Ferill 111. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 111  —  111. mál.




Fyrirspurn


til ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um útgjöld og notkun á almennum og sérsmíðuðum hugbúnaði hjá undirstofnunum.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hver hafa verið útgjöld undirstofnana sem heyra undir ráðherra vegna hugbúnaðarkaupa frá árinu 2009? Hve háum fjárhæðum var varið til kaupa á sérsmíðuðum kerfum annars vegar og til kaupa á almennum hugbúnaði hins vegar?
     2.      Hve háum fjárhæðum vörðu undirstofnanir til greiðslu leyfisgjalda fyrir hugbúnað annars vegar og til greiðslu þjónustugjalda fyrir hugbúnað hins vegar frá árinu 2009?
     3.      Hvaða sérsmíðaða hugbúnað notar hver undirstofnun og:
                  a.      hver er eigandi hugbúnaðarins,
                  b.      eftir hvaða hugbúnaðarleyfi er hugbúnaðurinn gefinn út,
                  c.      var hugbúnaðurinn þróaður af verktökum eða af forriturum í starfi innan ráðuneytis eða stofnunar,
                  d.      hver var kostnaðurinn við gerð hugbúnaðarins,
                  e.      hver er tilgangur hugbúnaðarins?


Skriflegt svar óskast.