Ferill 887. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2039  —  887. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um skrifstofur og skrifstofustjóra í ráðuneytinu.


     1.      Hvaða skrifstofur eru í ráðuneytinu og hvaða skrifstofum stýrir skrifstofustjóri? Hver eru verkefni hverrar skrifstofu og hversu margir starfsmenn starfa undir skrifstofustjóra á hverri skrifstofu?
    Skrifstofur ráðuneytisins samkvæmt skipuriti þess eru fimm: Skrifstofa ráðuneytisstjóra, skrifstofa heilbrigðisþjónustu, skrifstofa gæða og forvarna, skrifstofa rekstrar og innri þjónustu og skrifstofa hagmála og fjármála. Öllum skrifstofum er stýrt af skrifstofustjóra.
     Skrifstofa ráðuneytisstjóra: Meginhlutverk skrifstofunnar er að stuðla að faglegri og metnaðarfullri starfsemi ráðuneytisins. Skrifstofan er ráðherra til fulltingis við stjórnun ráðuneytisins og er með yfirsýn yfir verkefni þess og samhæfingu. Skrifstofan stýrir innra stefnumótunarstarfi, vinnur að þróunarmálum og hefur yfirsýn yfir stefnumótun í málaflokkum. Auk þess sér skrifstofan um mannauðsmál, almannatengsl og upplýsingamál og hefur yfirsýn yfir alþjóðasamstarf. Samkvæmt samningi sinnir heilbrigðisráðuneytið mannauðsþjónustu fyrir félagsmálaráðuneytið. Starfsmenn skrifstofunnar eru átta, þar af er einn starfsmaður staðsettur hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í Genf.
     Skrifstofa heilbrigðisþjónustu: Skrifstofan annast verkefni sem varða skipulag heilbrigðisþjónustu, sérhæfingu og verkaskiptingu þjónustuaðila. Einnig eru á hennar sviði sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, heilsugæsla, heilbrigðisþjónusta utan stofnana, hjúkrunar- og dvalarheimili, læknisfræðileg endurhæfing og sjúkratryggingar. Starfsmenn skrifstofunnar eru ellefu.
     Skrifstofa gæða og forvarna: Skrifstofan annast verkefni er varða lýðheilsu, heilsueflingu, forvarnir, gæði, öryggi og eftirlit með heilbrigðisþjónustu og starfsréttindi heilbrigðisstétta. Þá ber skrifstofan ábyrgð á stefnu varðandi sjúkraskrár og gagnasöfn í heilbrigðisþjónustu, lífvísindi og vísindarannsóknir. Enn fremur falla lyfja- og lækningatækjamál undir skrifstofuna. Starfsmenn skrifstofunnar eru tólf, þar af eru tveir starfsmenn í 60% og 40% hlutastarfi.
     Skrifstofa rekstrar og innri þjónustu: Skrifstofan hefur umsjón með fjármálum og annast daglegan rekstur ráðuneytisins. Meginverkefni skrifstofunnar felast í rekstri, launavinnslu, upplýsingatækni, skjala- og upplýsingastjórnun, afgreiðslu og móttöku, umsjón með mannauðsmálum og innri gæðamálum. Auk þess hefur skrifstofan umsjón með húsnæði og mötuneyti ráðuneytisins ásamt þjónustu við ýmsar nefndir sem heyra undir ráðuneytið. Samkvæmt samningi veitir skrifstofan félagsmálaráðuneytinu tiltekna stoðþjónustu, m.a. bókhalds- og rekstrarþjónustu, launaumsjón og launavinnslu og rekstur mötuneytis og húsnæðis. Starfsmenn skrifstofunnar eru sautján, þar af eru fjórir starfsmenn í hlutastarfi.
     Skrifstofa hagmála og fjármála: Skrifstofan undirbyggir stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra með hagtölum og greiningu og hefur heildarsýn yfir fjárreiður stofnana, tryggingarliða og annarra viðfangsefna sem undir ráðuneytið heyra. Þá leggur skrifstofan mat á hagkvæmni verkefna og þann kostnað sem kann að hljótast af lagafrumvörpum á ríkissjóð. Í þessu felst m.a. uppbygging, greining og úrvinnsla gagna, ábyrgð á gerð fjárlaga og rekstrar- og framkvæmdaáætlana og eftirlit með framkvæmd fjárlaga. Samkvæmt samningi veitir skrifstofan félagsmálaráðuneytinu sérfræðiþjónustu á sviði hagmála. Starfsmenn skrifstofunnar eru átta.

     2.      Hversu margir skrifstofustjórar heyra undir aðra skrifstofustjóra eða stýra ekki skrifstofu sjálfir?
    Enginn.

     3.      Hvaða aukastörf og hlunnindi fylgja starfi hvers skrifstofustjóra og hvert er hlunnindamat starfa þeirra?
    Engin launuð aukastörf fylgja störfum skrifstofustjóra. Afnot af síma eru greidd og veittur 60 þús. kr. styrkur á þriggja ára fresti til kaupa á símtækjum. Þetta á bæði við um skrifstofustjóra og starfsmenn/sérfræðinga sem taldir eru þurfa síma starfs síns vegna.

     4.      Hversu mikla yfirvinnu vinnur hver skrifstofustjóri að jafnaði á mánuði, talið í klukkustundum?
    Yfirvinna skrifstofustjóra síðastliðið ár samkvæmt tímaskráningarkerfi ráðuneytisins var að jafnaði á bilinu 10–20 klukkustundir á mánuði.

     5.      Hvernig tengjast skrifstofurnar í ráðuneytinu undirstofnunum þess?
    Skrifstofa heilbrigðisþjónustu annast fagleg samskipti við Landspítala, Sjúkratryggingar Íslands, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, Sjúkrahúsið á Akureyri og sex heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni. Skrifstofa gæða og forvarna annast fagleg samskipti við embætti landlæknis, Lyfjastofnun og Geislavarnir ríkisins. Skrifstofa hagmála og fjármála hefur fjárhagslega og rekstrarlega tengingu við allar stofnanir ráðuneytisins.