Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 42  —  42. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis- og auðlindaráðherra um veiðar á fuglum á válistum.

Frá Ágústi Ólafi Ágústssyni.


     1.      Hversu margir fuglar, skipt eftir fuglategundum, sem finna má á válistum samkvæmt Náttúrufræðistofnun Íslands, brotið niður á einstaka flokka válista, hafa verið veiddir árlega undanfarin 10 ár?
     2.      Hvernig er háttað leyfisveitingum fyrir slíkum veiðum og eftirliti með þeim og hverjir stunda veiðarnar?


Skriflegt svar óskast.