Ferill 72. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 72  —  72. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, með síðari breytingum (upplýsingaskylda og eftirlitsheimildir).

Flm.: Guðmundur Ingi Kristinsson, Inga Sæland.


1. gr.

    2. mgr. 39. gr. laganna fellur brott.

2. gr.

    2. og 3. mgr. 40. gr. laganna falla brott.

3. gr.

    Í stað orðanna „umsækjanda, greiðsluþega eða maka hans“ í 1. málsl. 41. gr. laganna kemur: umsækjanda eða greiðsluþega.

4. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.


Greinargerð.

    Frumvarpið var lagt fram á 149. löggjafarþingi (789. mál) og er nú lagt fram að nýju óbreytt. Með frumvarpinu er lagt til að tilteknar eftirlitsheimildir í lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, verði felldar brott. Nánar tiltekið ákvæði sem heimila Tryggingastofnun ríkisins að afla upplýsinga um tekjur maka umsækjanda eða greiðsluþega samkvæmt lögunum, eða skylda maka til að taka þátt í meðferð máls. Þá verði umsækjandi eða greiðsluþegi ekki látinn bera hallann vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja má til maka hans.
    Það er mat flutningsmanna frumvarpsins að núgildandi ákvæði laganna um upplýsingaskyldu og eftirlitsheimildir gangi of langt í skerðingu á friðhelgi einkalífs umsækjenda og greiðsluþega og rétti til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku, elli, atvinnuleysis, örbirgðar og sambærilegra atvika, sbr. ákvæði 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944. Þá er sú meginregla ákveðin í a-lið 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að virðing skuli borin fyrir meðfæddri göfgi og sjálfræði einstaklinga, þ.m.t. frelsi til að taka eigin ákvarðanir, og sjálfstæði þeirra. Er það mat flutningsmanna að ákvæði núgildandi laga um almannatryggingar séu íþyngjandi og leggi of ríkar kvaðir á einstakling, sem nýtur réttinda samkvæmt samningnum, að afla upplýsinga hjá maka sínum og íþyngi einstaklingum sem bera þurfi hallann af vanrækslu maka á því að sinna upplýsingaskyldu sinni. Lögin heimila þannig frestun á ákvörðun og greiðslu bóta vegna atriða sem ekki verða rakin til umsækjanda eða greiðsluþega sjálfs.