Ferill 98. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 98  —  98. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um jafnræði við launasetningu ólíkra starfsstétta hjá hinu opinbera.

Frá Þorsteini Víglundssyni.


     1.      Hvernig standa viðræður við aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa sveitarfélaganna um leiðir til að tryggja jafnræði við launasetningu ólíkra starfsstétta sem vinna hjá hinu opinbera?
     2.      Til hversu margra funda hefur verið boðað með aðilum vinnumarkaðarins til að ræða þessi mál sérstaklega?
     3.      Hvaða ákvarðanir hafa verið teknar um næstu skref?
     4.      Hver er niðurstaða greiningar á launakjörum ólíkra starfsstétta, m.a. til að draga fram kynbundinn launamun hjá hinu opinbera, sem samþykkt var að ráðast í á grundvelli þingsályktunar sem var samþykkt á Alþingi 11. júní 2018?