Ferill 829. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1634  —  829. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um húsaleigukostnað sýslumannsembætta.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hversu stór hluti framlaga til sýslumannsembætta á fjárlögum 2019 og síðustu 10 ára fara til greiðslu á húsaleigu, í heild og sundurliðað eftir embættum?

    1. janúar 2015 átti sér stað talsverð breyting á stofnanauppbyggingu sýslumannsembættanna þegar þeim var fækkað úr 24 í 9. Samhliða varð uppskipting í málefnum sýslumanna og lögreglunnar þegar 9 embætti lögreglustjóra voru stofnuð en áður höfðu flestir sýslumenn gegnt lögreglustjórn í héruðum.
    Þegar sýslumenn fóru samhliða með lögreglustjórn var kostnaður vegna húsaleigu ekki sundurliðaður sérstaklega í bókhaldi embættanna. Húsnæðið og starfsmenn voru oft samnýtt, hvort sem verkefnin heyrðu undir sýslumann eða lögreglu, og því liggja ekki fyrir tölur ákveðinna embætta um fjárhæð húsaleigu lengra aftur í tímann en til 1. janúar 2015. Undantekning á þessu er sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og sýslumaðurinn á Suðurnesjum en þar hafði framangreind uppskipting þegar átt sér stað.
    Eftirfarandi töflur sýna hlutfall húsaleigu í prósentum af framlögum til sýslumannsembættanna miðað við fyrrgreindar forsendur. Vakin er athygli á því að forsendur markaðsleigu embættanna fyrir árið 2019 liggja ekki að öllu leyti fyrir og því er ekki unnt að veita svar við þeim lið fyrirspurnarinnar.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.