Ferill 555. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 914  —  555. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018 (þagnarskylda persónuverndarfulltrúa).

Frá allsherjar- og menntamálanefnd.


1. gr.

    1. mgr. 36. gr. laganna orðast svo:
    Persónuverndarfulltrúa er óheimilt að segja frá nokkru því sem hann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu og leynt á að fara. Enn fremur hvílir þagnarskylda á persónuverndarfulltrúa skv. X. kafla stjórnsýslulaga eftir því sem við á.

2. gr.

    Lög þessi taka þegar gildi.

Greinargerð.

    Tilefni frumvarpsins er að með lögum nr. 71/2019, um breytingu á stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, með síðari breytingum, var nýjum kafla um tjáningarfrelsi og þagnarskyldu bætt við stjórnsýslulög og um leið gerð sú breyting að 1. mgr. 36. gr. persónuverndarlaga skyldi orðast svo: Á persónuverndarfulltrúa hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga.
    Þar sem persónuverndarfulltrúar eru ekki allir opinberir starfsmenn og falla því ekki allir undir gildissvið stjórnsýslulaga telur nefndin nauðsynlegt að lagfæra ákvæðið. Fyrir breytingu kvað ákvæðið á um að persónuverndarfulltrúum væri óheimilt að segja frá nokkru því sem þeir hefðu fengið vitneskju um í starfi sínu og leynt ætti að fara. Í ljósi þess að veigamiklir hagsmunir eru fólgnir í því að persónuverndarfulltrúar á einkamarkaði séu bundnir þagnarskyldu um þann hluta starfa þeirra sem leynt á að fara telur nefndin brýnt að gera framangreindar breytingar á ákvæðinu. Það verði því engum vafa undirorpið að þagnarskylda gildi jafnt um persónuverndarfulltrúa á einkamarkaði og hjá hinu opinbera.