Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 840  —  504. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um nefndir og starfs- og stýrihópa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hvaða nefndir og starfs- og stýrihópar á málefnasviði ráðherra hafa verið sett á fót á yfirstandandi kjörtímabili og hver eru hlutverk þeirra?

    Á yfirstandandi kjörtímabili hefur heilbrigðisráðherra skipað alls 33 nefndir, starfs- og stýrihópa.
    Einn starfshópur var settur á fót árið 2017, 15 nefndir og hópar árið 2018 og 17 árið 2019. Af þessum 33 hafa 15 hópar lokið störfum.
    Nefndir, starfs- og stýrihópar eru eftirfarandi:

Starfshópur um menntun sjúkraliða.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 13. desember 2019.
    Á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála 15. ágúst 2019 kynnti heilbrigðisráðherra tillögur sínar um starfshópa til að fjalla um menntunarmál heilbrigðisstétta. Á fundinum voru rædd áform um samstarf mennta- og menningarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis á þessu sviði og m.a. stofnun starfshóps um menntun sjúkraliða og tillögur um viðbótarmenntun á tilteknum sviðum. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur um menntun og viðbótarmenntun sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra sjúkraliða.

Starfshópur um stefnumótun í barneignarþjónustu.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 12. desember 2019.
    Hér á landi liggur ekki fyrir stefna varðandi fjölda og staðsetningu skilgreindra fæðingarstaða á landsvísu né yfirlýst stefna um þá þjónustu og aðbúnað sem konum ætti að standa til boða við fæðingar. Auk þess þarf að styrkja samfellu í þjónustunni milli meðgönguverndar, fæðingarhjálpar og sængurleguþjónustu.
    Stefna í barneignarþjónustu á landsvísu skal byggjast á nýútgefinni heilbrigðisstefnu og taka þar m.a. mið af áherslum ráðherra á rétta þjónustu á réttum stað, skilvirk þjónustukaup og gæði í fyrirrúmi. Auk þess skal stefnumótunin vinnast í takt við stefnumótun í utanspítalaþjónustu sem nú er yfirstandandi.
    
Starfshópur sem falið er að vinna að aðgerðaáætlun til úrbóta vegna ábendinga umboðsmanns Alþingis í tilefni af OPCAT-eftirliti með geðsviði Landspítala.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 4. desember 2019.
    Bókun við samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (OPCAT, Optional Protocol to the Convention against Torture and other Inhuman or Degrading Treatment or Punishment) var undirrituð af hálfu Íslands 23. september 2003. Með þingsályktun 19. desember 2015 fól Alþingi ríkisstjórninni að fullgilda bókunina fyrir Íslands hönd. Forsætisnefnd Alþingis hefur falið umboðsmanni Alþingis að hafa eftirlit á grundvelli bókunarinnar frá árinu 2018. Með bréfi er barst heilbrigðis-, dómsmála- og félags- og barnamálaráðherrum 15. október 2019 greindi umboðsmaður Alþingis frá heimsókn sinni á geðsvið Landspítala á Kleppi dagana 29.–31. október 2018. Með bréfinu fylgdi ítarleg skýrsla um umrædda heimsókn og tilteknum ábendingum og tilmælum beint til Landspítala, heilbrigðis-, dómsmála- og félagsmálaráðherra. Ráðherrar heilbrigðismála, dómsmála og félagsmála hafa ákveðið að ráðuneyti þeirra vinni saman að rýni og áætlun til úrbóta.
    
Starfshópur um menntun hjúkrunarfræðinga.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 12. desember 2019.
    Á fundi ráðherranefndar um samræmingu mála 15. ágúst 2019 kynnti heilbrigðisráðherra tillögur sínar um starfshópa til að fjalla um menntunarmál heilbrigðisstétta. Á fundinum voru rædd áform um samstarf mennta- og menningarmálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis á þessu sviði og m.a. stofnun starfshóps um menntun hjúkrunarfræðinga og aðgerðir til að fjölga útskrifuðum hjúkrunarfræðingum. Hlutverk starfshópsins er að koma með tillögur sem leitt geta til fjölgunar útskrifaðra hjúkrunarfræðinga. Stefnt er að því að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra fyrir 1. mars 2020.
    
Starfshópur um heimildir til markaðssetningar bragðefna í rafrettum.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 31. október 2019.
    Starfshópnum er falið að meta hvort takmarka eigi heimildir til markaðssetningar bragðefna í rafrettum og gera tillögu um með hvaða hætti slíkt skuli gert.
    
Starfshópur um sérfræðinám lækna og framtíðarmönnun.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 17. október 2019.
    Starfshópnum er ætlað að kanna stöðu framhaldsmenntunar lækna hér á landi og koma með tillögur um það hvernig hægt sé að tryggja nægilegt framboð af læknum með framhaldsmenntun til þess að unnt sé að manna íslenska heilbrigðiskerfið. Sérstaklega skal huga að framhaldsmenntun heilsugæslulækna og til hvaða aðgerða þurfi að grípa til þess að tryggja mönnun á heilsugæslustöðvum út um land. Þá skal hópurinn huga að því hvernig hægt sé að halda áfram uppbyggingu sérnáms lækna hér á landi. Í starfi sínu skal hópurinn hafa heilbrigðisstefnu til ársins 2030 til hliðsjónar.

Sérfræðingahópur um fjarheilbrigðisþjónustu.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 8. október 2019 til þriggja ára.
    Um er að ræða ráðgefandi hóp sérfræðinga vegna uppbyggingar og innleiðingar á fjarheilbrigðisþjónustu um land allt. Hlutverk hópsins er m.a. að greiða fyrir upplýsingagjöf og vera til samráðs og ráðgjafar eftir þörfum við uppbyggingu á fjarheilbrigðisþjónustu.
    
Starfshópur um stefnumótun í sjúkraflutningum til ársins 2030.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 3. október 2019.
    Hlutverk hópsins er að móta tillögur að framtíðarskipulagi sjúkraflutninga á Íslandi.
    
Starfshópur um betri mönnun hjúkrunarfræðinga.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 17. september 2019.

Starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins til að vinna að tillögum varðandi betri mönnun hjúkrunarfræðinga.

Starfshópur sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um slysatryggingar almannatrygginga, nr. 45/2015, og móta tillögur að nýju frumvarpi til laga um slysatryggingar almannatrygginga.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 9. september 2019.
    Helstu verkefni hópsins eru endurskoðun slysahugtaks laganna, endurskoðun tilvísana laganna í önnur lög, endurskoðun á ákvæðum er varða bótarétt vegna slysa við ferðir til og frá vinnu, afmörkun hugtaka og atvinnusjúkdóma og endurskoðun á ákvæðum er varða örorkumat varanlegrar örorku slysatrygginga almannatrygginga.
    
Verkefnastjórn um útfærslu á fyrirliggjandi tillögum og ákvörðunum um breytt skipulag á stjórnun, staðsetningu og framkvæmd skimana fyrir krabbameinum.
Skipuð af heilbrigðisráðherra 3. september 2019.
    Þær tillögur og ákvarðanir sem fyrir liggja fyrir verkefnastjórninni eru tillögur skimunarráðs og landlæknis ásamt ákvörðun ráðherra og landlæknis varðandi tiltekna þætti tillagna skimunarráðs.
    
Starfshópur sem falið er að semja drög að stefnu í endurhæfingu á Íslandi.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 26. ágúst 2019.
    Hlutverk starfshópsins er m.a. að gera samantekt um þá endurhæfingarþjónustu sem til staðar er á landinu, umfang hennar, kostnað við hana og árangur. Greina styrk- og veikleika í skipulagi endurhæfingarþjónustu og benda á leiðir til að bæta nýtingu þeirra endurhæfingarúrræða sem til eru, bæði hvað varðar árangur og kostnað og bæta samfellu í endurhæfingu einstaklinga.
    
Starfshópur um útfærslur á þvingunarúrræðum er felast í lögræðislögum.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 30. júlí 2019.
    Starfshópur sem á að meta hvort þörf sé á að setja frekari leiðbeiningar um útfærslur á þvingunarúrræðum er felast í lögræðislögum, nr. 71/1997. Í 28. gr. lögræðislaganna er fjallað um meðferð nauðungarvistaðs manns á sjúkrahúsi auk þess sem þar er að finna heimild til handa heilbrigðisráðherra til að setja nánari reglur um þvingaða lyfjagjöf og aðra þvingaða meðferð.
    
Nefnd um samstarfssamning milli Grænlands og Íslands á sviði heilbrigðisþjónustu.
Skipuð af heilbrigðisráðherra 3. apríl 2019.

Vinnuhópur vegna breytinga á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sálfræðinga og skilyrði til að hljóta starfsleyfi og sérfræðileyfi nr. 1130/2012.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 15. janúar 2019.
    Hlutverk vinnuhópsins er að kanna möguleika á að bæta við ákvæði um 12 mánaða verklega þjálfun undir handleiðslu, að loknu tveggja ára framhaldsnámi.
    
Starfshópur til að gera tillögur að skipulagningu líknar- og lífslokameðferðar á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Suðurlandi og Vesturlandi.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 7. janúar 2019.
Starfslok: 28. nóvember 2019.
    Hlutverk hópsins var m.a. að taka saman yfirlit yfir þá þjónustu sem stendur sjúklingum, sem eru í þörf fyrir líknar- og lífslokameðferð og búa á starfsvæði umræddra stofnana, til boða
    
Starfshópur um minnkun fordóma í garð fólks með geðraskanir.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 29. október 2018.
    Hlutverk starfshópsins er að finna gagnreyndar aðferðir til að minnka fordóma í garð fólks með geðraskanir, bæði meðal almennings og starfsfólks heilbrigðis- og félagsþjónustu.
    
Stýrinefnd um þróun rafrænnar sjúkraskrár á árunum 2018–2020.
Skipuð af heilbrigðisráðherra 13. mars 2018.
    Stýrinefndinni er ætlað að vera stefnumótandi á sviði þróunar á rafrænni sjúkraskrá, vinna aðgerðaráætlun og framfylgja henni.
    
Nefnd vegna endurskoðunar tveggja reglugerða, þ.e. reglugerðar nr. 850/2002 um skömmtun lyfja annars vegar og hins vegar reglugerðar nr. 241/2004, um val, geymslu og meðferð lyfja á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum.
Skipuð af heilbrigðisráðherra 23. janúar 2018.
    Hlutverk nefndarinnar er að endurskoða þessar tvær reglugerðir, þar sem þær skarast að sumu leyti.
    
Vinnuhópur vegna endurskoðunar á fjármögnunarlíkani um rekstur heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 12. júní 2019.
Starfslok: 29. nóvember 2019.
    Vinnuhópurinn hafði það hlutverk að endurskoða fjármögnunarlíkan um rekstur heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að fara yfir gæðaviðmið líkansins og gera tillögur að nýjum viðmiðum sem gætu komið til framkvæmda í ársbyrjun 2020. Þá er hópnum ætlað að fara yfir útreikninga félagsþarfavísitölu. Vinnuhópnum var jafnframt ætlað að móta skýrara verklag við skráningar sjúkdómsgreininga í Sögukerfið og að samræma verklag við skráningu í sjúkraskrárkerfið.
    
Starfshópur um hvernig megi draga úr fordómafullri umræðu um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 25. október 2018.
Starfslok: 31. október 2019.
    Starfshópur um hvernig megi draga úr fordómafullri umræðu um geðheilbrigðismál í fjölmiðlum, sbr. stefnu og aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum sem samþykkt var á Alþingi árið 2016. Hlutverk hópsins var að setja fram ábendingar fyrir fjölmiðla um hvernig unnt er að fjalla um geðheilbrigðismál án þess að alið sé á fordómum.

Samstarfsráð um Landspítalaverkefni.
Skipað af heilbrigðisráðherra 24. apríl 2018.
Starfslok: Lagt niður með bréfi dags. 18. október 2019.
    Aukið samráð á mismunandi stigum er lykilatriði í átt til sameiginlegs skilnings varðandi þær áskoranir sem blasa við í Landspítalaverkefninu. Í lögum nr. 64/2010, um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut, segir m.a. að stjórn félagsins skuli „eins og unnt er vinna að verkefnum skv. [1. mgr. 1. gr.] í samráði og samvinnu við helstu hagsmunaaðila verkefnisins“. Landspítalaverkefnið hefur til að uppfylla m.a. þann þátt laganna viðhaft notendastudda hönnun og umfangsmikið samráðshópakerfi, sem á sér ekki hliðstæðu í öðrum hönnunarverkefnum á vegum opinberra aðila hér á landi. Með samstarfsráði vill heilbrigðisráðherra styrkja enn frekar samvinnu aðila en einnig að auka og efla yfirsýn velferðarráðuneytisins yfir framgang verkefnisins. Þá er háskólastarfsemin, þ.e. rannsóknir, vísindi og kennsla, samhæfð uppbyggingunni og mikilvæg aðkoma háskólasamfélagsins að verkefninu.
    
Starfshópur til að fjalla um endurskoðun á fyrirkomulagi varðandi hjálpartæki.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 13. júní 2018.
Starfslok: 4. október 2019.
    Tilgangur og markmið hópsins var heildarendurskoðun á fyrirkomulagi varðandi hjálpartæki m.a. að teknu tilliti til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sjálfstæðs lífs, samfélags- og atvinnuþátttöku, verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga, jafnræðis og tækniþróunar.
    
Starfshópur til að gera tillögu að stefnu og aðgerðaráætlun fyrir vísindarannsóknir á heilbrigðissviði.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 26. apríl 2018.
Starfslok: 16. september 2019.
    Verkefni starfshópsins var að ljúka vinnu fyrri nefndar við gerð stefnu í vísindarannsóknum á heilbrigðissviði og vinna auk þess tillögur að aðgerðaráætlun á grundvelli stefnunnar.
    
Starfshópur til að útfæra skipulag á þjónustu vegna heyrnar- og talmeina.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 5. maí 2018.
Starfslok. Lauk störfum í júlí 2019.
    Starfshópurinn er skipaður fagaðilum sem hefur það hlutverk að leggja fram tillögu að útfærslu á þjónustu vegna heyrnar- og talmeina.
    
Starfshópur um ákominn heilaskaða.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 8. júní 2018.
Starfslok: 4. júní 2019.
    Hlutverk hópsins var að greina stöðu þjónustu við fólk með ákominn heilaskaða og setja fram tillögur að úrbótum.

Vinnuhópur vegna áframhaldandi vinnu í kjölfar úttektar KPMG fyrir embætti landlæknis.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 24. september 2018.
Starfslok: 24. maí 2019.
    Í kjölfar skýrslu KPMG, „Embætti landlæknis, mat á InterRAI-mælitækjum og færni- og heilsumati“ frá maí 2018, þar sem framkvæmt var heildarmat á InterRAI-mælitækjum og úttekt gerð á færni- og heilsumati var ákveðið að stofna vinnuhóp með það að markmiði að vinna að úrbótum varðandi notkun á InterRai-mælitækjum og framkvæmd við færni- og heilsumat.

Starfshópur um endurskoðun 12. og 13. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 19. júlí 2018.
Starfslok: 26. febrúar 2019.
    
Starfshópur sem ætlað er að endurskoða ákvæði 12. og 13. gr. laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu, með sérstaka áherslu á að skýra nánar heimildir til kvörtunar til embættis landlæknis vegna heilbrigðisþjónustu.
    
Stýrihópur vegna vinnu við gerð heilbrigðisstefnu og verkefnahópur vegna vinnu við gerð heilbrigðisstefnu.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 12. apríl 2018.
Starfslok: 15. janúar 2019.
    Ráðherra ákvað að ráðast í að móta skýra og markvissa heilbrigðisstefnu sem verði hluti af samfélagssáttmála og snúist um jafnt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, óháð efnahag eða búsetu fólks og tryggi skynsamlega nýtingu almannafjár. Tveir hópar verða skipaðir vegna vinnu við gerð heilbrigðisstefnunnar, annars vegar stýrihópur verkefnisins og hins vegar verkefnahópur.
    
Starfshópur um mögulega aukna aðkomu Landhelgisgæslu Íslands (LHG) að sjúkraflugi.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 9. febrúar 2018.
Starfslok: 3. september 2018.
    Verkefni hópsins er að meta mögulegan ávinning, faglegan og fjárhagslegan, af aukinni aðkomu LHG að sjúkraflugi, bæði með þyrlum og fastvængjum. Jafnframt meti hópurinn aðra mögulega kosti varðandi sjúkraflug með þyrlum, m.a. með hliðsjón af tillögum þeim sem lagðar voru fram í skýrslu um sjúkraflutninga með þyrlum dags. 1. júní 2017.
    
Starfshópur til að stemma stigu við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 7. febrúar 2018.
Starfslok: 24. maí 2018.
    Starfshópnum var falið að gera tillögur að aðgerðum til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja.

Starfshópur um tannheilsu lífeyrisþega.
Skipaður af heilbrigðisráðherra 28. febrúar 2018.
Starfslok: 9. apríl 2018.
    Heilbrigðisráðherra skipar starfshóp til að fjalla um aukna greiðsluþátttöku ríkisins í tannlækningum aldraðra og öryrkja. Verkefni hópsins er gerð tillagna um hvernig megi tryggja að fjárframlög vegna kostnaðar aldraðra og öryrkja vegna tannheilsu nýtist sem best, svo þörfum þessara hópa fyrir tannlæknaþjónustu verði sinnt sem best.
    
Starfshópur um undirbúning útboðs á rekstri sjúkrahótels á Landspítalalóð.
Skipaður af heilbrigðisráðherra frá 14. desember 2017.
Starfslok: Fyrri hluta árs 2018.
    Verkefni hópsins var að undirbúa útboð fyrir rekstur sjúkrahótels.