Ferill 925. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2032  —  925. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Sæmundssyni um leigu húsnæðis til ferðamanna.


     1.      Hve margar íbúðir eða einingar eru nú leigðar út til ferðamanna gegnum bókunarkerfi sem kennd eru við AirBnB og viðlíka, annars vegar á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar á landsbyggðinni?
    Samkvæmt Mælaborði ferðaþjónustunnar voru 8.134 gistirými (samtala fyrir einingarnar „allt heimilið“, „sameiginlegt herbergi“ og „sérherbergi“) auglýst til útleigu á bókunarsíðunum Airbnb og HomeAway í júní 2019. Ekki liggja fyrir upplýsingar um auglýsingar á öðrum bókunarsíðum.
    Framboðið sundurliðast með eftirfarandi hætti eftir landshlutum:
    Höfuðborgarsvæðið: 4.064
    Vesturland: 612
    Vestfirðir: 234
    Norðurland eystra: 801
    Norðurland vestra: 247
    Austurland: 478
    Suðurland: 1.443
    Suðurnes: 255

     2.      Hversu margar íbúðir sem leigðar eru út, sbr. 1. tölul. fyrirspurnarinnar, eru skráðar með fullnægjandi hætti?
    Gististarfsemi sem auglýst er á bókunarsíðum á borð við Airbnb einskorðast ekki við skráningarskylda heimagistingu. Á slíkum bókunarsíðum er einnig að finna auglýsingar vegna umfangsmeiri gististarfsemi sem er lögum samkvæmt leyfisskyld. Það hvort gististarfsemi er leyfisskyld eða skráningarskyld ræðst fyrst og fremst af umfangi starfseminnar.
    Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu áætlar að um 50% skammtímaleigu fari fram hér á landi án tilskilinna leyfa eða skráningar, sbr. fylgiskjal.

     3.      Hversu margar íbúðir hafa verið nýskráðar vegna sérstaks átaks sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu?
    Átak sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, sem hrundið var af stað að frumkvæði ráðherra, hefur haft jákvæð áhrif á fjölda skráninga vegna aukins eftirlits og umfjöllunar. Frá því að átakið hófst sumarið 2018 hefur fjöldi skráðra heimagistinga nær tvöfaldast. Þannig voru skráðar heimagistingar 1.056 í lok árs 2017 en 2.022 í lok árs 2018.
    Sýslumaður hefur staðfest 2.033 skráningar (samtala nýskráninga og endurnýjaðra skráninga) það sem af er af árinu 2019.

     4.      Hvað hefur átakið kostað og hversu miklum tekjum hefur það skilað?
    Kostnaður við styrkingu eftirlits var talinn nema 64 millj. kr. en gert var ráð fyrir því að bætt skattskil og sektargreiðslur myndu vega þann kostnað upp. Var starfsmönnum heimagistingarvaktar hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað úr þremur í tíu þegar vaktin var sett á fót í kjölfar samnings sem gerður var við embættið af hálfu, og fjármagnaður af, ráðherra. Umræddir starfsmenn framkvæma m.a. vettvangsrannsóknir í kjölfar ábendinga frá almenningi eða upplýsinga sem fram koma í frumkvæðiseftirliti. Í hópnum eru tveir lögfræðingar sem halda utan um stjórnsýslumeðferð og ákvarðanir um stjórnvaldssektir.
    Reynslan af átakinu sýnir að samanlagðar fjárhæðir álagðra og fyrirhugaðra stjórnvaldssekta auk innheimtra skráningargjalda nema hærri fjárhæð en útlagður kostnaður af auknu eftirliti. Er þá ekki tekið mið af óbeinum áhrifum á borð við aukin skattskil, framboð á leiguhúsnæði og jafnari samkeppnisgrundvöll.
    Samanlögð upphæð skráningargjalda, stjórnvaldssekta og fyrirhugaðra stjórnvaldssekta frá ársbyrjun 2017 nemur í dag 138.350.160 kr. Þar af nema fyrirhugaðar og álagðar stjórnvaldssektir vegna átaksins í dag 94.600.000 kr., en frá ársbyrjun 2017 hefur sýslumaður innheimt 43.750.160 kr. í skráningargjöld vegna heimagistingar. Þar af námu skráningargjöld 9.039.360 kr. á almanaksárinu 2017, 17.308.320 kr. á almanaksárinu 2018 og 17.402.480 kr. það sem af er árinu 2019.

     5.      Hvers vegna verður því átaki ekki fram haldið eins og nýlegar fréttir bera með sér?
    Í lok júní sl. framlengdi ráðherra samning við sýslumanninn á höfuðborgarsvæðinu um sex mánuði. Átakinu verður því haldið áfram.
    Þá hefur Alþingi nýverið samþykkt lög til breytinga á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald þar sem m.a. eru breytingar varðandi stjórnvaldssektir annars vegar og eftirlit með gististarfsemi hins vegar. Með breytingunum er ætlunin m.a. að samræma málsmeðferð og ákvörðun sekta milli skráningarskyldra og rekstrarleyfisskyldra aðila vegna leyfisskyldrar gististarfsemi annars vegar og skráningarskyldrar heimagistingar hins vegar. Í greinargerð með frumvarpi til laganna segir um mat á áhrifum lagasetningarinnar að mikilvægt sé að halda verkefninu áfram og finna eftirlitinu farveg. Kostnaði við verkefnið verður stýrt þannig að hann rúmist innan 50 millj. kr. árlegs heildarramma, þ.e. 25 millj. kr. sem verður forgangsraðað innan útgjaldaramma sýslumanna og 25 millj. kr. sem verður forgangsraðað í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Gert er ráð fyrir því að nánari útfærsla eftirlits verði sett með reglugerð með aðkomu bæði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og dómsmálaráðuneytis.
    Í framhaldi af samþykkt nýrra laga mun eftirlitið því halda áfram af mun meiri festu en hægt var að ganga fram af fyrir upphaf heimagistingarvaktar.


Fylgiskjal.


Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu:

Um mat á umfangi óleyfilegrar gististarfsemi.

    Í janúar 2019 voru 6.785 rými auglýst til útleigu á bókunarsíðunni Airbnb samkvæmt Mælaborði ferðaþjónustunnar. Þar af voru 4.596 fasteignir auglýstar til útleigu í heild sinni og 2.189 að hluta. Þann fyrirvara verður að setja að þessar upplýsingar geta einungis gefið vísbendingar um eiginlegt framboð. Umræddar tölur gera ekki ráð fyrir tvítalningu í þeim tilvikum þar sem eignir eru bæði auglýstar til útleigu í heild og að hluta. Þá taka umræddar upplýsingar ekki mið af virkni auglýsinga. Framboð á gististarfsemi er árstíðabundið og eignir geta einnig verið auglýstar til útleigu á öðrum bókunarsíðum en Airbnb.
    Í lok árs 2018 höfðu 3.539 einstaklingar og lögaðilar skráð heimagistingu eða aflað sér tilskilins rekstrarleyfis. Tekið skal fram að skráning heimagistingar gildir fyrir almanaksárið. Tölur yfir fjölda skráninga í lok árs gefa því bestar vísbendingar um heildarfjölda skráninga. Þar af voru 2022 skráðar heimagistingar, 1.127 rekstrarleyfi í flokki II (íbúðagisting) og 390 rekstrarleyfi í flokki I (heimagisting) sem gefin voru út fyrir 2017 í gildistíð eldri laga.
    Ef umræddar tölur eru lagðar til grundvallar má ætla að 52% þeirra sem stunduðu skammtímaleigu á Íslandi í janúar 2019, hafi haft til þess tilskilin leyfi eða skráningu.