Ferill 246. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 501 — 246. mál.
Svar
forsætisráðherra við fyrirspurn frá Þorgerði K. Gunnarsdóttur um gildi varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Telur þjóðaröryggisráð að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 með viðbótum nái til:
a. netöryggisvarna, sbr. 8. tölul. í þjóðaröryggisstefnu Íslands,
b. ógna vegna hryðjuverka, sbr. 9. tölul. í þjóðaröryggisstefnu Íslands?
2. Hefur þjóðaröryggisráð skilgreint við hvaða aðstæður megi virkja varnarsamninginn? Ef svo er, hvaða aðstæður eru það?
3. Hefur þjóðaröryggisráð skilgreint ferli ákvarðana komi til þess að virkja þurfi samninginn? Ef svo er, hvernig er það ferli?
4. Telur þjóðaröryggisráð rétt að leita eftir því við stjórn Bandaríkjanna að gera viðbótarsamning við varnarsamninginn til þess að skilgreina betur til hvaða ógna gagnvart Íslandi samningurinn tekur og hvernig staðið skuli að ákvörðunum ef á reynir?
5. Ber þjóðaröryggisráð fullt og óskorað traust til Bandaríkjanna til að standa við skuldbindingar sínar samkvæmt varnarsamningnum?
Með hliðsjón af efni fyrirspurnarinnar var haft samráð við þjóðaröryggisráð við vinnslu eftirfarandi svars forsætisráðherra.
Samkvæmt lögum um þjóðaröryggisráð, nr. 98/2016, er ráðið samráðsvettvangur um framkvæmd þjóðaröryggisstefnunnar og þjóðaröryggismál. Ábyrgð á stjórnarframkvæmd einstakra stjórnarmálefna er varða þjóðaröryggi er því óbreytt hjá hlutaðeigandi ráðherra samkvæmt forsetaúrskurði hverju sinni. Er það ekki í samræmi við lögbundið hlutverk ráðsins að álykta um afstöðu til stjórnarmálefna sem heyra undir ábyrgðarsvið tiltekins ráðherra, enda væri slíkt til þess fallið að grafa undan hlutverki þjóðaröryggisráðs sem sameiginlegs samráðsvettvangs um þjóðaröryggismál.
Fyrirspurnin lýtur að inntaki og efnissviði varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 og er beint til forsætisráðherra en spurst er fyrir um afstöðu þjóðaröryggisráðs til málefnis sem er á ábyrgðarsviði utanríkisráðherra, sbr. k-lið 2. tölul. 10. gr. forsetaúrskurðar nr. 119/2018, um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, sbr. einnig 10. gr. forsetaúrskurðar nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra.
Af framangreindu leiðir að þjóðaröryggisráð hefur ekki tekið afstöðu til þeirra atriða sem fyrirspurnin fjallar um. Óski fyrirspyrjandi eftir nánari upplýsingum um málefnið ber að beina fyrirspurn þar að lútandi til utanríkisráðherra, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991.