Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 559  —  406. mál.




Fyrirspurn


til félags- og barnamálaráðherra um skerðingu réttinda almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.

Frá Guðmundi Inga Kristinssyni.


     1.      Hverjar eru skerðingarreglur einstakra réttindaflokka laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007?
     2.      Hve mikið hafa greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga lækkað vegna reglnanna á ári hverju undanfarin fjögur ár og hvernig skiptast þær fjárhæðir á milli réttindaflokka?


Skriflegt svar óskast.