Ferill 378. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 842  —  378. mál.




Svar


félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Ólafi Ísleifssyni um skerðingar á lífeyri almannatrygginga.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hversu mikið skertist lífeyrir almannatrygginga á árinu 2018 vegna:
                  a.      atvinnutekna lífeyrisþega,
                  b.      greiðslna til lífeyrisþega úr lífeyrissjóðum,
                  c.      tekna lífeyrisþega annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
     2.      Hversu margir í heild og hversu hátt hlutfall lífeyrisþega sætti skerðingum vegna:
                  a.      atvinnutekna,
                  b.      greiðslna úr lífeyrissjóðum,
                  c.      tekna annarra en atvinnutekna og greiðslna úr lífeyrissjóðum?
    Svör óskast sundurliðuð eftir því hvort ræðir um elli-, örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega.


    Hér á eftir er tafla sem sýnir skerðingu lífeyris almannatrygginga á árinu 2018 vegna þeirra tekjutegunda sem fyrirspurnin lýtur að. Taflan sýnir jafnframt fjölda og hlutfall þeirra lífeyrisþega sem sættu skerðingum vegna umræddra tekna. Svör eru sundurliðuð eftir því hvort um er að ræða elli-, örorku- eða endurhæfingarlífeyrisþega.

Skerðing Fjöldi skertir Fjöldi alls Hlutfall skertra
Ellilífeyrisþegar
Atvinnutekjur 1.076 1.442 35.849 4,0%
Lífeyrissjóðstekjur 34.192 33.189 35.849 92,6%
Allar aðrar tekjur 4.639 30.952 35.849 86,3%
Allar tekjur 39.114 33.859 35.849 94,4%
Örorkulífeyrisþegar
Atvinnutekjur 4.074 5.089 19.400 26,2%
Lífeyrissjóðstekjur 8.663 9.565 19.400 49,3%
Allar aðrar tekjur 1.096 9.305 19.400 48,0%
Allar tekjur 15.726 18.141 19.400 93,5%
Endurhæfingarlífeyrisþegar
Atvinnutekjur 278 678 1.937 35,0%
Lífeyrissjóðstekjur 414 408 1.937 21,1%
Allar aðrar tekjur 92 1.262 1.937 65,2%
Allar tekjur 881 1.819 1.937 93,9%

     Taflan er fengin frá Tryggingastofnun ríkisins og miðast við réttindastöðu í júlí 2018.