Ferill 588. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 965 — 588. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um biðlista á Vogi.
Frá Sigurði Páli Jónssyni.
1. Hyggst ráðherra leita leiða til þess að eyða biðlistum á sjúkrahúsinu Vogi? Ef svo er, hverjar eru fyrirætlanir ráðherra í þeim efnum?
2. Hver væri fjárhæð þess framlags sem SÁÁ þyrfti til rekstrar Vogs til þess að geta eytt biðlistum?
Skriflegt svar óskast.