Ferill 442. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 878  —  442. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Helgu Völu Helgadóttur um skiptingu velferðarráðuneytis í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hver hefur kostnaður félagsmálaráðuneytisins verið við skiptingu velferðarráðuneytis í heilbrigðisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti?
     2.      Hver hefur kostnaður verið við tilfærslu málaflokka milli ráðuneyta, þ.e. tilfærslu húsnæðismála frá umhverfis- og auðlindaráðuneyti til félagsmálaráðuneytis og vegna áherslubreytinga félagsmálaráðuneytis á málefnum barna?
     3.      Hversu margir starfsmenn hafa verið ráðnir til starfa í fullt starf, hlutastarf eða verkefnatengt starf eftir skiptingu ráðuneytanna?
    Óskað er eftir að allur kostnaður við skiptinguna verði tilgreindur, hvort tveggja við starfsstöðvar og starfsfólk.


    Við 2. og 3. umræðu fjárlaga fyrir árið 2019 samþykkti Alþingi að veita samtals 97,6 millj. kr. til að mæta beinum kostnaði við uppskiptingu velferðarráðuneytisins (VEL) í tvö ráðuneyti félags- og heilbrigðismála sem tóku til starfa 1. janúar 2019. Að baki þessari viðbótarfjárveitingu lá áætlaður beinn launakostnaður vegna ráðuneytisstjóra, ritara ráðuneytisstjóra, tveggja skrifstofustjóra og upplýsingafulltrúa, auk rekstrarkostnaðar sem gert er ráð fyrir að nemi um 10% af launakostnaði. Ráðningar í fyrrgreindar fimm viðbótarstöður gengu eftir hjá félagsmálaráðuneytinu (FRN), en fyrir voru þessar stöður í velferðarráðuneytinu sem fluttust yfir til heilbrigðisráðuneytis (HRN). Samkvæmt gildandi stjórnskipulagi eru starfandi átta skrifstofur í ráðuneytunum tveimur, fjórar í hvoru, en fyrir voru sex skrifstofur í velferðarráðuneyti.
    Töluverð hreyfing hefur verið á starfsfólki ráðuneytanna frá því að uppskipting þeirra varð að veruleika, starfsfólk hefur ýmist hætt, m.a. vegna aldurs eða horfið til annarra starfa og nýtt fólk komið í staðinn. Til að nálgast breytingar á fjölda starfsmanna sem orðið hafa í kjölfar uppskiptingarinnar voru sótt gögn úr launahluta ORRA, bókhaldskerfi ríkisins, um fjölda starfandi í ráðuneytunum á tilteknum tíma. Fjölda starfsmanna og stöðugilda má sjá í eftirfarandi töflu:


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.



    Vakin er athygli á því að starfsmönnum fækkar frá desember 2018 til febrúar 2019. Það skýrist aðallega af því að jafnréttismál fluttust frá velferðarráðuneytinu til forsætisráðuneytisins, ásamt starfsmönnum sem málaflokknum sinntu, hinn 1. janúar 2019 um leið og ráðuneyti félags- og heilbrigðismála tóku til starfa.