Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 995 — 417. mál.
Svar
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra við fyrirspurn frá Birgi Þórarinssyni um starfsmannamál ráðuneytisins.
1. Hversu oft á undanförnum sjö árum hefur ráðuneytið eða fyrrum undirstofnun þess, Þróunarsamvinnustofnun, greitt bætur fyrir ólögmætar uppsagnir starfsmanna vegna annars vegar dómsmála, sátta fyrir dómstólum og sáttamála hjá ríkislögmanni og hins vegar annars konar sáttar eða samkomulags?
Hvorki utanríkisráðuneytið né Þróunarsamvinnustofnun, sem lögð var niður frá 1. janúar 2016, greiddu bætur vegna ólögmætra uppsagna starfsmanna vegna dómsmála, sátta fyrir dómstólum eða sáttmála hjá ríkislögmanni eða annars konar sáttar eða samkomulags á umræddu tímabili.
2. Hversu margir starfslokasamningar hafa verið gerðir undanfarin sjö ár í ráðuneytinu eða fyrrum undirstofnun þess, Þróunarsamvinnustofnun? Hver var árleg heildarfjárhæð í hverjum flokki uppgjörs fyrir sig?
Utanríkisráðuneytið og fyrrum Þróunarsamvinnustofnun gerðu ekki starfslokasamninga á umræddu tímabili.
3. Hver er ábyrgð forstöðumanna sem segja starfsmanni upp á ólögmætan hátt á því tjóni sem þeir valda ríkissjóði og hvernig hefur verið farið með þá ábyrgð?
Samkvæmt lögum bera forstöðumenn ríkisstofnana ábyrgð á starfsmannamálum sinnar stofnunar. Forstöðumenn bera jafnframt ábyrgð á fjárreiðum stofnunar og að rekstur sé innan heimilda fjárlaga. Forstöðumenn sæta ábyrgð eins og kveðið er á um í 2. mgr. 38. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, en þar segir: „Forstöðumaður ber ábyrgð á að stofnun, sem hann stýrir, starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf skv. 1. mgr. Forstöðumaður ber og ábyrgð á því að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma stofnunarinnar sé í samræmi við fjárlög og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt. Ef útgjöld fara fram úr fjárlagaheimildum, verkefnum stofnunar er ekki sinnt sem skyldi eða þjónusta hennar telst óviðunandi getur ráðherra veitt forstöðumanni áminningu skv. 21. gr. eða veitt honum lausn frá embætti skv. VI. kafla ef hann hefur gerst sekur um ítrekaða eða stórfellda vanrækslu í starfi með þeim hætti sem að framan er lýst.“ Ekki kom til ólögmætrar uppsagnar hjá fyrrum Þróunarsamvinnustofnun, sem var eina stofnun ráðuneytisins á umræddu tímabili, og því reyndi ekki á ábyrgð forstöðumanns.
4. Hversu áreiðanlegar telur ráðherra að upplýsingar um fjölda og fjárhæðir starfslokasamninga séu? Telur ráðherra hugsanlegt að gerðir séu starfslokasamningar sem fela í sér greiðslur úr ríkissjóði umfram lagaskyldur og kjarasamninga án vitneskju ráðuneytisins?
Á ekki við, sbr. svar við 2. tölul. fyrirspurnarinnar.
5. Hversu oft hafa starfsmenn ráðuneytisins eða fyrrum undirstofnunar þess, Þróunarsamvinnustofnunar, haft forgang að sambærilegum störfum hjá ríkinu eftir að starf þeirra hefur verið lagt niður eða þeim hefur verið sagt upp og hvernig tryggir ráðuneytið að starfsmenn njóti þeirra réttinda?
Starfsmönnum ríkisins er almennt ekki tryggður forgangur til annarra starfa hjá ríkinu við starfslok, enda er það meginregla að auglýsa skuli öll laus störf, sbr. 7. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Í þeim tilvikum þegar stofnanir hafa verið lagðar niður með lögum og verkefni þeirra færð yfir í aðra eða nýja stofnun hefur verið höfð hliðsjón af lögum um réttarstöðu starfsfólks við aðilaskipti að fyrirtækjum og horft til meðalhófs. Þannig hafa starfsmönnum, sem áður sinntu störfunum, verið boðin ný störf hjá þeirri stofnun eða stjórnvaldi er tók við verkefninu. Það er því alla jafna löggjafinn sem tekur þessa ákvörðun hverju sinni. Við niðurlagningu Þróunarsamvinnustofnunar 1. janúar 2016 var öllum fastráðnum starfsmönnum stofnunarinnar boðið starf í utanríkisráðuneytinu, sbr. c-lið 11. gr. laga nr. 122/2015.