Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 604  —  282. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Álfheiði Eymarsdóttur um gæsluvarðhald og einangrunarvist fanga.


     1.      Hversu margir fangar sættu gæsluvarðhaldi á árunum 2014–2018? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fjölda fanga og heildarlengd gæsluvarðhalds, þ.m.t. eftir fjölda úrskurða um gæsluvarðhald sem og framlengingu á gæsluvarðhaldsúrskurðum.

2014 2015 2016 2017 2018
Fjöldi (upphafs)gæsluvarðhaldsúrskurða 118 135 130 142 158
Fjöldi einstaklinga sem úrskurðaðir eru í gæsluvarðhald 112 130 122 139 148
Dagar úrskurðaðir (með viðbótarúrskurðum) 5335 7408 5894 14975 10150
Dagar í gæsluvarðhaldi, samtals* 4435 6808 5217 12652 8020
*Gæsluvarðhaldi lýkur oft fyrr en úrskurðað hefur verið, svo sem ef endanlegur dómur hefur verið kveðinn upp í málinu eða ef gæsluvarðhaldi er aflétt af öðrum ástæðum.

     2.      Hversu margir fangar sættu einangrunarvist samkvæmt úrskurði sömu ár? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fjölda fanga og lengd einangrunarvistar.

2014 2015 2016 2017 2018
Fjöldi einstaklinga í einangrun 72 87 81 87 109
Meðaltal einstaklinga í einangrun 1,8 2,7 1,9 2,7 2,6
Fjöldi daga í einangrun 607 1000 687 1006 927
Meðaltal daga í einangrun 8,4 11,5 8,5 11,6 8,5
Styst 1 2 2 1 1
Lengst 36 56 43 41 29

     3.      Hversu oft sættu fangar á þessum árum vistun á öryggisgangi fangelsa? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fjölda fanga og lengd vistunar á öryggisgöngum.

2014 2015 2016 2017 2018
Fjöldi einstaklinga 2 1 2 1 1
Lengd vistunar í dögum 58 (29 d. hvor ) 30 60 (30 d. hvor ) 14 90

     4.      Hver tekur ákvarðanir um vistanir á öryggisgangi fangelsa? Á hvaða lagagrundvelli byggjast þær ákvarðanir og hversu algengt er að þær séu framlengdar?
    Samkvæmt 5. mgr. 21. gr. laga um fullnustu refsingu, nr. 15/2016, getur forstöðumaður í öryggisskyni eða vegna sérstakra aðstæðna tekið ákvörðun um að flytja fanga á milli deilda og klefa. Vistun á öryggisdeild má ekki ákvarða til lengri tíma en þriggja mánaða í senn, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 240/2018 um fullnustu refsinga. Á árunum 2014–2018 var vistun á öryggisdeild framlengd í tvígang.

     5.      Telur ráðherra fyrirkomulag gæsluvarðhalds og einangrunarvistar, sem og ákvarðanir um vistanir á öryggisgöngum, samrýmanlegt 3. mgr. 67. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands og 3. og 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu?
    Gæsluvarðhald er þvingunarráðstöfun sem felst í því að sakborningur í sakamáli er sviptur frelsi vegna rannsóknar eða meðferðar máls. Gæsluvarðhald er undantekning frá meginreglunni um frelsi og friðhelgi, sbr. 1. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Gæsluvarðhald er sú þvingunarráðstöfun sem gengur einna lengst í þá átt að skerða réttindi manna og eru henni settar þröngar skorður. Samkvæmt 3. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 97. gr. laga um meðferð sakamála verður ekki gripið til gæsluvarðhalds nema á grundvelli dómsúrskurðar og ber að túlka allar reglur um sviptingu frelsis og sjálfræðis í ljósi grundvallarreglunnar um frelsi og friðhelgi. Fangar í gæsluvarðhaldi hafa ekki hlotið dóm fyrir refsivert brot og þar af leiðandi eru ekki settar frekari skorður við frelsi þeirra en brýna nauðsyn ber til.
    Dómari tekur ákvörðun um einangrunarvistun með úrskurði þegar í upphafi gæsluvarðhalds, sbr. 2. mgr. 98. gr. og b-lið 1. mgr. 99. gr. laga um meðferð sakamála. Einangrun má ekki beita nema hún sé nauðsynleg á grundvelli a–d-liðar 1. mgr. 95. gr. laganna, þ.e. vegna rannsóknarhagsmuna eða til að vernda sakborning eða verjast árásum af hans hálfu. Þær breytingar urðu með lögum um meðferð sakamála að gæsluvarðahaldsfangar geta einungis sætt einangrun eftir úrskurði dómara að tilteknum skilyrðum uppfylltum og tryggir þetta enn frekar réttaröryggi gæsluvarðhaldsfanga. Einangrun er sérstök þvingunarráðstöfun sem ekki skal grípa til nema nauðsyn krefji, enda lýtur hún meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, líkt og önnur þvingunarúrræði og þurfa dómarar og aðrir sem koma að sakamálum að taka mið af þeim sjónarmiðum við störf sín.
    Ein af grundvallarskyldum fangelsisyfirvalda er að tryggja öryggi fanga, sem felst m.a. í því að vernda þá fyrir ofbeldi að hálfu samfanga og tryggja að þeir sæti ekki vanvirðandi meðferð samfanga, sbr. 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, og 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, má vista fanga í öryggisklefa ef nauðsyn krefur til að koma í veg fyrir ofbeldi, hemja ofbeldisfullan mótþróa hans eða hindra að hann skaði sjálfan sig eða aðra. Fangar sem vistaðir eru á öryggisdeild njóta sömu réttinda og fangar vistaðir á öðrum deildum nema réttindi þeirra séu skert með stoð í lögum um fullnustu refsinga. Í ljósi þess að fangar sem vistast á öryggisdeild hafa annaðhvort gerst sekir um alvarleg eða ítrekuð agabrot, eru taldir stefna öryggi fangelsisins í hættu eða eru ekki taldir geta vistast með öðrum föngum vegna hegðunar sinnar hefur þótt nauðsynlegt að kveða á um útivist þeirra sem þar vistast og að iðkun tómstundastarfa, íþrótta o.þ.h. sé að jafnaði á öðrum tímum en annarra fanga, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 240/2018.