Ferill 922. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2056  —  922. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur um atvinnuleyfi og heilbrigðisþjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd.



     1.      Hversu margar umsóknir bárust um bráðabirgðaatvinnuleyfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd á árinu 2018? Hversu mörg leyfi voru gefin út fyrir þennan hóp og hverjar voru helstu ástæður þess að umsóknum var hafnað? Hver var afgreiðslutími umsókna og hvernig skiptist hann á milli Útlendingastofnunar, Vinnumálastofnunar og verkalýðsfélaganna?
    Árið 2018 bárust Útlendingastofnun 60 umsóknir um bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi frá umsækjendum um alþjóðlega vernd. Útlendingastofnun áframsendir atvinnuleyfisumsóknirnar til Vinnumálastofnunar sem tekur ákvörðum um veitingu atvinnuleyfis. Alls var 32 einstaklingum veitt bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi á síðasta ári en fimm var synjað. Helsta ástæða synjunar var að Vinnumálastofnun hafði synjað um bráðabirgðaatvinnuleyfi. Alls voru 23 umsóknir felldar niður, ýmist af þeirri ástæðu að umsókn var dregin til baka af umsækjanda sjálfum eða umsóknin hafði ekki verið afgreidd þegar umsækjandi yfirgaf landið, eða fékk veitta vernd hér á landi, viðbótarvernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
    Meðalafgreiðslutími umsókna í þeim tilvikum þar sem umsækjanda var veitt leyfi var 59 dagar í heildina en 79 dagar í heildina þegar synjað var um leyfi. Þetta er sá tími frá því að umsókn er lögð inn hjá Útlendingastofnun og þar til leyfi var veitt. Af þessum tíma var hver umsókn að meðaltali í 18 daga í úrvinnslu hjá Vinnumálastofnun en þar af var hún 10 daga í umsagnarferli hjá Eflingu þegar það átti við. Ekki liggja fyrir upplýsingar þegar umsagnir voru sendar til annarra stéttarfélaga.

     2.      Hversu margir umsækjendur um alþjóðlega vernd leituðu til starfsmanna Útlendingastofnunar með ósk um aðgang að heilbrigðisþjónustu árið 2018? Hversu mörgum var vísað áfram til heilbrigðisstofnunar?
    Ekki liggur fyrir hversu margir óskuðu eftir heilbrigðisþjónustu árið 2018 en samkvæmt verklagi Útlendingastofnunar er öllum sem þess óska útvegaður tími á Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins í Mjóddinni. Útlendingastofnun leiðbeinir umsækjendum jafnframt um rétt þeirra til að leita til læknis og geta þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu leitað til heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu en þeir sem búa í Reykjanesbæ geta leitað til læknavaktarinnar þar. Samkvæmt samningnum er umsækjendum um alþjóðlega vernd veitt almenn heilbrigðisþjónusta og sérfræðiþjónusta en læknar á heilsugæslunni, læknavaktinni og göngudeild meta þörf á aðkomu sérfræðilækna og útbúa tilvísanir til þeirra eftir því sem við á.

     3.      Hvaða heilbrigðisstofnanir sinna heilbrigðisþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd?
    Meginstoðin í heilbrigðisþjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd og eina heilbrigðisstofnunin sem Útlendingastofnun hefur gert sérstakan samning við er Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Nú er unnið að gerð samnings um sambærilega þjónustu við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir þá umsækjendur um alþjóðlega vernd sem dvelja í Reykjanesbæ.
    Að fengnum tilvísunum frá læknum fá umsækjendur um alþjóðlega vernd jafnframt sérfræðiþjónustu hjá sérfræðilæknum á Landspítalanum eða læknastofum þeirra, t.d. bæklunarlæknum, skurðlæknum, geðlæknum og tannlæknum. Unnið er að gerð samnings um tannlæknaþjónustu við börn við Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Mæðra-, ung- og smábarnavernd er sinnt á göngudeildinni en konur fá fæðingarþjónustu á Landspítalanum.
    Utan opnunartíma göngudeildar og í neyðartilvikum fá umsækjendur um alþjóðlega vernd þjónustu á læknavöktum í Reykjavík og Reykjanesbæ sem og á bráðamóttöku. Geðheilbrigðisþjónusta er veitt á göngudeild, hjá Domus Mentis og geðdeild Landspítalans. Í bráðatilvikum er hægt að leita til bráðageðdeildar.

     4.      Hefur komið til skoðunar að einfalda ferli við afgreiðslu bráðabirgðaatvinnuleyfa umsækjenda um alþjóðlega vernd og auðvelda þessum hópi aðgang að heilbrigðiskerfinu?
    Útlendingastofnun tekur á móti umsóknum um bráðabirgðadvalar- og atvinnuleyfi frá umsækjendum um alþjóðlega vernd. Uppfylli umsækjandi almenn skilyrði fyrir veitingu bráðabirgðadvalarleyfis samkvæmt lögum um útlendinga áframsendir stofnunin umsóknina um bráðabirgðaatvinnuleyfi til Vinnumálastofnunar til afgreiðslu samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Jákvæð afgreiðsla Vinnumálastofnunar á umsókn um bráðabirgðaatvinnuleyfi er forsenda þess að Útlendingastofnun veiti umsækjanda bráðabirgðadvalarleyfi.
    Útlendingastofnun vinnur nú að því að færa móttöku og afgreiðslu umsókna um bráðabirgðadvalarleyfi úr starfsstöð stofnunarinnar á Dalvegi 18 í Kópavogi, þar sem dvalarleyfi eru afgreidd, og yfir í móttökumiðstöð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Bæjarhrauni 18 í Hafnarfirði, þ.e. þangað sem umsækjendur um vernd sækja almennt þjónustu stofnunarinnar. Þessi breyting kemur til með að einfalda umsóknarferlið fyrir umsækjendur sem munu eiga greiðara aðgengi að upplýsingum um umsókn sína og þurfa ekki að gera sér ferð á Dalveg. Þá felast tækifæri í því að vinna að því að nýta rafrænar lausnir við móttöku og afgreiðslu umsókna um bráðabirgðadvalarleyfi eins og önnur dvalarleyfi.
    Ráðherra hefur þegar sett af stað skoðun á dvalarleyfiskafla útlendingalaga og í þeirri vinnu stendur m.a. til að skoða ákvæði laganna um bráðabirgðadvalarleyfi. Aðgengi umsækjenda um alþjóðlega vernd að heilbrigðisþjónustu er gott eins og farið er yfir í svari við 2. og 3. tölul. fyrirspurnarinnar og telur ráðherra ekki ástæðu til að ráðast í breytingar hvað það varðar að svo stöddu.