Ferill 971. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2063 — 971. mál.
Svar
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um stöðu verkefna áfangastaðaáætlana landshlutanna.
1. Hver er staða verkefna áfangastaðaáætlana landshlutanna?
Áfangastaðaáætlanir landshlutanna (e. DMP – Destination Management Plans) hafa verið unnar á vegum Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála. Allir landshlutar utan höfuðborgarsvæðis hafa skilað inn áætlun og birt afurð verkefnisins sem felur í sér sameiginlega stefnuyfirlýsingu hvers svæðis þar sem m.a. er litið til skipulags, samhæfingar og þróunar þeirra þátta sem geta haft áhrif á upplifun ferðamanna. Höfuðborgarstofa vann þó sambærilega áætlun eftir sömu aðferðafræði. Helstu verkefni sem skilgreind eru í áætlununum varða dreifingu ferðamanna, að laða ferðamenn að svæðum allt árið um kring, samgöngur, innviði, merkingar, öryggi ferðamanna og öflun svæðisbundinna gagna um stöðu greinarinnar sem stuðla að betri áætlanagerð í framtíðinni.
Innleiðingarferli áfangastaðaáætlana hófst á árinu 2018 og er nú unnið að framkvæmd hluta þeirra verkefna sem þar eru skilgreind. Ferðamálastofa styrkir markaðsstofur landshlutanna til ýmist tveggja eða þriggja ára í senn til að vinna að verkefnum úr áfangastaðaáætlunum víða um land. Hluta af þessum verkefnum lýkur á árinu 2019. Ferðamálastofa greiðir auk þess öllum markaðsstofum landshlutanna fyrir að fylgja eftir öðrum forgangsverkefnum áfangastaðaáætlana í sínum landshluta, sinna samþættingu og samstarfi vegna annarra áætlana á svæðunum og sinna árlegu stöðumati á framgangi þeirra tillagna sem settar eru fram í áætlununum.
Í upphafi var markmiðið að setja fram verkefni sem ráðast skyldi í á næstu þremur árum. Þar sem áfangastaðaáætlanir eru lifandi skjöl geta áherslur breyst á áætlunartímabilinu og verkefni bæst við. Eðli ferðaþjónustunnar er margslungið og snertifletir greinarinnar margir eins og má skýrt sjá í sumum áætlananna. Þar er m.a. tekið á samgöngum, stjórnsýslu og þjónustu hins opinbera.
2. Var litið til forgangsröðunar verkefna áfangastaðaáætlana landshlutanna við mat á umsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða?
Við mat á styrkumsóknum í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða (FF) er horft er til þess hvort til staðar eru áfangastaðaáætlanir (DMP).
Samkvæmt lögum og reglugerð um sjóðinn er megináhersla lögð á aðgerðir sem stuðla að náttúruvernd og öryggi ferðamanna. Þessir þættir vega helming við stigagjöf umsóknar. Hinn helmingur stiganna lýtur að mörgum öðrum þáttum, m.a. áfangastaðaáætlunum. Ekki er minnst á áfangastaðaáætlanir í lögum og reglugerð um sjóðinn, en á umsóknareyðublaði er spurt sérstaklega hvort verkefnið/skipulagsvinnan sé unnin í samræmi við aðrar skipulagsáætlanir, heildræna stefnumótun og langtímamarkmið. Gefin eru dæmi um hvað við er átt, t.d. aðalskipulag, deiliskipulag, stjórnunar- og verndaráætlanir og áfangastaðaáætlanir. Komi fram í umsókninni að verkefnið/skipulagsvinnan hafi verið unnin t.d. í samræmi við áfangastaðaáætlun eru gefin stig fyrir það. Þá hefur ráðherra möguleika á að leggja fram sérstakar áherslur við úthlutun úr sjóðnum. Til álita kemur að verkefni á áfangastaðaáætlunum njóti þar ákveðins forgangs.