Ferill 784. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1800  —  784. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, með síðari breytingum (stjórnvaldssektir og eftirlit með gististarfsemi).

(Eftir 2. umræðu, 12. júní.)


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 22. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „starfsemi“ kemur: veitingastarfsemi.
     b.      Í stað orðanna „sbr. 7., 12. og 17. gr.“ kemur: skv. 7. og 12. gr. eða leyfisskylda starfsemi skv. 17. gr. án leyfis.

2. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 22. gr. a laganna:
     a.      Á eftir orðunum „þann sem rekur“ í 1. mgr. kemur: leyfisskylda gististarfsemi án tilskilins rekstrarleyfis, sbr. 7. gr.
     b.      Við 2. mgr. bætist: eða skilar ekki nýtingaryfirliti til sýslumanns skv. 2. mgr. 13. gr.
     c.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Við ákvörðun um stjórnvaldssekt vegna rekstrarleyfisskyldrar gististarfsemi er sýslumanni heimilt að afla gagna með sjálfstæðri rannsókn og leita atbeina lögreglu við öflun slíkra gagna.
     d.      Við 3. mgr. bætist: svo sem umfangs, ætlaðs ávinnings, ítrekunaráhrifa og hvort um rekstrarleyfis- eða skráningarskylda starfsemi er að ræða. Litið er á hverja selda gistinótt umfram það sem heimilt er samkvæmt lögum þessum sem sjálfstætt brot.
     e.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ráðherra er í reglugerð heimilt að kveða á um að einu sýslumannsembætti sé falið að taka ákvarðanir um stjórnvaldssektir vegna leyfisskyldrar gististarfsemi. Ákvörðun skal tekin að höfðu samráði við þann ráðherra sem fer með málefni sýslumanna.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.