Ferill 761. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2047 — 761. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóni Þór Ólafssyni um vernd persónuupplýsinga hjá dómstólum.
1. Hvernig tryggja dómstólar, dómstólasýslan, aðrar stofnanir á vegum ráðherra og ráðherra sjálfur að lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, séu virt við meðferð dómsmála að því leyti sem lögin ná yfir störf dómstóla, sbr. 4. mgr. 4. gr. laganna, og að ekki sé brotið á friðhelgi þeirra einstaklinga sem þurfa á einhvern hátt að eiga samskipti við dómstóla? Óskað er eftir upplýsingum um allar reglur, reglugerðir, staðla og önnur fyrirmæli sem dómstólar fylgja við störf sín til að tryggja vernd persónuupplýsinga.
Í upphafi skal tekið fram að ráðherra eða aðrar stofnanir á vegum ráðherra hafa ekki beina aðkomu að því að tryggja lögmæta meðferð persónuupplýsinga hjá dómstólum. Það er í höndum dómaranna sjálfra og dómstólasýslunnar, sem er sjálfstæð stjórnsýslustofnun sem fer með málefni dómstólanna, að sjá til þess að gildandi lög og reglur um persónuvernd séu virtar við birtingu dóma eða vegna samskipta einstaklinga við dómstólana að öðru leyti.
Líkt og fram kemur í fyrirspurninni gilda lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018, um vinnslu persónuupplýsinga hjá dómstólum nema þegar þeir fara með dómsvald sitt, sbr. 4. gr. laganna. Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu í málum nr. 2016/1783 og 2017/1799 að birting dómsúrlausna á netinu feli ekki í sér dómsathöfn, enda lúti ákvarðanirnar ekki að efni dóma heldur afmarkist við hvaða upplýsingar skuli birtar á netinu. Hvað varðar ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga skal tekið fram að hún hvílir á hverjum dómstól fyrir sig sem og á dómstólasýslunni. Endanlega ábyrgð í þessum efnum bera forstöðumenn þessara stofnana og bera þeir einnig ábyrgð á að öll vistun gagna sé forsvaranleg og á þann veg að meðferð persónuupplýsinga sé tryggð.
Dómstólasýslan hefur sett sérstakar reglur, reglur um birtingu dóma og úrskurða á vefsíðu héraðsdómstólanna, nr. 3/2018, samkvæmt heimild í 1. mgr. 38. gr. laga um dómstóla, nr. 50/2016, en reglurnar má finna á heimasíðu stofnunarinnar. Í reglunum eru útfærðar þær takmarkanir sem fram koma í 38. gr. laga um dómstóla. Þeim takmörkunum er lýst í 3. gr. reglnanna og horfa þær mismunandi við eftir tegundum málaflokka. Sem dæmi má nefna að dómsúrlausnir skulu alla jafna ekki birtar í málum sem varða beiðni um heimild til að leita nauðasamnings eða greiðslustöðvunar, og ekki heldur í málum samkvæmt lögræðislögum, barnaverndarlögum, barnalögum eða hjúskaparlögum. Sérstaklega er fjallað um nafnleynd í 4. gr. reglnanna en þar segir að í sakamálum skuli gæta nafnleyndar um þá sem þar eru greindir, þó ekki um ákærða ef hann er sakfelldur. Ef birting á nafni ákærða getur talist andstæð hagsmunum brotaþola eða um er að ræða úrskurð sem gengur undir rekstri máls, skal nafnleyndar einnig gætt um ákærða. Sama á við ef ákærði var ekki orðinn 18 ára þegar hann framdi það brot sem hann er sakfelldur fyrir. Þá er kveðið á um að gæta skuli nafnleyndar í dómum í einkamálum ef sérstök ástæða er til og skal þá einnig afmá önnur atriði úr dómi sem tengt geta aðila eða aðra við sakarefnið. Loks er að finna sérstaka heimild um afléttingu nafnbirtingar í síðustu málsgrein 4. gr. Samkvæmt heimildinni skal aflétta nafnbirtingu samkvæmt beiðni þegar eitt ár er liðið frá birtingu dóms. Aðili sem óskar þess skal senda beiðni til þess héraðsdómstóls sem birti dóminn. Sérstaka reglu um þau atriði sem afmá ber úr dómsúrlausnum er að finna í 5. gr. reglnanna. Þar er kveðið á um að afmá beri úr dómsúrlausnum upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptahagsmuni einstaklinga, sem eðlilegt er að leynt fari. Mat þar að lútandi er í höndum viðkomandi dómara hverju sinni. Hver og einn dómstóll annast birtingu dóma og úrskurða á vefsíðu héraðsdómstólanna og telst ábyrgðaraðili birtingar dómsúrlausna dómara sinna.
Fjallað er sérstaklega um útgáfu dóma Landsréttar í 28. gr. laga um dómstóla. Þar segir að dómar Landsréttar skuli gefnir út ásamt þeim úrlausnum héraðsdómstóla sem við eiga hverju sinni. Við útgáfu dóma skal nema brott úr þeim upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptahagsmuni einstaklinga ellegar lögpersóna, svo og upplýsingar um öryggi ríkisins og varnarmál, sem eðlilegt er að leynt fari eftir reglum sem rétturinn setur. Um tilhögun útgáfunnar fer að öðru leyti eftir ákvörðun Landsréttar að höfðu samráði við dómstólasýsluna.
Þá er fjallað sérstaklega um útgáfu dóma Hæstaréttar í 20. gr. laga um dómstóla. Þar segir að dómar Hæstaréttar skuli gefnir út ásamt þeim úrlausnum Landsréttar og héraðsdómstóla sem við eiga hverju sinni. Við útgáfu dóma skal nema brott úr þeim upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptahagsmuni einstaklinga ellegar lögpersóna, svo og upplýsingar um öryggi ríkisins og varnarmál, sem eðlilegt er að leynt fari eftir reglum sem rétturinn setur. Um tilhögun útgáfunnar fer að öðru leyti eftir ákvörðun Hæstaréttar að höfðu samráði við dómstólasýsluna.
Ákvæði laga um dómstóla gera þannig ráð fyrir því að allir dómar Landsréttar og Hæstaréttar séu birtir. Þá gera lögin ráð fyrir því að dómstigin setji formlegar reglur sem birtar eru þannig að ljóst sé eftir hverju er farið þegar viðkvæmar upplýsingar eru fjarlægðar líkt og upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptahagsmuni einstaklinga ellegar lögpersóna, svo og upplýsingar um mikilvægustu almannahagsmuni á borð við öryggi ríkisins og varnarmál, sem eðlilegt er að leynt fari. Hæstiréttur hefur sett reglur um nafnleynd í útgáfu dóma og úrskurða Hæstaréttar og eru reglur Landsréttar samhljóða þeim að breyttu breytanda.
Rétt er að geta þess að hinn 13. júní 2019 samþykkti Alþingi lagafrumvarp dómsmálaráðherra (þskj. 1243, 783. mál) sem felur í sér breytingu á því fyrirkomulagi sem að framan er lýst þannig að dómstólasýslan muni framvegis setja samræmdar reglur um birtingu dóma og úrskurða allra dómstiganna þriggja.
Í réttarfarslögum er að finna ýmis ákvæði um birtingu og afhendingu persónuupplýsinga. Samkvæmt 14. gr. laga um um meðferð einkamála, nr. 91/1991, er dómurum til að mynda skylt, meðan mál eru rekin fyrir Landsrétti eða héraðsdómi, að láta þeim sem hafa lögvarinna hagsmuna að gæta í té staðfest eftirrit af málsskjölum og úr þingbók eða dómabók gegn greiðslu gjalds. Áður en endurrit úr þingbókum og dómabókum eða eftirrit málsskjala eru afhent öðrum en aðilum máls skal, ef sérstök ástæða er til, afmá úr þeim atriði sem eðlilegt er að leynt fari með tilliti til almanna- og einkahagsmuna.
Samkvæmt 16. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, eiga aðilar og brotaþolar rétt á að fá staðfest endurrit úr þingbók eða dómabók endurgjaldslaust. Dómurum er einnig skylt gegn greiðslu gjalds að láta öðrum í té staðfest endurrit úr dómabók og af úrskurðum og ákvörðunum sem færðar hafa verið í þingbók. Áður en endurrit eru afhent skal, ef sérstök ástæða er til, afmá úr þeim atriði sem eðlilegt er að leynt fari með tilliti til almanna- eða einkahagsmuna, þar á meðal atriði úr endurritum af úrskurðum og ákvörðunum ef það hefði í för með sér hættu á sakarspjöllum að þau kæmust til vitundar almennings. Hið sama á við ef dómar eða aðrar úrlausnir eru birtar opinberlega, svo sem á vefsíðum.
Dómstólasýslan hefur sett reglur um aðgang að upplýsingum og gögnum hjá héraðsdómstólum, nr. 9/2018. Reglurnar eiga við um þá sem ekki eru aðilar að því dómsmáli sem beiðni tekur til en brotaþoli í sakamáli og sakborningar á rannsóknarstigi skoðast sem málsaðilar í þessum skilningi. Umfram það sem mælt er fyrir um í reglunum skulu ekki veittar upplýsingar um einstök mál og gildir það um hvers kyns upplýsingar úr málaskrá viðkomandi dómstóls, þar á meðal um það hvort tilteknir einstaklingar eða lögaðilar eigi eða hafi átt aðild að dómsmáli.
Dómstólasýslan hefur einnig sett reglur um afhendingu og færslu hljóð- og myndskráa frá héraðsdómstólunum, nr. 15/2018. Reglurnar gilda um afhendingu og aðgang ákæruvaldsins, verjenda, lögmanna málsaðila í einkamálum og aðila að hljóð- og myndskrám á grundvelli 4. mgr. 16. gr. og 2. mgr. 202. gr. laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008, og 3. mgr. 14. gr. laga um meðferð einkamála, nr. 91/1991. Verklagsreglurnar gilda einnig um tilfærslu hljóð- og myndskráa á milli dómstiga. Reglurnar er að finna á vefsíðu dómstólasýslunnar.
2. Hvernig er öryggi stafrænna persónuupplýsinga tryggt af hálfu dómstóla?
Vísað er til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
3. Hvaða reglur gilda um þagnarskyldu starfsmanna dómstólanna þegar þeir vinna með persónuupplýsingar sem kunna að falla undir gildissvið fyrrnefndra laga?
Samkvæmt 1. mgr. 136. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, skal opinber starfsmaður, sem segir frá nokkru, er leynt á að fara og hann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu eða varðar embætti hans eða sýslan, sæta fangelsi allt að einu ári. Hafi hann gert það til þess að afla sér eða öðrum óréttmæts ávinnings, eða noti hann slíka vitneskju í því skyni, má beita fangelsi allt að 3 árum. Samkvæmt 18. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er hverjum starfsmanni skylt að gæta þagmælsku um atriði er hann fær vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirmanna eða eðli málsins. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af starfi. Starfsmenn dómstólanna eru þannig bundnir þagnarskyldu lögum samkvæmt, að viðlagðri refsiábyrgð.
Til viðbótar ákvæðum hegningarlaga eru jafnframt í gildi siðareglur dómara, siðareglur dómstólasýslunnar og almennar siðareglur starfsmanna ríkisins. Siðareglur íslenskra dómara voru samþykktar á aðalfundi Dómarafélags Íslands 24. nóvember 2017. Í 3. og 4. gr. reglnanna er m.a. kveðið á um heilindi og velsæmi. Þar segir að dómarar skuli temja sér ráðvendni, heiðarleika og réttsýni og ekki tjá sig um atriði sem þeir fái vitneskju um í starfi og leynt skuli fara. Reglurnar má nálgast á heimasíðu Dómarafélags Íslands.
Siðareglur fyrir starfsmenn dómstóla, nr. 2/2018, eru settar með stoð í 4. mgr. 15. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Samkvæmt c-lið 1. gr. reglnanna skulu starfsmenn vinna störf sín af heilindum, virðingu og heiðarleika og gæta trúnaðar eftir því sem við á. Samkvæmt d-lið sömu greinar skulu starfsmenn fara að löglegum fyrirskipunum um starf sitt og virða þær. Þá segir í b-lið 2. gr. reglnanna að starfsmenn skuli ekki notfæra sér stöðu sína eða upplýsingar, fengnar í starfi, í eiginhagsmunaskyni eða fyrir aðra. Í c-lið sömu greinar segir að starfsmenn skuli ekki rýra trúverðugleika dómstólanna með ámælisverðri framkomu, skeytingarleysi um lög eða virðingarleysi við mannhelgi og mannréttindi. Þá segir í e-lið sömu greinar að starfsmenn virði trúnað við samstarfsfólk og gagnvart vinnustað í samskiptum utan vinnu, þar á meðal við notkun félagsmiðla. Í aðfaraorðum siðareglnanna kemur fram að þær verði að skoða í samhengi við lög um dómstóla, almennar siðareglur starfsmanna ríkisins, nr. 491/2013, sbr. 2. mgr. 15. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, og reglur sem gilda um ákveðna starfsmenn dómstólanna.
Almennar siðareglur starfsmanna ríkisins, nr. 491/2013, voru settar af fjármála- og efnahagsráðherra 22. apríl 2013 á grundvelli 2. mgr. 15. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Reglurnar má nálgast á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands.
4. Hvernig er öryggi gagna á pappírsformi tryggt þegar um er að ræða persónuupplýsingar sem kunna að falla undir gildissvið laganna?
Öryggi gagna í pappírsformi er m.a. tryggt með aðgangsstýringum á vinnurými starfsmanna. Eftir að vinnslu máls er lokið er gengið frá því í samræmi við leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands og gögnin færð í aðgangsstýrðar skjalageymslur. Verkferlar eru fyrir hendi sem taka mið af reglum Þjóðskjalasafns og skjalastefnu dómstólaráðs frá árinu 2012. Nú stendur yfir endurskoðun og samræming verkferla á milli héraðsdómstólanna til þess að tryggja öryggi gagna á pappírsformi, þ.m.t. þegar um er að ræða persónuupplýsingar sem kunna að falla undir gildissvið persónuverndarlaga. Að samræmingu lokinni verður hið nýja verklag innleitt. Persónurekjanlegum gögnum (afritum) sem á að farga er komið í gagnaeyðingu eða þau tætt.