Ferill 193. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 197 — 193. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um fjölda íbúða sem fjármálafyrirtæki hafa eignast.
Frá Ólafi Ísleifssyni.
Hver er fjöldi fasteigna, skráðra sem íbúðarhúsnæði, sem hver eftirtalinna aðila hefur orðið eigandi að á tímabilinu 2008–2018 samkvæmt þinglýsingaskrám, að frátöldum fasteignum þar sem fyrri eigandi var lögaðili og að því gættu að einstakar fasteignir séu ekki tvítaldar, sundurliðaður eftir árum og í heild:
1. Íbúðalánasjóður, kt. 661198-3629,
2. Landsbankinn hf., kt. 471008-0280,
3. Íslandsbanki hf., kt. 491008-0160,
4. Glitnir Mortgages Institutional Investor Fund, kt. 581206-8790,
5. Arion banki hf., kt. 581008-0150,
6. Arion Bank Mortgages Institutional Investor Fund, kt. 570106-9610,
7. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf., kt. 540502-2770,
8. Geysir 2008-I Institutional Investors Fund, kt. 440308-9880,
9. Drómi hf., kt. 710309-1670,
10. Hilda ehf., kt. 491109-0250,
11. Eignasafn Seðlabanka Íslands ehf., kt. 701209-2060,
12. Byr sparisjóður, kt. 610269-2229,
13. Byr hf., kt. 620410-0200,
14. Sparisjóðurinn í Keflavík, kt. 610269-3389,
15. Spkef sparisjóður, kt. 620410-0120,
16. AFL – sparisjóður, kt. 610269-3979,
17. Sparisjóður Norðurlands (áður Þórshafnar), kt. 610269-2659,
18. Sparisjóður Strandamanna, kt. 610269-4199,
19. Sparisjóður Svarfdæla, kt. 610269-4949,
20. Sparisjóður Mýrasýslu, kt. 610269-5409,
21. Sparisjóður Vestmannaeyja, kt. 610269-5839,
22. Sparisjóður Höfðhverfinga, kt. 610269-6569,
23. Sparisjóður Ólafsfjarðar, kt. 610269-6809,
24. Sparisjóður Bolungarvíkur, kt. 610269-7379,
25. Sparisjóður Austurlands, kt. 621214-0630,
26. Sparisjóður Suður-Þingeyinga, kt. 530990-2149,
27. Framtíðin lánasjóður hf., kt. 611114-0790,
28. Kvika banki hf., kt. 540502-2930?
Skriflegt svar óskast.