Ferill 1012. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1968  —  1012. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um verktakakostnað embættis sérstaks saksóknara og embættis héraðssaksóknara.

Frá Vilhjálmi Árnasyni.


     1.      Hver hefur kostnaður embættis sérstaks saksóknara og embættis héraðssaksóknara verið vegna aðkeyptrar ráðgjafar og þjónustu verktaka á árunum 2010–2017?
     2.      Fyrir hvaða verkefni var þjónustan keypt, af hverjum og hve háar voru greiðslur til hvers og eins?
     3.      Hverjir voru skráðir stjórnarmenn lögaðila sem þjónustan var keypt af á hverjum tíma?
    Svar óskast sundurliðað eftir árum.


Skriflegt svar óskast.