Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 844 — 406. mál.
Svar
félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Guðmundi Inga Kristinssyni um skerðingu réttinda almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
1. Hverjar eru skerðingarreglur einstakra réttindaflokka laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007?
Í töflu 1 má sjá skerðingarreglur einstakra réttindaflokka samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð. Í töflunni koma fram sértæk frítekjumörk vegna einstakra tekjutegunda, almennt frítekjumark og skerðingarhlutföll hvers bótaflokks fyrir sig. Upphæðir eru í krónum á mánuði.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 1. Skerðingarreglur einstakra réttindaflokka samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð.
Í lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, eru frádráttarliðir og frítekjumörk skilgreind sem árstekjur. Í töflu 1 eru allar útskýringar þó miðaðar við mánaðartekjur og er miðað við 1/ 12 af þeim upphæðum sem fram koma í lögunum. Það er gert þar sem mánaðarlegar fjárhæðir eru almennt notaðar í umræðu bæði um tekjur og bætur.
Lífeyrissjóðstekjur hafa ekki áhrif á fjárhæð örorkulífeyris, endurhæfingarlífeyris, aldurstengdrar örorkuuppbótar og örorkustyrks. Í töflunni er þetta sýnt sem 100% frádráttur í stað frádráttar (frítekjumarks) í krónum.
Heimill frádráttur frá tilteknum tekjuliðum er oft kallaður „frítekjumark“ en er hér kallaður „sértækt frítekjumark“ til aðgreiningar frá almennu frítekjumarki sem gildir um allar tekjur lífeyrisþega.
Meginreglan er sú að allar skattskyldar tekjur hafa áhrif á útreikning bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar. Þó eru þar undanskilin fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, séreignarlífeyrissparnaður, bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar, bætur samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga og bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð. Í einföldu máli má segja að það séu tekjur af atvinnu, tekjur úr lífeyrissjóðum, fjármagnstekjur og tekjur samkvæmt skattframtali sem kallast aðrar tekjur, sem skerða greiðslur úr bótaflokkum lífeyristrygginga.
Frá þessu eru þó undantekningar. Sérstakur frádráttur frá tilteknum flokkum tekna getur verið heimill en sá frádráttur getur þó ekki verið hærri en nemur nettótekjum lífeyrisþega í viðkomandi bótaflokki. Með „nettótekjum“ er fyrst og fremst átt við tekjur af atvinnu þar sem tekið hefur verið tillit til ýmissa frádráttarliða, t.d. vegna iðgjalda í lífeyrissjóð og séreignarlífeyrissparnað, og einnig frádráttur frá dagpeningum, bifreiðastyrk, námsstyrkjum o.s.frv.
Við útreikning sérstakrar uppbótar til framfærslu örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega skv. 2. mgr. 9. gr. laga um félagslega aðstoð teljast til tekna 65% af tekjum lífeyrisþega. Bætur samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð teljast þó að fullu til tekna við útreikning uppbótarinnar, að því undanskildu að 50% af fjárhæð aldurstengdrar örorkuuppbótar teljast ekki til tekna.
2. Hve mikið hafa greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga lækkað vegna reglnanna á ári hverju undanfarin fjögur ár og hvernig skiptast þær fjárhæðir á milli réttindaflokka?
Í töflu 2 kemur fram hversu mikið greiðslur úr ríkissjóði til einstaklinga hafa lækkað vegna framangreindra reglna á ári hverju undanfarin fjögur ár auk ársins 2019 og hvernig þær fjárhæðir skiptast á milli réttindaflokka. Upphæðir eru í milljónum króna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Tafla 2. Lækkun greiðslna úr ríkissjóði síðastliðin fjögur ár auk ársins 2019 í milljónum króna, vegna reglna um tekjuskerðingar.
Til nánari útskýringar má nefna sem dæmi að greiðslur úr ríkissjóði hefðu orðið 60.362 millj. kr. hærri á árinu 2019 ef reglna um skerðingar bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar vegna tekna lífeyrisþega nyti ekki við.
Þá ber að geta þess að þær fjárhæðir sem koma fram í töflu 2 ná einungis til þeirra sem eru með svokallaðan úrskurð um viðkomandi bótaflokka hjá Tryggingastofnun ríkisins. Til viðbótar við það er talsverður hópur einstaklinga sem ekki hefur sótt um bætur hjá stofnuninni af þeirri ástæðu að þeir eru meðvitaðir um að þeir eiga ekki rétt á greiðslum vegna tekna þótt öll önnur skilyrði fyrir bótagreiðslum séu uppfyllt, t.d. skilyrði um aldur eða örorku.