Ferill 338. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 667 — 338. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um menningarhús á landsbyggðinni.
1. Hvaða samningar um menningarhús á landsbyggðinni eru í gildi og hvenær falla þeir úr gildi?
Í gildi er samningur sem mennta- og menningarmálaráðuneyti gerði 22. maí 2018 við Fljótsdalshérað um byggingu menningarhúss. Samningurinn gildir til 2022. Framkvæmdir hefjast á næsta ári.
Stofnun Vínlandsseturs í Búðardal hefur verið í undirbúningi undanfarin ár og stefnt er að opnun 23. apríl 2020. Vínlandssetur fékk 30 millj. kr. á fjárlögum ársins 2018 með samþykkt Alþingis að tillögu fjárlaganefndar. Að auki hafa önnur ráðuneyti veitt samtals 40 millj. kr. viðbótarframlag til sóknaráætlunar Vesturlands í þessu skyni. Fyrir liggur tillaga fjárlaganefndar um 20 millj. kr. framlag á fjárlögum 2020.
2. Hyggst ráðherra endurnýja gildandi samninga og þá sem fallnir eru úr gildi?
Ráðuneytið hyggst ekki endurnýja samninga um byggingu menningarhúsa sem fallnir eru úr gildi þar sem samningar hafa verið uppfylltir með byggingu menningarhúsa á Ísafirði, Akureyri, Vestmannaeyjum og í Reykjavík.
3. Eru fyrirhugaðir nýir samningar um menningarhús á landsbyggðinni?
Samkomulag við sveitarfélagið Skagafjörð um byggingu menningarhúss í Skagafirði er í undirbúningi. Einnig er verið að skoða aðkomu ríkisins að uppbyggingu menningarsalar Suðurlands á Selfossi en fyrir liggur tillaga fjárlaganefndar um 5 millj. kr. framlag á fjárlögum 2020 til hönnunar salarins.