Ferill 935. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 2086 — 935. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um útgjöld og notkun á almennum og sérsmíðuðum hugbúnaði hjá ráðuneytinu og sendiráðum.
Heildarútgjöld ráðuneytisins og sendiskrifstofa sl. tíu ár nema 354 millj. kr. samkvæmt samantekt á þeim bókhaldslyklum sem slíkur kostnaður er færður á, að meðtöldum árunum 2009 og 2018.
Kostnaður vegna hugbúnaðarkaupa og aðkeyptrar hugbúnaðargerðar er færður á sérstaka tegundalykla í bókhaldi ríkisins. Um er að ræða:
– 55170 hugbúnaður. Á þennan bókhaldslykil færist kostnaður vegna hugbúnaðarkaupa og notendaleyfi fyrir hugbúnað sem keyptur er í verslunum, hugbúnaðarpakkar, þjónustusamningar, Bakvörður, Web Object, Web Trends, Stólpi, Erindreki, Navision o.fl., uppfærsla- og viðhaldssamningar vegna aðkeypts hugbúnaðar.
– 54520 hugbúnaðargerð. Hér er færður kostnaður vegna aðkeyptrar vinnu kerfisfræðinga og önnur sérfræðiþjónusta vegna hugbúnaðargerðar, viðhalds og viðgerða á hugbúnaði, aðstoðar og ráðgjafar vegna hugbúnaðar.
– 54521 hugbúnaðargerð án virðisaukaskatts.
Í bókhaldi ríkisins er ekki greint milli leyfisgjalda annars vegar og þjónustugjalda vegna hugbúnaðar hins vegar og var því ekki unnt við vinnslu svarsins að sundurgreina þennan kostnað. Ráðuneytið vekur einnig athygli á því að í mörgum tilvikum er þjónusta innifalin í leyfisgjaldi eða leyfisgjöld eru innifalin í þjónustusamningi. Það reyndist einnig vandkvæðum bundið að aðgreina kaup á hugbúnaði og leyfisgjöld enda fela kaup á hugbúnaði, eðli málsins samkvæmt, í sér heimild eða leyfi til notkunar á búnaðinum. Af þeim orsökum eru kostnaðartölur vegna hugbúnaðarkaupa og leyfis- og þjónustugjalda ekki sundurgreindar í svörunum. Ráðuneytið vekur einnig athygli á því að ekki er unnt að sérgreina kostnað vegna vinnu starfsmanna við forritun hugbúnaðar. Þessu til viðbótar vill ráðuneytið benda á að hugbúnaðarkaup kunna að hafa verið hluti af vélbúnaðarkaupum í einhverjum tilfella.
1. Hver hafa verið útgjöld ráðuneytisins og sendiráða vegna hugbúnaðarkaupa frá árinu 2009? Hve háum fjárhæðum var varið til kaupa á sérsmíðuðum kerfum annars vegar og til kaupa á almennum hugbúnaði hins vegar?
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
2. Hve háum fjárhæðum vörðu ráðuneytið og sendiráð til greiðslu leyfisgjalda fyrir hugbúnað annars vegar og til greiðslu þjónustugjalda fyrir hugbúnað hins vegar frá árinu 2009?
Eins og kemur fram í inngangi svarsins hefur ekki reynst mögulegt að aðgreina kostnað við leyfisgjöld vegna hugbúnaðar annars vegar og þjónustugjalda vegna hugbúnaðar hins vegar. Um kostnað vegna þessa er að öðru leyti vísað til upplýsinga í töflu í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.
3. Hvaða sérsmíðaða hugbúnað eru ráðuneytið og sendiráð að nota og:
a. hver er eigandi hugbúnaðarins,
b. eftir hvaða hugbúnaðarleyfi er hugbúnaðurinn gefinn út,
c. var hugbúnaðurinn þróaður af verktökum eða af forriturum í starfi innan ráðuneytis eða hjá sendiráði,
d. hver var kostnaðurinn við gerð hugbúnaðarins,
e. hver er tilgangur hugbúnaðarins?
Ráðuneytið og sendiskrifstofur nota nokkur sérsmíðuð hugbúnaðarkerfi og gagnagrunna. Helst mætti nefna kerfi til að halda utan um umsóknir vegna friðargæslu, tengiliðakerfi fyrir sendiráðin, hugtakasafn og gagnagrunn fyrir þróunarsamvinnuskrifstofu fyrir DAC tæk framlög. Að lokum má nefna EES-gagnagrunninn.
a. Utanríkisráðuneytið er í nær öllum tilfellum eigandi þess sérsmíðaðahugbúnaðar sem ráðuneytið og sendiskrifstofur nota.
b. eftir hvaða hugbúnaðarleyfi er hugbúnaðurinn gefinn út,
c. Hugbúnaðurinn er ekki gefinn út eða gerður samkvæmt sérstöku hugbúnaðarleyfi.
d. Hugbúnaðurinn var ýmist þróaður af verktökum eða af starfsmönnum ráðuneytisins.
e. Utanríkisráðuneytið getur ekki með góðu móti sundurliðað þennan kostnað, þar sem kostnaður vegna kaupa á almennum hugbúnaði og vinnu verktaka við sérsmíðaðan hugbúnað hefur verið skráður á sama bókhaldslykil, auk þess sem erfitt er að áætla innri kostnað vegna hugbúnaðargerðar.
f. Tilgangur hins sérsmíðaða hugbúnaðar er að gera ráðuneytinu og sendiskrifstofum kleift að sinna lögbundinni starfsemi sinni.
Alls fóru 20 vinnustundir í að taka þetta svar saman.