Ferill 598. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 988  —  598. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um úthlutun byggðakvóta.

Frá Ingu Sæland.


    Hvernig skiptist úthlutun byggðakvóta skv. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, til byggðarlaga og skipa, sundurliðað eftir fiskveiðiárum tímabilið 2013/2014– 2018/2019? Óskað er eftir að í svarinu komi fram:
     a.      Skráningarnúmer, nafn, einkennisstafir, heimahöfn, stærð, útgerðarflokkur og eigandi skips.
     b.      Úthlutað aflamark, úthlutaður byggðakvóti, magn heimilda sem fluttar hafa verið frá skipi til skips í eigu annars aðila, afli og landaður afli í byggðarlagi sem tilheyrir byggðakvótaúthlutun skipsins. Fyrir fiskveiðiárin 2016/2017–2018/2019 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa, steinbíts, gullkarfa, keilu og löngu í þorskígildum en fyrir fiskveiðárin 2013/2014–2015/2016 taki svarið til þorsks, ýsu, ufsa og steinbíts í þorskígildum.


Skriflegt svar óskast.