Ferill 401. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 982  —  401. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Óla Birni Kárasyni um umhverfisskatta, umhverfisgjöld og skattalegar ívilnanir.


     1.      Hvaða umhverfisskattar (grænir skattar) og umhverfisgjöld hafa verið lögfest hér á landi frá árinu 2005? Óskað er eftir sundurliðun eftir árum.
    Umhverfisskattar og umhverfisgjöld hafa ekki verið skilgreind með afmörkuðum hætti í íslenskum rétti eða stjórnsýsluframkvæmd. Skilgreining Efnahags- og framfarastofnunar (OECD) á umhverfissköttum er sú að skattstofn umhverfisskatta sé efnisleg eining sem hefur sannreynd neikvæð áhrif á umhverfið. Jafnframt greinir stofnunin umhverfisskatta í fjóra flokka: orkuskatta, samgönguskatta, mengunarskatta og auðlindaskatta.
    Við gerð þessa svars er aðeins horft til samgöngu- og mengunarskatta samkvæmt skilgreiningu Efnahags- og framfarastofnunar. Þannig er ekki fjallað um skatt á raforku, sem var í gildi 2010–2015, skatt á heitt vatn og veiðigjöld í svarinu. Þeir skattar sem falla undir samgöngu- og mengunarskatta eru: vörugjald af ökutækjum, almennt vörugjald á bensín, sérstakt vörugjald á bensín, olíugjald, kolefnisgjald, bifreiðagjald, kílómetragjald, þungaskattur, skilagjald, úrvinnslugjald og skattur á flúoraðar gróðurhúsalofttegundir.
    Árið 2004 var lögfest að þungaskattur félli brott og að samhliða því yrði tekið upp olíugjald og kílómetragjald. Þessar breytingar tóku gildi um mitt ár 2005. Þá var kolefnisgjald lögfest árið 2009 og tók gildi árið 2010. Að lokum var skattur á flúoraðar gróðurhúsalofttegundir lögfestur árið 2019 og mun hann taka gildi í ársbyrjun 2020.

     2.      Hver er gjaldstofn hvers skatts fyrir sig? Hvernig hefur reikniregla álagningar þróast frá árinu 2005 til ársins 2020? Óskað er eftir sundurliðun eftir tegund skatts.
    Hér er fyrst farið yfir gjaldstofn umhverfisskatta sem ríkið leggur á miðað við gildandi lög. Vörugjald af ökutækjum leggjast á tollvirði innfluttra bifreiða og tekur mið af skráðri koltvísýringslosun. Sérstakt og almennt vörugjald á bensín leggjast á hvern lítra af bensíni, olíugjald leggst á hvern lítra af dísilolíu og kolefnisgjald leggst annars vegar á hvern lítra af bensíni og dísilolíu og hins vegar á hvert kílógramm af brennsluolíu, jarðolíugasi og öðru loftkenndu kolvatnsefni. Þá er bifreiðagjald léttra bifreiða (<3.500 kg) lagt á miðað við skráða koltvísýringslosun bifreiðar og þyngri bifreiða (>3.500 kg) miðað við þyngd. Kílómetragjald er einnig lagt á miðað við þyngd bifreiða ásamt eknum kílómetrum. Skilagjald og úrvinnslugjald leggjast annars vegar á einingu og hins vegar þyngd. Að lokum leggst skattur á flúoraðar gróðurhúsalofttegundir á hvert kílógramm en tekur jafnframt mið af magni gróðurhúsalofttegunda.
    Frá árinu 2005 hafa reiknireglur við álagningu vörugjalds á ökutæki og bifreiðagjalds tekið breytingum. Reiknireglur annarra umhverfisskatta hafa verið óbreyttar þrátt fyrir að gjöldin sjálf hafi breyst yfir tímabilið.
    Vörugjald af ökutækjum var lagt á í tveimur gjaldflokkum fram til ársins 2011 sem tók mið af sprengirými aflvélar. Gjaldhlutfallið var 30% fyrir bifreiðar með sprengirými aflvélar undir 2.000 rúmsentimetrum og 45% fyrir bifreiðar með sprengirými aflvélar yfir 2.000. Árið 2011 tóku gildi breytingar á vörugjaldi af ökutækjum sem fólust í því að gjaldið tók mið af skráðri koltvísýringslosun ökutækja samkvæmt tíu gjaldflokkum þar sem vörugjaldið fór stighækkandi með aukinni losun eða úr 0% í 65%. Árið 2019 var tekin upp nokkurn veginn línuleg álagning vörugjalds sem nemur 0,37% á hvert g/km skráðrar losunar umfram 74 g/km en þó aldrei hærra en 65%. Samhliða var hafin skattlagning miðað við skráða koltvísýringslosun samkvæmt evrópsku aksturslotunni og samræmdu prófunaraðferðinni.
    Bifreiðagjald var lagt á miðað við þyngd fram til ársins 2011. Árið 2011 tóku gildi breytingar á bifreiðagjaldi fyrir léttar bifreiðar (<3.500 kg) sem fólu í sér að gjaldið var lagt á miðað við skráða koltvísýringslosun bifreiða. Árið 2019 var byrjað að skattleggja miðað við skráða koltvísýringslosun samkvæmt evrópsku aksturslotunni og samræmdu prófunaraðferðinni.

     3.      Hverjar eru heildartekjur ríkissjóðs af umhverfissköttum og umhverfisgjöldum? Óskað er eftir sundurliðun eftir árum frá 2005 til 2020 og eftir tegund skatta og gjalda?
    Sjá töflu 1 á eftir svari við tölulið 8.

     4.      Hvernig hefur hlutfall umhverfisskatta af heildarskatttekjum ríkissjóðs þróast frá árinu 2005?
    Sjá töflu 2 á eftir svari við tölulið 8.

     5.      Hvaða skattar og gjöld hafa verið lækkuð á móti innleiðingu eða hækkunum umhverfisskatta og umhverfisgjalda?
    Engar skattalækkanir hafa með beinum hætti verið tengdar við innleiðingu eða hækkun umhverfisskatta og -gjalda. Engu að síður hafa breytingar verið gerðar á öðrum sköttum samhliða þeim.

     6.      Er jafnræðis gætt við álagningu umhverfisskatta milli atvinnugreina?
    Umhverfisskattar eru ekki lagðir á atvinnugreinar heldur á notkun óumhverfisvænna vara. Þannig er vara sem skaðar umhverfið skattlögð til þess að markaðsverð hennar endurspegli sem best þann þjóðhagslega kostnað sem af henni hlýst og til þess að vinna gegn neikvæðum ytri áhrifum. Hins vegar er rétt að nefna að alþjóðasamgöngur, svo sem flug og skipaflutningar, eru undanþegin umhverfissköttum. Jafnframt nutu bílaleigubílar ívilnunar á vörugjaldi af ökutækjum upp að ákveðnu hámarki fram til ársins 2019.

     7.      Hefur ríkissjóður látið meta árangur af álagningu umhverfisskatta og umhverfisgjalda? Ef slíkt mat liggur fyrir er óskað eftir að gerð verði grein fyrir niðurstöðum þess.
    Fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur ekki beitt sér fyrir og er ekki kunnugt um að gert hafi verið heildstætt eftirámat á árangri af álagningu umhverfisskatta hérlendis. Tilgangurinn með álagningu slíkra skatta er, með vísan til skilgreiningar þeirra, fyrst og fremst sá að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum, en ávinningurinn getur þó verið margvíslegur og skipta heildaráhrifin máli við stefnumótun í bæði umhverfis- og skattamálum. Sem dæmi um afleidd áhrif á sömu eða öðrum sviðum má nefna að þeir skila ríkissjóði tekjum, margir þeirra hafa jákvæða eiginleika í skattframkvæmd, umtalsverður hluti þeirra miðar að því að auka kostnað við notkun koltvísýringslosandi orku og þar með að draga úr henni til að varna óæskilegri hlýnun andrúmsloftsins, þeir hvetja fyrirtæki til nýsköpunar, leiða til umhverfisvænni lausna og auka arðsemi tengdra fjárfestinga, styðja sjálfbæra þróun til lengri tíma, hafa jákvæð áhrif á lýðheilsu o.fl. Á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er unnið að því að meta áhrif kolefnisgjalds á eldsneytisnotkun heimila og fyrirtækja í landinu. Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að fjölmargar rannsóknir hafa verið unnar á þessu sviði erlendis í gegnum tíðina og gerðar alþjóðlegar samþykktir á grundvelli þeirra, sem litið hefur verið til við stefnumörkun hér á landi.

     8.      Hvaða skattalegar ívilnanir eru í gildi til að stuðla að orkuskiptum eða til að ýta undir umhverfisvæna hegðun?
    Niðurfelling virðisaukaskatts af rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum upp að ákveðnu hámarki hefur verið í gildi frá 2012. Þá hafa metan- og metanólbifreiðar notið niðurfellingar vörugjalds upp að ákveðnu hámarki og lækkunar bifreiðagjalds, metanbifreiðar frá 2011 og metanólbifreiðar frá 2016. Markmið ívilnana er að styrkja samkeppnishæfni umræddra ökutækja gagnvart hinum hefðbundnu bensín- og dísilknúnu ökutækjum og flýta þannig fyrir orkuskiptum í vegasamgöngum.
    Hinn 17. desember sl. voru samþykktar frekari skattaívilnanir sem stuðla að hraðari orkuskiptum og umhverfisvænni hegðun sem taka gildi á árinu 2020. Nýju skattaívilnanirnar eru eftirfarandi: Niðurfelling virðisaukaskatts upp að ákveðnu hámarki fyrir vistvæn bifhjól, reiðhjól, rafmagnsreiðhjól og hlaupahjól; 100% endurgreiðsla á virðisaukaskatti vegna kaupa á efni og vinnu við uppsetningu á hleðslustöðvum í eða við íbúðarhúsnæði; útleiga á vistvænum bifreiðum verður undanþegin virðisaukaskattsskyldri veltu; virðisaukaskattur vegna kaupa á vistvænum hópbifreiðum í almenningsakstri verður felldur niður og atvinnurekstraraðilum verður heimilað að fyrna vistvæn ökutæki að fullu á kaupári.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.