Ferill 1017. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2003 — 1017. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um lögheimilisskráningu barna.
1. Telur ráðherra það samræmast barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og ákvæði um að óheimilt sé að mismuna börnum á nokkurn hátt vegna aðstæðna þess, foreldris þess eða lögráðamanns ef barni, sem fætt er á Íslandi, er neitað um lögheimilisskráningu?
Hér á landi er framkvæmdin sú, skv. 1. mgr. 6. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, að barn, yngra en 18 ára, hefur sama lögheimili og foreldrar þess ef þau eru í hjúskap eða skráðri sambúð. Hafi foreldrar skilið eða slitið sambúð hefur barnið skráð lögheimili hjá öðru foreldri sínu. Í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur fram að hafi foreldrar ekki verið í hjúskap eða skráðri sambúð við fæðingu barns skal lögheimili barns vera hjá því foreldri sem fer með forsjá þess. Leiðir framangreint lagaákvæði til þess að ef hvorugt foreldri barns, sem fæðist hér á landi, er með skráð lögheimili á Íslandi við fæðingu þess þá er barnið heldur ekki skráð með lögheimili á Íslandi. Gildir þetta ákvæði um öll börn sem fæðast hér á landi, burt séð frá ríkisfangi þeirra.
2. Á hvaða lagaheimildum byggir Þjóðskrá Íslands synjanir um lögheimilisskráningu barna sem fædd eru á Íslandi en eiga erlenda foreldra? Svar óskast sundurliðað m.a. eftir því hvort foreldrar barnsins eru umsækjendur um alþjóðlega vernd, umsækjendur um dvalarleyfi, umsækjendur um endurnýjun dvalarleyfis eða hefur verið synjað um slíka endurnýjun, ríkisfangslausir einstaklingar eða einstaklingar sem dveljast hér á landi með útrunnið dvalarleyfi eða hafa fengið dvalarleyfi sitt afturkallað.
Forsenda þess að unnt sé að skrá lögheimili einstaklings hér á landi er að hann hafi heimild, annaðhvort samkvæmt lögum eða ákvörðun stjórnvalds, til að hafa fasta búsetu á Íslandi og þar með lögheimili. Mælt er fyrir um heimild erlendra ríkisborgara til að koma til Íslands og dvelja hér á landi í lögum um útlendinga, nr. 80/2016, sbr. 1. mgr. 1. gr. laganna. Skv. 2. mgr. 4. gr. laganna annast m.a. Útlendingastofnun, kærunefnd útlendingamála og Þjóðskrá Íslands framkvæmd laganna. Lög um útlendinga heyra ekki undir samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
Allir þeir einstaklingar sem teljast til þeirra hópa sem óskað er sundurliðaðs svars fyrir falla undir ákvæði laga um útlendinga og byggist heimild þeirra til lögmætrar búsetu á Íslandi á leyfi Útlendingastofnunar. Það er ekki á valdsviði Þjóðskrár Íslands að taka ákvörðun um lögheimilisskráningu þeirra einstaklinga sem samkvæmt útlendingalögum þurfa leyfi Útlendingastofnunar til búsetu hér á landi.
3. Telur ráðherra að endurskoða þurfi lög um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, til að tryggja að öll börn geti notið borgaralegra og félagslegra réttinda hér á landi?
Vísað er til svars við 2. tölul. fyrirspurnarinnar. Þá er rétt að taka fram að ekki er tilefni til að breyta lögum um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018, að svo stöddu vegna efnis fyrirspurnarinnar. Verði gerðar breytingar á lögum um útlendinga í þessu samhengi verður efni laga um lögheimili og aðsetur skoðað samhliða.