Ferill 766. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1872 — 766. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum um matvæli
og lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru (innflutningur búfjárafurða).
(Eftir 2. umræðu, 18. júní.)
I. KAFLI
Breyting á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, nr. 25/1993, með síðari breytingum.
1. gr.
2. gr.
a. Orðin „hráar og lítt saltaðar sláturafurðir, bæði unnar og óunnar, hrá egg“ í a-lið falla brott.
b. Við bætist nýr stafliður, svohljóðandi: hráar og lítt saltaðar sláturafurðir, bæði unnar og óunnar, hrá egg, ógerilsneydda mjólk og mjólkurafurðir sem eru upprunnar í ríkjum sem ekki eru samningsaðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið eða í Sviss, á Grænlandi eða í Færeyjum.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að fela Matvælastofnun að leyfa innflutning á þessum vörum og setja þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að tryggja að búfé stafi ekki hætta af slíkum innflutningi.
3. gr.
Ráðherra er heimilt að fyrirskipa hverjar þær ráðstafanir sem kveðið er á um í 8. gr. til að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmra bakteríustofna. Ráðherra er jafnframt heimilt að setja reglugerð í þessu skyni.
4. gr.
Ráðherra er heimilt að vísa til erlendrar frumútgáfu reglugerða við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins sem teknar eru upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með einfaldaðri málsmeðferð. Birta skal erlendu frumútgáfuna í C-deild Stjórnartíðinda.
II. KAFLI
Breyting á lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum.
5. gr.
6. gr.
Óheimilt er að dreifa ómeðhöndluðum sláturafurðum alifugla á markaði nema sýnt sé fram á gagnvart opinberum eftirlitsaðilum að staðfest hafi verið með sýnatöku á eldistíma eða við slátrun að ekki hafi greinst kampýlóbakter í fuglunum. Nánar skal skilgreina í reglugerð hvað felst í meðhöndlun í skilningi ákvæðisins. Stjórnandi matvælafyrirtækis, sbr. 8. gr. b, skal leggja fram vottorð um niðurstöðu sýnatöku þess efnis að ekki hafi greinst kampýlóbakter í fuglunum á eldistímanum eða við slátrun eða sönnur fyrir viðeigandi meðferð sláturafurðanna sem leiðir til þess að magn kampýlóbakters minnki verulega eða hverfi. Ráðherra skal kveða nánar á um skilyrði samkvæmt ákvæði þessu í reglugerð.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða á um ráðstafanir í frumframleiðslu og dreifingu matvæla í því skyni að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmra bakteríustofna.
7. gr.
Að fenginni tillögu Matvælastofnunar er ráðherra heimilt að fela stofnuninni að annast framkvæmd sýnatöku hjá matvælafyrirtækjum, sbr. 4. gr.
8. gr.
9. gr.
Opinberir eftirlitsaðilar geta lagt stjórnvaldssektir á matvælafyrirtæki sem brýtur gegn 6. mgr. 8. gr. a og reglugerðum og reglum sem settar eru á grundvelli laga þessara.
Við ákvörðun stjórnvaldssekta skal tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, þ.m.t. eftirfarandi:
a. alvarleika brots,
b. hugsanlegra skaðlegra áhrifa brots á neytendur,
c. hvað brotið hefur staðið yfir lengi,
d. ávinnings matvælafyrirtækis af brotinu,
e. stærðar og veltu matvælafyrirtækis,
f. fyrri brota og hvort um ítrekað brot er að ræða.
Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á matvælafyrirtæki, sbr. 4. gr., geta numið frá 25 þús. kr. til 25 millj. kr. Við ákvörðun sektarfjárhæðar skal líta til þess hvort um sé að ræða brot af ásetningi eða gáleysi. Ákvörðun um stjórnvaldssekt samkvæmt þessari grein er aðfararhæf og skulu sektirnar renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna. Gjalddagi stjórnvaldssektar er 30 dögum eftir að ákvörðun um sektina var tekin. Sé stjórnvaldssekt ekki greidd innan 15 daga frá gjalddaga skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar frá gjalddaga. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu. Stjórnvaldssektum verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
10. gr.
Ráðherra er heimilt að vísa til erlendrar frumútgáfu reglugerða við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins sem teknar eru upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með einfaldaðri málsmeðferð. Birta skal erlendu frumútgáfuna í C-deild Stjórnartíðinda.
III. KAFLI
Breyting á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, nr. 22/1994, með síðari breytingum.
11. gr.
Ráðherra er heimilt að vísa til erlendrar frumútgáfu reglugerða við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins sem teknar eru upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með einfaldaðri málsmeðferð. Birta skal erlendu frumútgáfuna í C-deild Stjórnartíðinda.
Ráðherra er heimilt með reglugerð að kveða á um ráðstafanir í framleiðslu og dreifingu fóðurs í því skyni að hefta útbreiðslu sýklalyfjaónæmra bakteríustofna.
12. gr.