Ferill 883. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2029 — 883. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um skrifstofur og skrifstofustjóra í ráðuneytinu.
1. Hvaða skrifstofur eru í ráðuneytinu og hvaða skrifstofum stýrir skrifstofustjóri? Hver eru verkefni hverrar skrifstofu og hversu margir starfsmenn starfa undir skrifstofustjóra á hverri skrifstofu?
Í ráðuneytinu eru alls átta skrifstofur og eru sjö þeirra undir stjórn skrifstofustjóra. Ekki er starfandi skrifstofustjóri á skrifstofu ráðuneytisstjóra.
Alþjóða- og öryggisskrifstofa fer með alþjóðleg öryggismál, mannréttindi og tvíhliða pólitísk samskipti, auðlinda- og umhverfismál, norðurslóðir og skylt svæðisbundið samstarf og Norðurlandasamstarf. Á skrifstofunni starfa 17 að skrifstofustjóra meðtöldum.
Laga- og stjórnsýsluskrifstofa annast almenn laga-, stjórnsýslu- og lögfræðileg EES-mál, þjóðréttar- og hafréttarmál og borgaraþjónustu. Á skrifstofunni starfa átta að skrifstofustjóra meðtöldum.
Prótókollskrifstofa annast almenn prótókollsmál og þjónustu við erlendar sendiskrifstofur og kjörræðismál. Á skrifstofunni starfa þrír að skrifstofustjóra meðtöldum.
Rekstrar- og þjónustuskrifstofa annast fjárlagagerð og stefnumótun, rekstur og bókhald, fjármál þróunarsamvinnu, skjalasafn, tölvu- og tæknimál. Á skrifstofunni starfar 31 að skrifstofustjóra meðtöldum.
Varnarmálaskrifstofa annast aðgerðir og æfingar, fjölþjóðlegt varnarmálasamstarf, varnartengd rekstrar- og þjónustumál og þátttöku í fjölþjóðlegum aðgerðum. Á skrifstofunni starfa 6 að skrifstofustjóra meðtöldum.
Viðskiptaskrifstofa annast Evrópumál og framkvæmd EES-samningsins, atvinnulíf og menningu, fríverslunarsamninga, loftferða-, fjárfestinga- og tvísköttunarsamninga, efnahagsmál og tvíhliða samskipti og rekstur þýðingamiðstöðvar. Á skrifstofunni starfa alls 49 að skrifstofustjóra meðtöldum þar af er starfsfólk þýðingamiðstöðvar 35.
Þróunarsamvinnuskrifstofa fer með tvíhliða þróunarsamvinnu, fjölþjóðlega þróunarsamvinnu, mannúðaraðstoð og samstarf við atvinnulíf og svæðasamstarf. Á skrifstofunni starfa 13 að skrifstofustjóra meðtöldum.
Skrifstofa ráðuneytisstjóra fer með málefni upplýsinga- og greiningarmála, mannauðsmál, deild heimasendiherra og sérstakra sendierindreka með búsetu á Íslandi og eftirlit með stjórnsýsluframkvæmd og rekstri utanríkisráðuneytisins. Á skrifstofunni starfa 18 að ráðuneytisstjóra meðtöldum.
2. Hversu margir skrifstofustjórar heyra undir aðra skrifstofustjóra eða stýra ekki skrifstofu sjálfir?
Einn starfsmaður hefur embættisskipun sem skrifstofustjóri og starfar undir stjórn annars skrifstofustjóra.
3. Hvaða aukastörf og hlunnindi fylgja starfi hvers skrifstofustjóra og hvert er hlunnindamat starfa þeirra?
Skrifstofustjórar sinna hefðbundnum aukastörfum sem geta eftir atvikum fallið undir verksvið þeirra, svo sem þátttaka í starfi nefnda, vinnuhópa og starfshópa. Ráðuneytið lætur skrifstofustjórum í té farsíma og greiðir afnot þeirra af honum.
4. Hversu mikla yfirvinnu vinnur hver skrifstofustjóri að jafnaði á mánuði, talið í klukkustundum?
Á árinu 2018 var yfirvinna hvers skrifstofustjóra samkvæmt viðveruskráningarkerfi að meðaltali 15–40 klst. á mánuði. Skrifstofustjórar vinna iðulega heiman frá sér utan hefðbundins vinnutíma og er slíkt vinnuframlag ekki endilega skráð í viðveruskráningarkerfið og því erfitt að segja til um heildarfjölda yfirvinnutíma.
5. Hvernig tengjast skrifstofurnar í ráðuneytinu undirstofnunum þess?
Engar stofnanir heyra undir utanríkisráðuneytið.
Alls fóru fimm vinnustundir í að taka þetta svar saman.