Ferill 416. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 956  —  416. mál.




Svar


umhverfis- og auðlindaráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsmannamál ráðuneytisins og stofnana þess.


     1.      Hversu oft á undanförnum sjö árum hefur ráðuneytið eða stofnanir þess greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna vegna annars vegar dómsmála, sátta fyrir dómstólum og sáttamála hjá ríkislögmanni og hins vegar annars konar sáttar eða samkomulags?
    Á undanförnum sjö árum hefur hvorki umhverfis- og auðlindaráðuneytið né stofnanir þess greitt bætur vegna dómsmáls sem varðar ólögmæta uppsögn starfsmanns.

     2.      Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir undanfarin sjö ár í ráðuneytinu annars vegar og stofnunum ráðuneytisins hins vegar? Hver var árleg heildarfjárhæð í hverjum flokki uppgjörs fyrir sig?
    Þrisvar hefur verið gert samkomulag í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu undanfarin sjö ár en ekkert þeirra fól í sér greiðslur umfram ákvæði í ráðningar- og kjarasamningum. Í stofnunum ráðuneytisins hafa verið gerðir 19 starfslokasamningar á tímabilinu en tveir þeirra fólu í sér greiðslur umfram ákvæði í ráðningar- og kjarasamningum og er kostnaður vegna þeirra 1.330.000 kr. á árinu 2016 og 3.342.763 kr. á árinu 2019.

     3.      Hver er ábyrgð forstöðumanna sem segja starfsmanni upp á ólögmætan hátt á því tjóni sem þeir valda ríkissjóði og hvernig hefur verið farið með þá ábyrgð?
    Í 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, er mælt fyrir um ábyrgð forstöðumanns á sinni stofnun. Ákvæðinu var ætlað að auka sjálfstæði forstöðumanna ríkisstofnana og möguleika þeirra til að taka ákvarðanir sem varða stjórnun og starfsmannahald. Samhliða voru því gerðar auknar kröfur til forstöðumanna og ábyrgð þeirra aukin. Forstöðumanni er ekki aðeins gert að sjá til þess að stofnun sem hann stýrir starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf, heldur ber hann og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Er hér einkum átt við þrjá þætti í starfsemi stofnunar, þ.e. þjónustu hennar við almenning, úrlausn verkefna að öðru leyti og fjárhagslegan rekstur. Í 2. mgr. 38. gr. laganna er svo mælt fyrir að fari útgjöld fram úr fjárlagaheimildum, sé verkefnum stofnunarinnar ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar teljist óviðunandi geti ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. laganna eða, ef um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu er að ræða, veitt honum lausn frá embætti. Eins og að framan greinir hefur ekki komið til ólögmætrar uppsagnar hjá stofnunum ráðuneytisins og því ekki reynt á ábyrgð forstöðumanna. Þá má einnig vekja athygli á áliti umboðsmanns Alþingis nr. 5718/2009 þar sem fjallað var um jákvæða athafnaskyldu ráðherra til grípa til virkra úrræða á grundvelli yfirstjórnunar- og eftirlitsheimilda sinna þegar fyrir liggur að mati ráðuneytis að þess hafi ekki verið gætt um nokkurn tíma í starfsemi undirstofnunar að haga innra skipulag hennar og málsmeðferð, hvort sem væri inn á við gagnvart starfsmönnum stofnunar eða út á við gagnvart borgurunum, með þeim hætti sem áskilið væri í lögum. Við frekari afmörkun á skyldu ráðherra til að grípa með raunhæfum og virkum hætti inn í starfsemi undirstofnunar skipti máli hvers eðlis sá annmarki í formi brots á lögum væri, t.d. hvort um viðvarandi ástand væri að ræða eða hvort um væri að ræða afmörkuð tilvik.

     4.      Hversu áreiðanlegar telur ráðherra að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu? Telur ráðherra hugsanlegt að gerðir séu starfslokasamningar sem fela í sér greiðslur úr ríkissjóði umfram lagaskyldur og kjarasamninga án vitneskju ráðuneytisins?
    Engin ástæða er til að ætla annað en að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu áreiðanlegar. Eins og fram kemur í svari við 2. tölul. fyrirspurnarinnar fólu tveir starfslokasamningar stofnana ráðuneytisins á tímabilinu í sér greiðslur umfram ákvæði í ráðningar- og kjarasamningum. Slíkir samningar eru gerðir án aðkomu ráðuneytisins enda bera forstöðumenn stofnana ráðuneytisins ábyrgð á stjórn og rekstri viðkomandi stofnana eins og fram kemur t.d. í sérlögum um viðkomandi stofnanir og skv. 2. mgr. 38. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

     5.      Hversu oft hafa starfsmenn ráðuneytisins eða stofnana þess haft forgang að sambærilegum störfum hjá ríkinu eftir að starf þeirra hefur verið lagt niður eða þeim hefur verið sagt upp og hvernig tryggir ráðuneytið að starfsmenn njóti þeirra réttinda?
    Það er meginregla í mannauðsmálum ríkisins að auglýsa skuli öll laus störf, sbr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í þeim tilvikum þegar stofnanir hafa verið lagðar niður með lögum og verkefni þeirra færð yfir í aðra eða nýja stofnun hefur verið höfð hliðsjón af lögum um réttarstöðu starfsfólks við aðilaskipti að fyrirtækjum, sem og sjónarmiðum um meðalhóf, og starfsmönnum sem áður sinntu störfunum boðin ný störf hjá þeirri stofnun sem tók við verkefninu. Það er því alla jafna löggjafinn sem tekur þessa ákvörðun hverju sinni. Umhverfis- og auðlindaráðuneytið býr ekki yfir tölfræði yfir hversu oft starfsmönnum hefur verið tryggður forgangur til annarra starfa hjá stofnunum þess þegar breytingar hafa verið gerðar á stofnanakerfi ráðuneytisins.