Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 605 — 346. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Rósu Björk Brynjólfsdóttur um orkudrykki.
1. Hvaða rannsóknir eða greiningar eru til hjá ráðuneytinu eða embætti landlæknis um áhrif svokallaðra orkudrykkja á heilsufar, þá sér í lagi á börn og ungmenni eða aðra heilsufarslega viðkvæma hópa?
Í júníblaði Talnabrunns embættis landlæknis er vakin athygli á hinni miklu aukningu sem orðið hefur í neyslu orkudrykkja bæði meðal framhaldsskólanema og meðal nema í 8.–10. bekk grunnskóla. Þar kemur fram að samkvæmt upplýsingum frá Matvælastofnun eiga orkudrykkir það sameiginlegt að innihalda koffín og flestir innihalda þar að auki önnur virk efni. Magn koffíns getur verið nokkuð mismunandi eftir drykkjartegundum. Ef koffíns er neytt í miklu magni getur það haft ýmis óæskileg áhrif á líðan og heilsu fólks, getur t.d. valdið hjartsláttartruflunum, hækkuðum blóðþrýstingi, höfuðverk, svima og haft neikvæð áhrif á svefn. Börn og ungmenni eru almennt viðkvæmari fyrir koffíni en fullorðnir og er neysla koffíns því sérstaklega óæskileg fyrir þann hóp.
Í Talnabrunni embættis landlæknis er vitnað í niðurstöður úr rannsókninni Ungt fólk á vegum Rannsókna og greiningar við Háskólann í Reykjavík á neyslu orkudrykkja meðal barna og ungmenna. Samkvæmt niðurstöðum meðal framhaldsskólanema var hlutfall þeirra sem daglega eða oftar neytti orkudrykkja, sem innihalda koffín, 55% árið 2018. Í fyrri könnun, sem gerð var árið 2016, var hlutfallið 22% og er aukningin því umtalsverð. Svipað hlutfall stelpna og stráka neytti orkudrykkja daglega árið 2018 en aukning milli kannana var mun meiri meðal stelpna eða tæplega fjórföld, fór úr 14% árið 2016 í 54% árið 2018. Hjá strákum fór dagleg neysla úr 30% árið 2016 í 55% árið 2018. Í rannsókninni kom jafnframt fram að 78% þeirra sem sofa of lítið (um 7 klukkustundir eða minna) drekka fjóra eða fleiri orkudrykki daglega sem innihalda koffín. Þegar niðurstöður meðal grunnskólanema eru skoðaðar sést að hlutfall nemenda í 8.–10. bekk sem neytti orkudrykkja daglega árið 2018 var 28% sem er aukning frá fyrri könnun sem gerð var 2016 en þá var hlutfallið 16%. Dagleg neysla orkudrykkja eykst með hækkandi aldri hjá báðum kynjum. Árið 2018 var hlutfallið 20% í 8. bekk, 29% í 9. bekk og 35% í 10. bekk. Fleiri strákar neyta orkudrykkja en stelpur.
Á vegum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hefur verið gefin út yfirlitsgrein um áhættu í tengslum við neyslu orkudrykkja, neyslu orkudrykkja og áfengis, aukaverkanir í tengslum við neyslu orkudrykkja, markaðssetningu orkudrykkja og núverandi stefnur. Þá hefur norska vísindanefndin um matvælaöryggi (VKM) gefið út álit um áhættumat á orkudrykkjum og koffíni og Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) gefið vísindalegt álit á öryggi koffíns.
2. Hefur ráðuneytið upplýsingar um tilvik þar sem neysla orkudrykkja hefur haft bein áhrif á heilsufar neytanda, t.d. orsakað yfirlið, hjartsláttartruflanir, krampaflog, nýrnabilun eða jafnvel dauðsföll líkt og skráð hefur verið annars staðar á Norðurlöndum og í nokkrum Evrópulöndum?
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala hafa komið upp nokkur tilvik þar sem einstaklingar hafa leitað á bráðamóttöku með almenn einkenni vegna neyslu orkudrykkja. Algengustu einkenni eru hraður hjartsláttur, óróleikatilfinning, svimi, eirðarleysi og kvíði en engin staðfest alvarleg einkenni af völdum orkudrykkja meðal einstaklinga sem hafa leitað á bráðadeild. Ekki er skráð sérstaklega í sjúkraskrá hvort talið er að einkenni sjúklinga séu af völdum orkudrykkja. Á þessu ári hefur eitrunarupplýsingamiðstöðin á Landspítala fengið þrjú símtöl vegna barna sem drukku orkudrykki, ekkert þeirra þurfti að koma á bráðamóttöku og þau fundu ekki fyrir alvarlegum einkennum.
Ráðuneytið hefur ekki aðrar upplýsingar um tilvik þar sem neysla orkudrykkja hefur haft bein áhrif á heilsufar neytenda hér á landi, t.d. orsakað yfirlið, hjartsláttartruflanir, krampaflog, nýrnabilun eða jafnvel dauðsföll. Þá hafa engin tilvik um líkamleg áhrif orkudrykkja verið tilkynnt embætti landlæknis.
3. Hvernig er eftirliti með sölu orkudrykkja háttað, með tilliti til aldurstakmarkana kaupenda?
Orkudrykkir eru flokkaðir og skilgreindir sem almenn matvæli og heyra því undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Þær reglur gilda fyrir orkudrykki sem innihalda 150 mg/l af koffíni eða meira að merkja skuli vörurnar með orðunum „Inniheldur mikið af koffíni. Ekki æskilegt fyrir börn eða barnshafandi konur eða konur með barn á brjósti.“ Þar á eftir komi upplýsingar um magn koffíns í mg/100 ml og skulu þessar merkingar vera á íslensku. Ekki er bannað að selja börnum og ungmennum þessar vörur. Sterkari orkudrykki, þ.e. drykki sem innihalda 320 mg/l eða meira af koffíni, má ekki selja hér á landi nema með sérstöku leyfi Matvælastofnunar en nokkrar slíkar vörur hafa fengið leyfi. Slíkt leyfi felur í sér að markaðssetning varanna á að einskorðast við fullorðna og að bannað er að selja þessar vörur einstaklingum undir 18 ára aldri. Heilbrigðiseftirlit viðkomandi sveitarfélags hefur eftirlit með að þessum reglum sé framfylgt.
4. Eru áform um að endurskoða reglur um orkudrykki, m.a. varðandi innihald koffíns og táríns og sölu til barna og ungmenna?
Mál er varða almenn matvæli falla undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Embætti landlæknis á fulltrúa í nýsettri áhættunefnd sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um matvæli, fóður, áburð og sáðvöru. Matvælastofnun hefur óskað eftir því að áhættunefndin meti áhættu af koffínneyslu ungmenna. Í svari embættis landlæknis til heilbrigðisráðuneytisins kemur fram embættið telur að ekki ætti að veita leyfi fyrir sölu á orkudrykkjum sem innihalda 320 mg/l eða meira af koffíni og að ekki ætti að selja drykki með koffíni á bilinu 150–320 mg börnum yngri en 18 ára.