Ferill 464. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 833 — 464. mál.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um kostnað vegna utanlandsferða þingmanna og forseta þingsins.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur kostnaður Alþingis verið sl. 10 ár, sundurliðað eftir árum, annars vegar vegna utanlandsferða þingmanna á vegum þingsins og hins vegar utanlandsferða embættis forseta Alþingis?
Yfirlitið sýnir kostnað við ferðir þingmanna og embættis forseta Alþingis og eru upphæðir á verðlagi hvers árs. Undir kostnað við ferðir þingmanna fellur jafnframt kostnaður við ferðir starfsfólks sem fylgja þingmönnum. Þá fellur jafnframt undir kostnað við ferðir á vegum embættis forseta allur kostnaður við ferðir þeirra þingmanna sem eru í fylgd með forseta ásamt starfsfólki sem er með í ferð.
| Ár | Þingmenn | Embætti forseta | Samtals |
| 2009 | 24.780.159 | 7.764.860 | 32.545.019 |
| 2010 | 30.186.506 | 13.806.719 | 43.993.225 |
| 2011 | 40.172.579 | 10.741.507 | 50.914.086 |
| 2012 | 51.928.740 | 12.063.049 | 63.991.789 |
| 2013 | 56.724.804 | 9.712.789 | 66.437.593 |
| 2014 | 53.358.129 | 8.475.490 | 61.833.619 |
| 2015 | 68.206.913 | 6.149.640 | 74.356.553 |
| 2016 | 53.404.137 | 6.359.964 | 59.764.101 |
| 2017 | 38.877.332 | 4.239.488 | 43.116.820 |
| 2018 | 52.404.359 | 8.055.995 | 60.460.354 |