Ferill 996. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2045 — 996. mál.
Svar
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn frá Ingu Sæland um svæðalokanir til verndunar smáfiski.
1. Hversu margar skyndilokanir hafa verið árlega sl. 10 ár, 2009–2018, og hve oft hafa þær staðið í annars vegar eina og hins vegar tvær vikur á hverju ári?
Árið 2009 voru 165 skyndilokanir, 161 í tvær vikur og 4 í eina viku.
Árið 2010 voru 114 skyndilokanir, 112 í tvær vikur og 2 í eina viku.
Árið 2011 var 71 skyndilokun, 70 í tvær vikur og 1 í eina viku.
Árið 2012 voru 188 skyndilokanir, 182 í tvær vikur og 6 í eina viku.
Árið 2013 voru 163 skyndilokanir, 159 í tvær vikur og 4 í eina viku.
Árið 2014 voru 89 skyndilokanir, 86 í tvær vikur og 3 í eina viku.
Árið 2015 voru 149 skyndilokanir, 148 í tvær vikur og 1 í eina viku.
Árið 2016 voru 120 skyndilokanir, 117 í tvær vikur og 3 í eina viku.
Árið 2017 voru 119 skyndilokanir, 117 í tvær vikur og 2 í eina viku.
Árið 2018 voru 96 skyndilokanir, 95 í tvær vikur og 1 í eina viku.
2. Hversu margar reglugerðarlokanir hafa verið árlega sl. 10 ár, 2009–2018, og hversu lengi hafa þær staðið á hverju ári?
Árið 2009, 1 lokun, er í gildi 5 mánuði á ári.
Árið 2010, 3 lokanir. Ein er brottfallin, gilti í 7 mánuði. Tvær eru í gildi, önnur í 7 mánuði en hin í 8 mánuði á ári.
Árið 2011, 2 lokanir. Önnur er brottfallin, gilti í 3 mánuði. Hin er í gildi 3 mánuði á ári.
Árið 2012, 3 lokanir. Tvær eru brottfallnar, önnur gilti í 6 mánuði en hin í 4 ár. Sú þriðja er í gildi 3 mánuði á ári.
Árið 2013, 1 lokun, sem er enn í gildi, í henni eru mörg svæði með mismunandi gildistíma innan ársins.
Árið 2014, engin lokun.
Árið 2015, 4 lokanir. Tvær eru brottfallnar, giltu í 6 mánuði hvor. Tvær eru í gildi, önnur í 2 mánuði á ári en hin allt árið.
Árið 2016, engin lokun.
Árið 2017, 2 lokanir. Báðar eru brottfallnar, giltu í 1 mánuð hvor.
Árið 2018, engin lokun.
Þar að auki eru í gildi um 20 reglugerðir til verndunar smáfiski, sem voru gefnar út fyrir 2009, hluti þeirra tekur til margra svæða.
3. Hve margir sinntu að jafnaði daglegu starfi tengdu framangreindum lokunum árlega sl. 10 ár:
a. hjá Fiskistofu,
b. hjá Hafrannsóknastofnun?
Hjá Fiskistofu sinnir enginn framangreindum lokunum eingöngu, hins vegar hefur þetta verkefni verið á borði deildarstjóra sjóeftirlits síðustu ár samhliða mörgum öðrum verkefnum.
Á Hafrannsóknastofnun sinnir hópur sérfræðinga veiðieftirliti stofnunarinnar á hálfs mánaðar vöktum. Því er að jafnaði einn sérfræðingur sem sinnir veiðieftirliti í dagvinnu með öðrum verkum og á bakvöktum eftir að vinnutíma líkur til kl. 21 á virkum dögum og svo á tólf tíma bakvöktum um helgar.
4. Hver hefur verið árlegur eftirlits- og stjórnunarkostnaður við framangreindar lokanir á þessu 10 ára tímabili:
a. hjá Fiskistofu,
b. hjá Hafrannsóknastofnun?
Hjá Fiskistofu er hluti af daglegum verkefnum eftirlitsmanna að fylgjast með stærðarsamsetningu afla og lengdarmæla til að koma í veg fyrir skaðlegar veiðar á smáfiski. Ekki er til nákvæmt verkbókhald yfir einstök verkefni eins og þetta hjá Fiskistofu. Þó er til í gagnasafni tímaskráning fyrir útsetningar og samskipti við Hafrannsóknastofnun vegna skyndilokana og eru það 1518 klukkustundir frá árinu 2010. Tími sem fer í lengdarmælingar veiðieftirlitsmanna er ekki inni í þeim tölum.
Varðandi Hafrannsóknastofnun liggja ekki fyrir upplýsingar fyrir sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar, sem varð 1. júlí 2016, því að eldra bókhaldskerfi er óaðgengilegt.
Svarið miðast því við 1. júlí 2016. Fyrirkomulag hefur verið með svipuðum hætti undanfarin ár og því hefur kostnaður verið áþekkur síðustu tíu árin. Vinnutímar vegna veiðieftirlits eru skráðir í verkbókhald stofnunarinnar og samkvæmt því var kostnaður eftirfarandi:
Árið 2016 var kostnaðurinn 1.722.236 kr.
Árið 2017 var kostnaðurinn 810.761 kr.
Árið 2018 var kostnaðurinn 1.472.153 kr.
5. Hve mikið hefur verið greitt í kostnað vegna auglýsinga í útvarpi vegna lokana og til Landhelgisgæslu vegna upplýsingagjafar árlega sl. 10 ár og hverjir hafa greitt kostnaðinn?
Svarið miðast við 1. júlí 2016. Hafrannsóknastofnun hefur greitt kostnaðinn við auglýsingar til Landhelgisgæslunnar en ekki er greitt fyrir auglýsingarnar í útvarpinu.
Árið 2016 var kostnaðurinn 360.873 kr.
Árið 2017 var kostnaðurinn 620.361 kr.
Árið 2018 var kostnaðurinn 338.545 kr.
6. Hve mikið hafa útgerðir og einyrkjar greitt Fiskistofu í tengslum við eftirlit og mælingar þeirra sem tengjast smáfiskafriðun árlega sl. 10 ár?
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið (ANR) veitir leyfi fyrir tilraunaveiðar vegna könnunar á hólfum eða veiðisvæðum að undangenginni umsögn Hafrannsóknastofnunar. Vegna slíkra kannana þarf eftirlitsmann Fiskistofu um borð og er kostnaður vegna veru hans um borð greiddur af leyfishafa hverju sinni. Mismunandi er milli ára hversu margar kannanir fara fram, t.d. var ekkert leyfi veitt af ANR í fyrra, sex leyfi árið 2017 en ekkert leyfi árið 2016. Kostnaður vegna leyfanna sex árið 2017 nam 533.400 kr.
7. Hver er ávinningurinn af lokunum til verndar smáfiski og hvernig hefur hann verið metinn?
Að mati Hafrannsóknastofnunar er væntur ávinningur svæðalokana að koma í veg fyrir skaðlegar veiðar, þ.e. veiðar á ungviði, smáfiski, smárækju og smáhumri, en einnig til að draga úr líklegu brottkasti.
Þá kemur fram í svari Hafrannsóknastofnunar, með vísan í nýlega ritrýnda grein, að skyndilokanir séu gagnlegar til verndar smáfiski þegar veiðihlutfall er hátt, en sé veiðihlutfall hóflegt líkt og nú er í flestum bolfisktegundum hafi skyndilokanir takmarkað gildi.
Hafrannsóknastofnun telur þó ekki ráðlegt að fella öll mörk niður og hverfa frá lokunum svæða ef smár fiskur veiðist. Skynsamlegt sé að hafa aðhald og stöðva veiðar á svæðum ef óhóflega er veitt af ungviði. Stofnunin hefur lagt til að breyta viðmiðunarmörkum, þ.e. rýmka þau, fyrir þorsk, ýsu og ufsa, en stofnunin telur ekki þörf á að breyta viðmiðunarmörkum í öðrum tegundum að svo stöddu.