3. málsl. 3. mgr. 15. gr. laganna orðast svo: Vinnumálastofnun ber að upplýsa umsækjanda um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     5.      3. efnismgr. 6. gr. orðist svo:
                 Umboðsmanni skuldara ber að upplýsa skuldara um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     6.      Í stað 3. efnismálsl. 9. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Upplýsingaöflun umboðsmanns skuldara er háð því skilyrði að hún sé nauðsynleg til að hann geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum. Umboðsmanni skuldara ber að upplýsa skuldara um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     7.      Í stað 3. málsl. 2. efnismgr. 11. gr. komi tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Upplýsingaöflun umboðsmanns skuldara er háð því skilyrði að hún sé nauðsynleg til að hann geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum. Umboðsmanni skuldara ber að upplýsa skuldara um fyrirhugaða upplýsingaöflun í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     8.      12. gr. orðist svo:
                 57. gr. laganna orðast svo:
                 Að því marki sem nauðsynlegt er vegna vinnslu umsókna um þjónustu og aðstoð samkvæmt lögum þessum skulu félagsmálanefndir og starfsmenn þeirra óska eftir upplýsingum frá umsækjanda, opinberum aðilum og einkaaðilum um aðstæður umsækjanda, svo sem um tekjur, gjöld, eignir skuldir, ábyrgðir og framfærslu- og húsnæðiskostnað. Ber framangreindum aðilum að veita umbeðnar upplýsingar án endurgjalds búi þeir yfir þeim.
                 Þá er heimilt að kalla eftir læknisvottorði frá lækni umsækjanda eða trúnaðarlækni sveitarfélags þegar um er að ræða umsóknir sem eru tilkomnar vegna heilsufarslegra ástæðna.
                 Félagsmálanefndum og starfsmönnum þeirra ber að upplýsa umsækjanda um fyrirhugaða upplýsingaöflun samkvæmt ákvæði þessu í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
     9.      Við 15. gr.
                  a.      Orðin „lögum um réttindi sjúklinga“ í a-lið falli brott.
                  b.      B-liður orðist svo: Við greinina bætast þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                      Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins er heimilt að afla og vinna með persónuupplýsingar og gögn, svo sem læknisfræðilegar upplýsingar og vottorð sem nauðsynleg eru vegna þeirrar þjónustu sem stöðin veitir. Stofnuninni er heimilt að miðla niðurstöðum greininga og öðrum upplýsingum til þjónustuveitenda samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um grunnskóla, lögum um leikskóla og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir og til annarra þjónustustofnana þar sem einstaklingur fær lögbundna þjónustu þegar slík miðlun er nauðsynleg til þess að stofnunin geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum.
                      Stofnuninni ber að upplýsa viðkomandi einstakling eða forráðamann hans um fyrirhugaða vinnslu og miðlun persónuupplýsinga í samræmi við 2. mgr. 17. gr. laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, sbr. 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679.
                      Stofnunin skal halda skrá yfir alla þá sem njóta þjónustu hennar í þeim tilgangi að hafa yfirsýn yfir stærð hópsins, bæta þjónustu við þá, tryggja gæði þjónustunnar og hafa eftirlit með henni til tölfræðiúrvinnslu og vísindarannsókna í samræmi við skilgreint hlutverk hennar.