Ferill 945. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1997  —  945. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Höllu Gunnarsdóttur um þjónustu við fæðandi konur á landsbyggðinni.


     1.      Með hvaða hætti vinnur ráðuneytið að því að tryggja viðunandi þjónustu við fæðandi konur sem búa fjarri fæðingarþjónustu?
    Þjónustustig fæðingastaða hefur verið skilgreint í öllum heilbrigðisumdæmum og hefur Embætti landlæknis gefið út leiðbeiningar um val á fæðingarstað. Ákveðum skilmerkjum er fylgt þegar tekin er ákvörðun um val á fæðingarstað en ljósmæður kynna fyrir væntanlegum foreldrum hvað er í boði og leiðbeina hvaða fæðingarstaðir henta með tilliti til meðgöngusögu og heilsufars móður. Víða á heilbrigðisstofnunum landsbyggðarinnar stendur konum sem bíða fæðingar til boða húsnæði á vegum heilbrigðisstofnana. Til að auka aðgang íbúa í dreifðum byggðum að sérhæfðri fæðingarþjónustu geta foreldrar nú dvalið á sjúkrahóteli við Landspítala sem nýlega hefur verið tekið í notkun. Auk þess eru tvær sjúkraíbúðir á Akureyri sem foreldrar frá Austurlandi hafa nýtt.
    Félags- og barnamálaráðherra og heilbrigðisráðherra hafa auk þess hug á því að skipa starfshóp sem hafi það hlutverk að fara heildstætt yfir aðstæður barnshafandi kvenna á landsbyggðinni með tilliti til staðsetningar fæðingarþjónustu á landsvísu en margar konur þurfa að dveljast fjarri heimabyggð í einhvern tíma til að hafa öruggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu á meðgöngu. Er starfshópnum ætlað að koma fram með tillögur að leiðum sem koma til móts við aðstæður þessara kvenna og fjölskyldna þeirra, hvort sem er innan fæðingarorlofskerfisins eða með öðrum hætti.

     2.      Með hvaða hætti er tryggð samfella í mæðravernd og fæðingarþjónustu kvenna sem þurfa að fæða fjarri heimabyggð?
    Mæðravernd er sinnt á vegum heilsugæslu heilbrigðisstofnana á öllum starfsstöðvum um landið. Eftir útskrift af fæðingardeild tekur heimaþjónusta ljósmæðra við eða heimsókn hjúkrunarfræðinga frá heilsugæslustöð sem sinna fjölskyldunni samhliða ung- og smábarnavernd. Að mati stofnananna hefur vel tekist til við að byggja upp gott þjónustunet fyrir mæðravernd um landið.

     3.      Hvað líður vinnu við að draga úr útlögðum kostnaði kvenna sem þurfa að dvelja fjarri heimabyggð í tengslum við meðgöngu eða fæðingu?
    Slíkt verður til skoðunar eftir að niðurstaða starfshóps liggur fyrir, en slíkar breytingar myndu að öllum líkindum falla undir breytingar á fæðingarorlofskerfinu sem er á hendi félagsmálaráðuneytis.

     4.      Telur ráðherra að jafnræði sé tryggt í þjónustu við fæðandi konur og fjölskyldur þeirra óháð búsetu?
    Starfshópnum er ætlað að greina og meta aðstæður fæðandi kvenna á landsbyggðinni og koma með tillögur að leiðum til að mæta þeim og fjölskyldum þeirra svo tryggja megi jafnræði til þjónustunnar eins og mögulegt er.