Ferill 974. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1833 — 974. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um alþjóðlegar aðgerðir í loftslagsmálum.
Flm.: Smári McCarthy, Björn Leví Gunnarsson, Halldóra Mogensen, Helgi Hrafn Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Alþingi ályktar að fela umhverfis- og auðlindaráðherra, í samráði við utanríkisráðherra, að beita sér fyrir frekari samvinnu í þágu alþjóðlegra markmiða í loftslagsmálum. Það feli í sér eftirfarandi aðgerðir:
1. Stuðlað verði að auknu alþjóðlegu samstarfi og samtali um tæknileg málefni, sérfræðiaðstoð, vörur, þjónustu og fjármagn sem gæti nýst öðrum þjóðum við kolefnisbindingu og að ná kolefnishlutleysi.
2. Lögð verði áhersla á ákvæði um loftslagsmál í tvíhliða fríverslunar-, fjárfestingar-, varnarmála- og samstarfssamningum Íslands við önnur ríki og leitast eftir endurnýjun slíkra samninga eftir því sem við á.
3. Íslensk stjórnvöld hafi framgöngu um að útbúnir verði nýir alþjóðlegir árangursmælikvarðar sem ráðast að rótum frekar en einkennum loftslagsvandans. Þar á meðal verði viðmið um að ná að nýju og viðhalda því stigi koltvísýrings í andrúmsloftinu sem þörf er á til að afstýra hamfarahlýnun.
4. Lagt verði til að stofna alþjóðlegan loftslagssjóð á grundvelli loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (UNFCCC) sem verði ráðstafað til samdráttarverkefna sem ætla má að séu of umfangsmikil fyrir einstök ríki.
5. Lögð verði áhersla á að greiða fyrir stuðningi við vanþróuðustu ríki heims til hraðra orkuskipta.
6. Íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir því að hýsa aðildarríkjaþing loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (Conference of the Parties, COP) árið 2021 sem muni að fremsta megni fara fram stafrænt til að draga úr kolefnisspori.
Greinargerð.
Ómögulegt verður að ná að halda hnattrænni hlýnun innan 1,5°C marka Parísarsamningsins án víðtækari alþjóðlegrar samvinnu en nú á sér stað. Ljóst er að árangursmælikvarðar eru ófullnægjandi, efnahagslegir hvatar of litlir og geta margra ríkja til að standa við skuldbindingar sínar of takmörkuð til að árangur muni nást.
Í tillögunni eru settar fram skýrar aðgerðir sem hvetja til betri nýtingar á þeim samráðsvettvangi sem er til staðar innan ramma UNFCCC-samningsins og COP-ráðstefnunnar. Jafnframt eru lagðar til ráðstafanir sem fela í sér að samráðsvettvangurinn verði útvíkkaður til stuðnings alþjóðlegri samræmingu á stærri aðgerðum gegn loftslagsbreytingum sem ætla má að einstök ríki ráði ekki við og alþjóðlegum stuðningi við vanþróuðustu ríki heims (LDC- ríki). Sem dæmi um verkefni sem hafa gríðarlega þýðingu með hliðsjón af loftslagsbreytingum er vernd alþjóðlegra hafsvæða og hreinsun þeirra, einkum þar sem plast hefur safnast fyrir í verulegum mæli eða súrnun sjávar hefur þegar valdið verulegum skaða á stórum kóral. Einnig má nefna söfnun og varðveislu plöntu- og dýrategunda sem eru í útrýmingarhættu eða á válista, en ætla má að útrýming þeirra geti haft skaðleg áhrif á vistkerfi jarðarinnar.
Meðal tillagnanna er hugmynd að innleiðingu loftslagsákvæðis í fríverslunar-, fjárfestingar, varnarmála- og samstarfssamninga sem Ísland gerir við önnur ríki og ríkja sambönd. Forskrift að slíku ákvæði má finna í fjölmörgum fríverslunarsamningum EFTA þar sem áréttað er að samningurinn grundvallist á virðingu fyrir mannréttindum. Með samþykkt tillögunnar yrði ráðherra falið að útfæra nánar sambærilegt ákvæði um kolefnishlutleysi og bindingu gróðurhúsalofttegunda.