Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 954  —  415. mál.




Svar


ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsmannamál stofnana á málefnasviði ráðherra.


     1.      Hversu oft á undanförnum sjö árum hafa stofnanir á málefnasviði ráðherra greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna vegna annars vegar dómsmála, sátta fyrir dómstólum og sáttamála hjá ríkislögmanni og hins vegar annars konar sáttar eða samkomulags?
     2.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir undanfarin sjö ár í stofnunum á málefnasviði ráðherra? Hver var árleg heildarfjárhæð í hverjum flokki uppgjörs fyrir sig?

    Engin stofnun hefur greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna á tímabilinu sem spurt er um. Ferðamálastofa hefur gert tvo starfslokasamninga og Samkeppniseftirlitið þrjá á tímabilinu sem spurt er um. Aðrar stofnanir hafa ekki gert starfslokasamninga á tímabilinu.

2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Stofnanir
Bætur 0 0 0 0 0 0 0
Starfslokagreiðslur 1.485.792 4.817.442 4.106.331 0 7.653.331 10. 796.056 9.145.021

     3.      Hver er ábyrgð forstöðumanna sem segja starfsmanni upp á ólögmætan hátt á því tjóni sem þeir valda ríkissjóði og hvernig hefur verið farið með þá ábyrgð?
    Samkvæmt lögum bera forstöðumenn ríkisstofnana ábyrgð á starfsmannamálum sinnar stofnunar. Forstöðumenn bera jafnframt ábyrgð á fjárreiðum stofnunar og að rekstur sé innan heimilda fjárlaga. Forstöðumenn sæta ábyrgð líkt og kveðið er á um í 2. mgr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, en þar segir: „Forstöðumaður ber ábyrgð á að stofnun, sem hann stýrir, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf skv. 1. mgr. Forstöðumaður ber og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðunandi getur ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.“ Ekki hefur komið til ólögmætrar uppsagnar hjá stofnunum ráðuneytisins og því ekki reynt á ábyrgð forstöðumanna.

     4.      Hversu áreiðanlegar telur ráðherra að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu? Telur ráðherra hugsanlegt að gerðir séu starfslokasamningar sem fela í sér greiðslur úr ríkissjóði umfram lagaskyldur og kjarasamninga án vitneskju ráðuneytisins?
    Ráðherra hefur enga ástæðu til að ætla annað en að forstöðumenn veiti réttar upplýsingar um þessi mál sem önnur.
    
     5.      Hversu oft hafa starfsmenn stofnana á málefnasviði ráðherra haft forgang að sambærilegum störfum hjá ríkinu eftir að starf þeirra hefur verið lagt niður eða þeim hefur verið sagt upp og hvernig er tryggt að starfsmenn njóti þeirra réttinda?
    Starfsmönnum ríkisins er ekki tryggður forgangur til annarra starfa hjá ríkinu við starfslok, enda er það meginregla að auglýsa skuli öll laus störf, sbr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.