Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 998 — 506. mál.
Svar
mennta- og menningarmálaráðherra við fyrirspurn frá Þorsteini Víglundssyni um nefndir og starfs- og stýrihópa.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða nefndir og starfs- og stýrihópar á málefnasviði ráðherra hafa verið sett á fót á yfirstandandi kjörtímabili og hver eru hlutverk þeirra?
Nefndir eru einkum skipaðar á grundvelli laga, skipulagsskráa eða samninga eða samkvæmt ákvörðun ráðherra. Þess má geta að málaráðherra hefur ákveðið skoða hvort fækka megi lögbundnum nefndum með sameiningu nefnda eða öðrum aðgerðum sem leitt geta til einföldunar á stjórnkerfi mennta- og menningarmála.
| Lögbundnar nefndir. | |
| Fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum. | Að vera stuðningsaðili við skólasamfélagið og leita að fullnægjandi niðurstöðu í eineltismálum sé þess nokkur kostur eða gefa út ráðgefandi álit um úrlausn á grundvelli þeirra gagna og upplýsinga er ráðinu berast í tilteknum málum. |
| Fjölmiðlanefnd 2019–2023. | Fjölmiðlanefnd er skipuð skv. 8. gr. laga nr. 38/2011. Nefndin er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem heyrir undir ráðherra. Nefndin ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn. Hún annast eftirlit samkvæmt lögum. Fjölmiðlanefnd skal stuðla að því að markmiðum og tilgangi laganna verði náð. Hún skal efla fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum, standa vörð um tjáningarfrelsi og rétt almennings til upplýsinga og skal stuðla að því að vernd barna sé virt. |
| Stjórn Fræðslusjóðs. | Sbr. 11. gr. laga nr. 27/2010, um framhaldsfræðslu. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að því að til séu viðeigandi námstækifæri fyrir einstaklinga með stutta formlega skólagöngu að baki, jafnframt því að taka þátt í að skapa skilyrði svo sömu einstaklingar geti nýtt sér slík námstækifæri. |
| Stjórn Grænlandssjóðs 2018–2021. | Stjórn Grænlandssjóðs er skipuð skv. 2. gr. laga nr. 108/2016. Sjóðsstjórn hefur á hendi stjórn sjóðsins og gerir tillögur til ráðherra um styrkveitingar |
| Innkaupanefnd Listasafns Íslands 2019–2022. | Innkaupanefnd Listasafns Íslands, skv. 5. gr. myndlistarlaga, nr. 64/2012. Innkaupanefndin ákveður m.a. kaup listaverka og fjallar um gjafir til safnsins. |
| Stjórn Innviðasjóðs. 2019–2022. | Að styðja við uppbyggingu rannsóknarinnviða á Íslandi. Við úthlutun eru höfð til hliðsjónar viðmið og áherslur sem birtast í stefnu Vísinda- og tækniráðs um rannsóknarinnviði hverju sinni. |
| Stjórn Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafns. 2019–2023. | Stjórn Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns er skipuð skv. 2. gr. laga nr. 142/2011 um safnið. Stjórnin er landsbókaverði til ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varða starfsemi þess. Stjórnin veitir landsbókaverði umsagnir um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir og skipulag safnsins. Landsbókavörður situr fundi stjórnar með málfrelsi og tillögurétt. |
| Stjórn launasjóðs stórmeistara í skák – 2019–2022. | Launasjóður stórmeistara í skák starfar skv. 6. gr. laga nr. 58/1990 og reglugerðar nr. 600/2011 um sjóðinn. Tilgangur sjóðsins er að skapa íslenskum stórmeisturum í skák fjárhagslegan grundvöll til að helga sig skáklistinni. Þeir sem greiðslu hljóta úr sjóðnum skulu jafnframt sinna skákkennslu við Skákskóla Íslands eða fræðslu á vegum skólans. |
| Leiklistarráð 2019–2021. | Leiklistarráð starfar skv. 17. gr. leiklistarlaga, nr. 138/1998. Hlutverk leiklistarráðs er m.a. að gera tillögur um úthlutun fjár sem veitt er í fjárlögum til stuðnings atvinnuleikhópum og veita umsögn um leiklistarerindi sem ráðuneytið vísar til þess. |
| Stjórn Listskreytingasjóðs 2020–2023. | Listskreytingasjóður starfar skv. 18. gr. myndlistarlaga, nr. 64/2012. Hlutverk stjórnar er m.a. að veita ráðgjöf um listaverk í nýbyggingum skv. 16. gr. myndlistarlaga og veita styrki úr listskreytingasjóði. |
| Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. 2019–2021. | Að annast fjármál sjóðsins og gerð fjárhagsáætlana, að setja reglur um úthlutun námslána og að skera úr vafamálum er varða einstaka lánþega og öðrum málum með bókuðum samþykktum, sbr. 5. gr. laga um Lánasjóð íslenskra námsmanna, nr. 21/1992. |
| Stjórn Markáætlunar á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. 2019–2022. | Að veita styrki til grunnrannsókna og hagnýtra verkefna. Verkefnin skulu unnin í nánu samstarfi fyrirtækja, rannsóknarstofnana og háskóla á einstökum sviðum eða þverfaglegum fræðasviðum á grundvelli vandaðra rannsóknaráætlana. Markmið þeirra skulu falla að almennum áherslum og markmiðum Vísinda- og tækniráðs, sem markar áherslur nýrrar Markáætlunar. Stjórn Markáætlunar setur reglur varðandi umsóknir, mat þeirra og málsmeðferð í samræmi við áherslur Vísinda- og tækniráðs. |
| Matsnefnd – leyfisbréf fyrir náms- og starfsráðgjafa. | Hlutverk nefndarinnar er að meta umsóknir um starfsheitið náms- og starfsráðgjafi samkvæmt þeim skilyrðum sem kveðið er á um í 2. gr. laga nr. 35/2009 |
| Stjórn Miðstöðvar íslenskra bókmennta – 2019–2022. | Stjórn Miðstöðvar íslenskra bókmennta, skipuð skv. 3. gr. laga um bókmenntir, nr. 91/2007, með síðari breytingum. Helstu verkefni stjórnarinnar eru m.a. að gera tillögur um stefnu og helstu áherslur í starfi Miðstöðvar íslenskra bókmennta og bókmenntasjóðs, ákveða árlega skiptingu ráðstöfunarfjár á milli viðfangsefna og úthluta úr bókmenntasjóði. |
| Myndlistarráð 2019–2021. | Myndlistarráð, sbr. ákvæði 10. gr. myndlistarlaga nr. 64/2012. Helstu verkefni ráðsins eru m.a. skv. 11. gr. laganna að vera ráðherra til ráðgjafar um málefni myndlistar, úthluta styrkjum úr myndlistarsjóði og stuðla að alþjóðasamstarfi og kynningu á íslenskum myndlistarmönnum. |
| Málskotsnefnd Lánasjóðs íslenskra námsmanna. | Að skera úr um hvort úrskurðir stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna séu í samræmi við ákvæði laga og reglugerða. Nefndin getur staðfest, breytt eða fellt úr gildi ákvarðanir stjórnar sjóðsins. Úrskurður nefndarinnar skal vera rökstuddur og [verður honum ekki skotið til annarra stjórnvalda]. |
| Nefnd um stuðning við útgáfu bóka á íslensku. | Nefnd um stuðning við útgáfu bóka á íslensku, skipuð skv. 4. gr. laga nr. 130/2018. Hlutverk nefndarinnar er að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við útgáfu bóka á íslensku. |
| Námsorlofsnefnd framhaldsskóla. | Hlutverk að gera tillögur til ráðuneytisins um úthlutun námsorlofa og styrkja til kennara og skólastjórnenda í framhaldsskólum sbr. reglugerð um námsorlof kennara og stjórnenda framhaldsskóla nr. 762/2010. |
| Stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna. 2017–2020. | Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða námsmenn í grunnnámi við háskóla til sumarvinnu að rannsókna- og þróunarverkefnum sem stuðla að nýsköpun og auknum tengslum atvinnulífs, stofnana og háskóla. |
| Stjórn Rannsóknasjóðs 2019–2022. | Hlutverk stjórnar Rannsóknasjóðs, sbr. 4. gr laga nr. 3/2003, um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, er að meta umsóknir um styrk úr sjóðnum að fengnum umsögnum fagráða sem skipuð eru skv. 5. gr. laga nr. 3/2003. Stjórn Rannsóknasjóðs skal jafnframt fara með stjórn Tækjasjóðs. |
| Samráðshópur um framkvæmd og innleiðingu laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda. | Að fjalla um framkvæmd og innleiðingu laga nr. 95/2019, um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda. |
| Samráðshópur um málefni Hljóðbókasafns Íslands 2018–2022. | Samráðshópur um málefni Hljóðbókasafns Íslands er skipaður skv. 17. gr. bókasafnalaga, nr. 150/2012. Samráðshópurinn er forstöðumanni Hljóðbókasafns Íslands til samráðs og ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varðar starfsemi þess og situr forstöðumaðurinn fundi hópsins með málfrelsi og tillögurétt. |
| Stjórn Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra 2019–2022. | Sbr. ákvæði 3. gr. laga nr. 129/1990, um Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra. Hlutverk Samskiptamiðstöðvar er að annast rannsóknir á íslensku táknmáli, kennslu táknmáls, táknmálstúlkun og aðra þjónustu. |
| Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2019–2023. | Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands, skipuð skv. 4. gr. laga nr. 36/1982, um Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hlutverk stjórnar er m.a. að ráða framkvæmdastjóra, fastan hljómsveitarstjóra og aðalhljómsveitarstjóra. Þá skal stjórn leggja fyrir starfs- og fjárhagsáætlun. |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga. | Hlutverk skólanefndar er að: a. marka áherslur í starfi skólans og stuðla að sem bestri þjónustu við íbúa á starfssvæði skólans og tengslum hans við atvinnu-, félags- og menningarlíf, b. vera skólameistara til samráðs um námsframboð skóla, c. staðfesta skólanámskrá að fenginni umsögn almenns skólafundar og fylgjast með framkvæmd hennar, d. veita skólameistara umsögn um árlega starfs- og fjárhagsáætlun í samræmi við niðurstöður fjárlaga og fylgjast með framkvæmd hennar, e. vera skólameistara til samráðs um fjárhæð þeirra gjalda sem skólameistari ákveður skv. 45. gr., f. vera skólameistara til samráðs um samninga sem viðkomandi skóli gerir, g. vera skólameistara til samráðs um starfsmannamál, h. veita ráðherra umsögn um umsækjendur um stöðu skólameistara. |
| Skólanefnd Fjölbrautaskóla Vesturlands. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Skólanefnd Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Skólanefnd Menntaskólans á Egilsstöðum. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Skólanefnd Menntaskólans á Tröllaskaga. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Skólanefnd Verkmenntaskóla Austurlands. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Stjórn sprotasjóðs 2018–2022. | Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá. Hlutverk stjórnarinnar er að gera tillögu til ráðherra um hvernig skuli ráðstafa fjárveitingu sjóðsins til styrkþega og gerir tillögu um einstök áherslusvið sem skulu hafa forgang hverju sinni. |
| Starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina. | Skv. 24. gr. laga nr. 92/2008, um framhaldsskóla, eru starfsgreinaráð, hvert á sínu sviði, ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms. |
| Starfsgreinaráð heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð hönnunar- og handverksgreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð málmtækni-, farartækja- og flutningsgreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð sjávarútvegs- og siglingagreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð skrifstofu- og verslunargreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð snyrtigreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð umhverfis- og landbúnaðargreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Starfsgreinaráð upplýsinga- og fjölmiðlagreina. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Stjórn starfslaunasjóðs sjálfstætt starfandi fræðimanna 2019–2022. | Að launa starfsemi þeirra fræðimanna sem starfa sjálfstætt í sinni fræðigrein. |
| Stjórn listamannalauna 2018–2021. | Stjórn listamannalauna er skipuð skv. 3. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun, frá 1. október 2018 til 31. maí 2021. Hlutverk stjórnarinnar er m.a. að gera tillögu til ráðherra um stefnu og áherslur við úthlutun listamannalauna til þriggja ára í senn og hafa eftirlit með að skilyrðum um starfslaun sé fylgt. |
| Stjórn Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 2018–2022. | Að vera forstöðumanni til ráðgjafar og veita honum umsagnir um starfsáætlanir og skipulag stofnunarinnar sbr. 4. gr. laga nr. 40/2006. |
| Sveinsprófsnefnd í bakaraiðn. | Hlutverk sveinsprófsnefndar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf. Skv. 30. gr. laga nr. 92/2008, um framhaldsskóla, og reglugerðar nr. 698/2009, um sveinspróf |
| Sveinsprófsnefnd í bifreiðasmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í bifvélavirkjun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í bílamálun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í bókbandi. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í flugvirkjun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í framreiðslu. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í gull- og silfursmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í hársnyrtiiðn. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í húsasmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í húsgagnabólstrun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í húsgagnasmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í kjólasaumi. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í kjötiðn. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í klæðskurði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í ljósmyndun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í matreiðslu. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í málaraiðn. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í múraraiðn. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í prentsmíð. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í prentun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í pípulögnum. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd rafiðna, sterkstraumur. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd rafiðna, veikstraumur. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í skósmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í snyrtifræði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í stálsmíði og málmsuðu. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í söðlasmíði. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Sveinsprófsnefnd í veggfóðrun. | Sjá hlutverk hér að ofan. |
| Tónlistarráð 2019–2022. | Tónlistarráð starfar skv. 2. gr. laga nr. 76/2004, um tónlistarsjóð. Meginhlutverk tónlistarráðs er að gera tillögur til ráðherra um úthlutun fjár úr tónlistarsjóði. |
| Undanþágunefnd framhaldsskóla. | Hlutverk er að fjalla um umsóknir um heimild til að lausráða starfsmann, sem ekki hefur leyfi mennta- og menningarmálaráðherra til að nota starfsheitið framhaldsskólakennari, sbr. 5. gr. laga nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla, og skv. 19. gr. laga nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. |
| Vísindanefnd Vísinda- og tækniráðs. | Að undirbúa stefnu stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum í samræmi við markmið laga um Vísinda- og tækniráð, nr. 2/2003, og laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir, nr. 3/2003. Nefndin skal hafa náið samráð við tækninefnd Vísinda- og tækniráðs um efnistök og samræmingu á tillögum sínum fyrir ráðið. |
| Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema. | Að úrskurða í málum þar sem námsmenn í ríkisháskólum eða háskólum, sem hlotið hafa staðfestingu menntamálaráðherra, telja brotið á rétti sínum, sbr. ákvæði reglna nr. 1152/2006 um áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema skv. 20. gr. laga nr. 63/2006. |
| Æskulýðsráð 2019–2020. | Æskulýðsráð er skipað skv. 5. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007, og reglugerð nr. 1088/2007, um skipan fulltrúa æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka í Æskulýðsráð. Hlutverk ráðsins er m.a. að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í æskulýðsmálum, gera tillögur um áherslur og stefnumótun í málaflokknum og veita umsagnir um mál er varða æskulýðsstarfsemi. |
| Æskulýðssjóður 2020–2021. | Stjórn Æskulýðssjóðs starfar skv. 8. gr. æskulýðslaga, nr. 70/2007. Hlutverk Æskulýðssjóðs er m.a. að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka skv. 9. gr. laganna. |
| Íslensk málnefnd 2020–2023. | Íslensk málnefnd starfar skv. 6. gr. laga nr. 61/2011, um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls. Hlutverk málnefndarinnar er m.a. að veita stjórnvöldum ráðgjöf um málefni íslenskrar tungu á fræðilegum grundvelli og gera tillögur til ráðherra um málstefnu. |
| Stjórn Íslenskra getrauna 2020–2022. | Stjórn Íslenskra getrauna starfar skv. 4. gr. laga nr. 59/1972, um getraunir. Hlutverk stjórnar er m.a. að afla fjár til stuðnings íþróttaiðkunum á vegum áhugamanna um íþróttir í landinu í félögum innan Ungmennasambands Íslands eða Íþróttasambands Íslands. Stjórnin ræður starfsfólk. |
| Íþróttanefnd 2019–2023. | Íþróttanefnd er skipuð skv. 4. gr. íþróttalaga, nr. 64/1998. Helsta hlutverk nefndarinnar er að veita ráðuneytinu ráðgjöf í íþróttamálum og gerir tillögur um úthlutun fjár úr Íþróttasjóði. |
| Örnefnanefnd 2019–2022. | Örnefnanefnd starfar skv. 4. gr. laga nr. 22/2015, um örnefni. Hlutverk nefndarinnar er m.a. að veita rökstutt álit um örnefni vegna birtingar í opinberum örnefnagrunni og úrskurða um nýtt eða breytt bæjarnafn hafi risið ágreiningur um það efni og honum verið vísað til nefndarinnar, götunafn eða annað það nafn sem notað er til skráningar; veitir umsögn um fyrirhugað nafn í nýjum þéttbýliskjarna eð hverfi innan sveitarfélags, um nafn sveitarfélags og náttúrufyrirbrigði. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs sviðslistafólks 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr launasjóði sviðslistafólks, sbr. ákvæði 9. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs hönnuða 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr Launasjóði hönnuða, sbr. ákvæði 6. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs myndlistarmanna 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr Launasjóði myndlistarmanna, sbr. ákvæði 7. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs rithöfunda 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr Launasjóði rithöfunda, sbr. ákvæði 8. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs tónlistarflytjenda 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr launasjóði tónlistarflytjenda, sbr. ákvæði 10. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Úthlutunarnefnd launasjóðs tónskálda 2019 og 2020. | Úthlutunarnefnd starfslauna úr launasjóði tónskálda, sbr. ákvæði 11. gr. laga nr. 57/2009, um listamannalaun. Skipað árlega. |
| Þjóðleikhúsráð 2019 –2023. | Þjóðleikhúsráð er skipað skv. 7. gr. laga nr. 138/1998 og er stjórnarnefnd leikhússins. |
| Þjóðskjalasafn. Stjórnarnefnd 2018–2022. | Stjórnarnefnd Þjóðskjalasafns Íslands er skipuð skv. 7. gr. laga nr. 77/2014, um opinber skjalasöfn. Stjórnarnefnd safnsins er þjóðskjalaverði til ráðgjafar um stefnu safnsins og önnur málefni sem varða starfsemi þess. Stjórnarnefndin veitir þjóðskjalaverði umsagnir um árlegar starfs- og fjárhagsáætlanir og skipulag safnsins. |
| Aðrar nefndir skipaðar á grundvelli samninga, sjóðsreglna eða skipulagsskráa eða samkvæmt ákvörðun ráðherra. | |
| Einkarekin sérúrræði á grunnskólastigi, starfshópur um ramma starfsemi. | Að fara yfir ýmis álitamál og sjónarmið sem upp hafa komið að undanförnu í tengslum við hugmyndir að útvistun skólaþjónustu grunnskólanemenda með tilteknar sérþarfir til einkaaðila og umfang slíkra ráðstafana af hálfu sveitarfélaga. Starfshópnum er ætlað að skoða lög um grunnskóla, reglugerð um stuðning við nemendur með sérþarfir, drög að reglugerð um sjálfstætt rekna grunnskóla og skýrslu starfshóps frá febrúar 2016 um löggjöf um sjálfstætt rekna grunnskóla og tillögur um lagabreytingar. |
| Fagráð í stærðfræði. | Markmið ráðsins er að gera raunhæfar tillögur til ráðherra um eflingu stærðfræði og aukinnar samfellu milli leik-, grunn-, framhalds- og háskólastigs. Vera Menntamálastofnun til ráðgjafar við mótun og útfærslu verkefna um eflingu stærðfræði í grunnskólum m.a. með þróun skimunarprófa í stærðfræði á grunnskólastigi, starfsþróun kennara og ráðgjöf til skóla. Nýta niðurstöður úttekta á stærðfræðikennslu í grunn- og framhaldsskólum sem gerðar voru fyrir ráðuneytið árin 2012 og 2014. |
| Stjórn Fulbright stofnunarinnar á Íslandi 2018–2019. | Skipunin er skv. 4. gr. samnings frá 13. febrúar 1964 milli Íslands og Bandaríkjanna um greiðslu kostnaðar af ýmsum menningarmálum með breytingu er tók gildi 1. september 1985. |
| Stjórn Fulbright stofnunarinnar á Íslandi 2019–2020. | Skipunin er skv. 4. gr. samnings frá 13. febrúar 1964 milli Íslands og Bandaríkjanna um greiðslu kostnaðar af ýmsum menningarmálum með breytingu er tók gildi 1. september 1985. |
| Stjórn hljóðritasjóðs 2019–2022. | Hljóðritasjóður, skipaður skv. 2. gr. reglna um hljóðritasjóð dags. 1. apríl 2016. Hlutverk stjórnarinnar er að gera tillögur til ráðherra um úthlutun úr sjóðnum samkvæmt þeim reglum sem um sjóðinn gilda. |
| Hússtjórn þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal 2019 –2023. | Hússtjórn þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal, sbr. ákvæði 2. gr. máldaga fyrir þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal dags. 19. júlí 2002 og samkomulag um breytingu á máldaganum dags. 7. desember 2010. |
| Stjórn Listahátíðar í Reykjavík 2018–2020. | Skipað er skv. 4. gr. skipulagsskrár fyrir Listahátíð í Reykjavík nr. 131/2009, með síðari breytingum. Stjórn Listahátíðar í Reykjavík ábyrgð á rekstri stofnunarinnar og fjárreiðum og samþykkir fjárhagsáætlanir. Allar meiriháttar fjárskuldbindingar eru háðar samþykki stjórnarinnar. Stjórnin tekur við umsóknum um aðild að Listahátíð, fjallar um þær og ber þær upp á aðalfundi fulltrúaráðs. |
| Lyfjaeftirlit Íslands 2018–2021. | Stjórn Lyfjaeftirlits Íslands er skipuð skv. 8. gr. skipulagsskrár nr. 477/2018. Hlutverk stjórnarinnar er að stýra öllum málefnum stofnunarinnar og koma fram út á við fyrir hönd hennar. |
| Nemaleyfisnefnd í snyrtifræði. | Hlutverk nefndarinnar er að fjalla um umsóknir frá fyrirtækjum er æskja þess að taka nemendur í starfsþjálfun í iðninni, sbr. skilyrði 8. greinar reglugerðar nr. 840/2011, um vinnustaðanám og starfsþjálfun á vinnustað. |
| Ráðgjafarnefnd vegna innleiðingar og eftirfylgni aðgerða til að auka nýliðun kennara. | Hlutverk ráðgjafarnefndarinnar er m.a. að: – fylgja eftir innleiðingu aðgerða, hafa yfirsýn og veita ráðgjöf eftir þörfum, – fylgja eftir samkomulagi um launað starfsnám kennaranema á lokaári, – fylgja eftir verklagsreglum um nýliðunarsjóð, – bera ábyrgð á árlegu endurmati aðgerða með tilliti til árangurs og úrbóta, – önnur úrlausnaatriði er varða aðgerðir um nýliðun kennara |
| Samráðshópur um nám fullorðinna. | Samráðshópur um ýmis fagleg málefni sem tengjast námi þeirra fullorðnu einstaklinga sem tilheyra markhópi laga nr. 27/2010, um framhaldsfræðslu. |
| Samráðsnefnd um samkomulag um stuðning við tónlistarnám. | Samkvæmt 5. gr. samkomulags um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms 2019–2021, er hlutverk samráðsnefndar að fylgjast með framkvæmd samkomulagsins. |
| Samráðsvettvangur um hagræðingu úrslita kappleikja. | Starfar á grundvelli 3. gr. alþjóðasamnings um hagræðingu úrslita í íþróttakeppnum. |
| Samstarfshópur um málefni Vísinda- og tækniráðs. | Að vera vettvangur samráðs og samvinnu vegna undirbúnings funda Vísinda- og tækniráðs og um efni fundanna. Að vera tengiliður milli Vísinda- og tækniráðs og starfsnefnda þess og ráðuneyta þeirra ráðherra sem sæti eiga í ráðinu. Þegar unnið er að stefnu og aðgerðaáætlunum skulu tengiliðir miðla upplýsingum frá Vísinda- og tækniráði til ráðuneyta og öfugt. Að sinna öðrum þeim verkefnum sem nauðsynleg eru til að starfsemi Vísinda- og tækniráðs gangi vel fyrir sig. |
| Samstarfsráð um fagháskólanám. | Hlutverk samstarfsráðs um fagháskólanám er að fjalla um og meta verkefni sem njóta styrkja þróunarsjóðs og nýta niðurstöður þeirra til þess að móta tillögur um framtíðartilhögun fagháskólanáms. |
| Verkefnisstjórn um fagháskólanám. | Verkefnisstjórninni er ætlað að fylgja eftir framgangi þeirra verkefna sem njóta styrkja þróunarsjóðs, meta stöðu þeirra og tryggja að þeim verði lokið með þeim árangri sem stefnt var að innan tilskilinna tímamarka. Hún getur kallað eftir upplýsingum um framkvæmd verkefna og leiðbeint styrkþegum um val á leiðum við úrlausn álitamála. Verkefnisstjórnin skal vinna tillögur varðandi framtíðarfyrirkomulag starfsnáms á háskólastigi, móta tillögur að áherslum og forgangsröðun þeirra og skilgreina mögulega samstarfsaðila. Í þessu sambandi skal verkefnisstjórnin einnig beina sjónum að tækifærum til raunfærnimats á háskólastigi. Tillögur verkefnisstjórnar skulu teknar til umfjöllunar í samstarfsráði um fagháskólanám er mótar endanlegar tillögur til ráðherra um framtíðartilhögun fagháskólanáms. |
| Samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnenda. | Hlutverk samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda eru eftirfarandi: – Að vera vettvangur fyrir samstarf og samráð aðila um starfsþróun kennara, skólastjórnenda og annarra fagstétta leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla. – Að kynna fyrir skólasamfélaginu skýrslu fagráðs um símenntun og starfsþróun kennara sem afhent var menntamálaráðherra 10. mars 2016. – Að setja fram tillögur að útfærslu á fram komnum niðurstöðum fagráðsins og kynna þær fyrir aðilum samstarfsráðsins og menntamálaráðherra. – Að greina þarfir kennara og skólastjórnenda fyrir starfsþróun og gæta að gæðum starfsþróunar. – Að hafa yfirsýn yfir þróun og stefnumótun í starfsþróun, afla upplýsinga um hana, leiða umræðu og miðla til skólasamfélagsins. – Að vera menntayfirvöldum og öðrum aðilum til ráðgjafar um málefni er varða starfsþróun. |
| Stjórn Snorrastofu 2018–2022. | Stjórn Snorrastofu, skipuð skv. 4. gr. skipulagsskrár nr. 738/2013, fyrir Snorrastofu í Reykholti. Hlutverk stjórnar er að vinna að markmiðum Snorrastofu sem er safn í Reykholti um Snorra Sturluson og sögu Reykholts og rannsóknarstofnun í miðaldafræðum. |
| Stjórn Stafkirkjunnar á Heimaey 2019–2023. | Stjórn Stafkirkjunnar á Heimaey, sbr. ákvæði 4. gr. máldaga um Stafkirkjuna frá 17. maí 2010. Helstu verkefni eru umsjón með kirkjunni og ábyrgð á rekstri hennar og fjármunum. |
| Starfshópur um að gera þátt Íslands í sögu síðari heimsstyrjaldarinnar sýnilegri í „Imperial War Museum“. | Starfshópur til að gera þátt Íslands í sögu síðari heimsstyrjaldarinnar sýnilegri á nýrri grunnsýningu safnsins Imperial War Museum í London. Starfshópnum er ætlað að gera skýrslu á ensku um veru breskra hermanna á Íslandi og komu Winstons Churchill til landsins á stríðsárunum. |
| Starfshópur um aðgerðir til að koma í veg fyrir kynferðislega og kynbundna áreitni. | Starfshópur sem skipaður var í kjölfar #églíka-yfirlýsinga íþróttakvenna til þess að gera tillögur um frekari aðgerðir vegna þessa. Starfshópnum var ætlað að skoða verkferla sem eru í íþróttastarfi og gera tillögur til úrbóta þar sem þess er þörf. Starfshópurinn hafði það hlutverk að gera tillögur um aðgerðir sem ættu að beinast að íþróttahreyfingunni sjálfri en einnig aðgerðir sem beinast að ráðuneytinu. Starfshópurinn skilaði skýrslu og hefur lokið störfum. |
| Starfshópur um eftirfylgni með bókmenningarstefnu. | Starfshópur til ráðgjafar um eftirfylgd bókmenningarstefnu. Bókmenningarstefna byggist á skýrslu starfshóps sem skipaður var í ágúst 2017 og skilaði skýrslu til ráðherra í janúar 2018 |
| Starfshópur um einkarekin sérúrræði á grunnskólastigi. | Hlutverk: fara yfir ýmis álitamál og sjónarmið sem upp hafa komið að undanförnu í tengslum við hugmyndir að útvistun skólaþjónustu grunnskólanemenda með tilteknar sérþarfir til einkaaðila og umfang slíkra ráðstafana af hálfu sveitarfélaga. Starfshópnum er ætlað að skoða lög um grunnskóla, reglugerð um stuðning við nemendur með sérþarfir, drög að reglugerð um sjálfstætt rekna grunnskóla og skýrslu starfshóps frá febrúar 2016 um löggjöf um sjálfstætt rekna grunnskóla og tillögur um lagabreytingar. Það er á ábyrgð starfshópsins að samráð verði við hagsmunaaðila. |
| Starfshópur um heildarstefnumótun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. | Starfshópnum er ætlað að vinna að kortlagningu og gagnaöflun um stöðu þessara nemenda í leik-, grunn,- og framhaldsskólum og skoða viðeigandi lagaramma hér á landi, áætlanir svo og aðrar stefnur svo sem framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, þingsályktun um íslenska tungu og íslenska málstefnu og ályktanir íslenskrar málnefndar. Þá er hópnum einnig ætlað að skoða lagaramma og helstu stefnuskjöl í málaflokknum í nágrannalöndum, skoða alþjóðlegar skuldbindingar sem snerta þennan nemendahóp, t.d. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, skoða niðurstöður innlendra og erlendra rannsókna og láta kanna og greina viðhorf nemenda af erlendum uppruna og foreldra þeirra og starfsfólks skóla og skólaþjónustu til skólagöngu þessa nemendahóps. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn vinni drög að stefnu í málaflokknum (hvítbók), sem tekur mið af fjölbreyttum hópi nemenda frá ólíkum menningarheimum, og þar sem fram koma tillögur að áherslum og leiðir til úrbóta. Drögin verða kynnt ráðherra til ákvörðunar um næstu skref. |
| Starfshópur um húsnæði Menntaskólans í Reykjavík. | Hlutverk að aðstoða Framkvæmdasýslu ríkisins við þarfagreiningu húsnæðis fyrir Menntaskólann í Reykjavík út frá framtíðarþróun skólans. Þarfagreining skal vera tilbúin fyrir 4. febrúar 2019. Þá verður starfshópurinn einnig Framkvæmdasýslu ríkisins innan handar við gerð frumathugunar. |
| Starfshópur um kynningarmiðstöð listgreina. | Starfshópur sem falið var að gera tillögur að stofnun kynningarmiðstöðvar listgreina. Skilaði skýrslu til ráðherra um Miðstöð menningarmála og hefur lokið störfum. |
| Starfshópur um lánakjör Lánasjóðs íslenskra námsmanna. | Starfshópnum er ætlað að fara yfir lánakjör Lánasjóðs íslenskra námsmanna, skoða hvernig fjármögnun skuli háttað við mögulegt breytt námslánakerfi á Íslandi og gera tillögur til ráðherra um tiltækar aðgerðir. |
| Starfshópur um málstefnu um íslenskt táknmál. | Starfshópur til þess að vinna að málstefnu um íslenskt táknmál. Málstefnan er unnin samkvæmt þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi nr. 36/149, sem samþykkt var á Alþingi 2019. |
| Starfshópur um nýtingu Lækningaminjahúss og Nesstofu undir Náttúruminjasafn. | Starfshópur sem á að meta húsnæði á Seltjarnarnesi með tilliti til framtíðarhöfuðstöðva Náttúruminjasafns og kostnað sem fylgir kaupum og að ljúka byggingu á húsnæði Lækningaminjasafnsins við Safnatröð og á Nesstofu. Starfshópurinn er enn að störfum. |
| Starfshópur um samræmd könnunarpróf. | Að vinna tillögu að framtíðarstefnu um markmið, hlutverk, framkvæmd og fyrirkomulag samræmdra könnunarprófa. Hópurinn skal m.a. skoða lagaramma um samræmt námsmat hér á landi og þróun þess frá 2008. Jafnframt skal hópurinn greina með hvaða hætti staðið er að samræmdu námsmati í skólakerfum nágrannalanda. |
| Starfshópur um starfsmenntanám Landbúnaðarháskóla Íslands. | Að skapa nauðsynlegar faglegar og fjárhagslegar forsendur til eflingar starfsmenntabrauta Landbúnaðarháskóla Íslands til að mæta núverandi og fyrirséðri aukinni eftirspurn atvinnulífsins eftir menntuðu starfsfólki. |
| Starfshópur um stefnu í kvikmyndamálum. | Starfshópur til að vinna að gerð stefnu í kvikmyndamálum sem gilda á frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2030. Verður það í fyrsta sinn sem stjórnvöld móta heildstæða stefnu og aðgerðaáætlun á grunni hennar, sem nær yfir hlut kvikmynda í menningu þjóðarinnar, menntun í kvikmyndagerð á öllum skólastigum, miðlun íslensks kvikmyndaefnis og stuðning við framleiðslu kvikmynda. |
| Starfshópur um styrkingu leikskólastigsins. | Hópnum er gert að vinna skýrslu þar sem fram koma leiðir til styrkingar leikskólastigsins og fjölgunar leikskólakennurum. Hópurinn skal m.a. greina og vinna úr niðurstöðum „Talis Starting Strong“, tillögum í skýrslu samstarfsráðs um starfsþróun kennara og skólastjórnenda frá október 2019 og skýrslunni „Menntun til framtíðar – Aðgerðir og viðbrögð í kjölfar fundaraðar um menntun fyrir alla og mótun menntastefnu til 2030“, sem snúa að leikskólastiginu. Hópurinn taki einnig mið af aðgerðum í nýliðun kennara, svo sem átaksverkefninu „Fjölgum kennurum“ og öðrum verkefnum sem starfshópurinn metur að komi að gagni við vinnu hópsins. Hópurinn hafi víðtækt samráð við hagsmunaaðila, þ.m.t. kennararáð sem skipað hefur verið samkvæmt lögum nr. 95/2019, um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla. |
| Starfshópur um stöðu vitsmunaþroskaprófa á Íslandi. | Að fara yfir stöðu vitsmunaþroskaprófa á Íslandi og koma fram með tillögur til úrbóta í málaflokknum. |
| Starfshópur um varðveislu fleiri handrita á Íslandi. | Starfshópnum er ætlað að gera tillögur til ríkisstjórnar um hvernig staðið verði að viðræðum við Dani um möguleika á að fleiri handrit verði varðveitt á Íslandi. |
| Starfshópur um þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringi í byggingarlist. | Starfshópur til þess að til að undirbúa mögulega þátttöku Íslands í Feneyjatvíæringnum í byggingarlist sem haldinn verður 2020. Enn að störfum. |
| Starfshópur vegna 200 ára afmælis Jóns Árnasonar. | Starfshópur til þess að koma með tillögur að afmælishátíð vegna tveggja alda afmælis Jóns Árnasonar landsbókavarðar og þjóðsagnasafnara árið 2019. Starfshópurinn skilaði tillögum 27. febrúar 2019. Verkefni lokið með greinargerð. |
| Stjórn Stofnunar Gunnars Gunnarssonar 2018–2020. | Stjórn Stofnunar Gunnars Gunnarssonar að Skriðuklaustri skipuð skv. 4. gr. skipulagsskrár fyrir Stofnun Gunnars Gunnarssonar á Skriðuklaustri undirrituð 18. maí 2007. Stjórn ber að vinna að markmiðum stofnunarinnar sem er m.a. að vinna að uppbyggingu og rekstri menningar- og fræðaseturs að Skriðuklaustri í Fljótsdal. |
| Stýrihópur til að fylgja eftir úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi. | Stýrihópurinn skilaði fyrstu tillögum sínum til ráðuneytisins í formi aðgerðaáætlunar 30. júní 2017. Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn vinni að því að koma aðgerðunum í framkvæmd og tryggi samhæfingu þeirra til lengri og skemmri tíma til að festa í sessi farsæla framkvæmd menntunar án aðgreiningar hér á landi. Stýrihópurinn skal sérstaklega vinna að útfærslu á samstilltum aðgerðum til að vinna að þeim þremur mikilvægu og nátengdu lyftistöngum sem úttektaraðilar telja að sé nauðsynlegur grundvöllur fyrir þróunarstarf í skólakerfinu. |
| Stýrihópur vegna samnings við Almannaróm. | Í ágúst 2018 var undirritaður samningur til fimm ára við sjálfseignarstofnunina Almannaróm sem sjá mun um rekstur miðstöðvar máltækniáætlunar fyrir íslensku. Á vettvangi Almannaróms sameinast háskólar, stofnanir, fyrirtæki og félög um það markmið að tryggja að íslenska standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum með því að skapa og þróa íslensk máltæknitól. Mælikvarðar á framkvæmd samnings eru þeir helstir að byggðir verði opnir innviðir, gagnasöfn og grunnverkfæri í máltækni til að hægt verði að nota íslensku í tækja- og í hugbúnaði stærstu tæknifyrirtækja heims. Framkvæmdin byggir á verkáætluninni Máltækni fyrir íslensku 2019–2022 og skýrslu starfshóps um stöðu og framtíð menntunar á sviði máltækni. Samkvæmt samningnum á Almannarómur að skila ráðuneytinu fyrir lok mars ár hvert ársáætlun um rekstur og starfsáætlun yfirstandandi árs þar sem komi m.a. fram áætlun um ráðstöfun framlagsins og helstu markmið sem unnið verður að. Einnig á Almannarómur að skila ráðuneytinu endurskoðuðum ársreikningi ársins á undan með skýringum fyrir lok júní ár hvert og skal afrit jafnframt sent Ríkisendurskoðun. Í 6. gr. samningsins er fjallað um upplýsingar, samskipti og eftirlit vegna verkefna og þar segir svo: Samningsaðilar skulu tilnefna einstaklinga í stýrihóp sem funda skal a.m.k. tvisvar á ári um framvindu verkefnisins. |
| Tónmenntasjóður kirkjunnar 2017–2020. | Stjórn Tónmenntasjóðs kirkjunnar er skipuð skv. 3. gr. skipulagsskrár nr. 235/1974, um Tónmenntasjóð kirkjunnar. Tilgangur sjóðsins er að efla kirkjulega tónlist og textagerð við slíka tónlist. |
| Verkefnastjórn starfshóps um heildarstefnumótun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. | Að fara með yfirstjórn verkefna starfshóps um heildarstefnumótun fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. |
| Verkefnastjórn um endurskoðun á lögum nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna. | Nefndinni er ætlað að skoða námslánakerfið í heild sinni á Íslandi og gera tillögur um hvernig sé hægt að bregðast við þeim áskorunum sem fyrir liggja. |
| Verkefnastjórn vegna aðgerða í menntamálum. | – Að hafa yfirumsjón með og bera ábyrgð á verkefni um nýliðun kennara. – Að fara yfir og leggja mat á tillögur að aðgerðum til að efla nýliðun kennara eftir að þær hafa verið rýndar og kostnaðar- og áhættumetnar. – Að eiga samstarf við samstarfsráð um starfsþróun kennara og skólastjórnendur um tillögur að aðgerðum til að efla nýliðun. – Að skila aðgerðaáætlun til yfirstjórnar vegna aðgerða um menntamál |
| Verkefnishópur um úrbætur í menntun, hæfingu, atvinnu og tómstundum fyrir nemendur sem lokið hafa námi á starfsbrautum framhaldsskóla. | Verkefnishópnum er ætlað að afla gagna, leggja mat á þörf fyrir úrræði til úrbóta og gera tillögur til ráðherra. |
| Íslenska UNESCO-nefndin 2019–2022. | Íslenska UNESCO-nefndin starfar skv. 5. gr. reglna nr. 151/2003. Hlutverk nefndarinnar er að vera ríkisstjórn og sendinefnd Íslands til ráðgjafar í málum er varða UNESCO á aðalráðstefnu UNESCO. |
| Íslenska vatnafræðinefndin 2018–2022. | Hlutverk Íslensku vatnafræðinefndarinnar er að fara með alþjóðasamstarf á sviði vatnafræði innan vébanda Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO. |
| Útflutningssjóður íslenskra tónlistar 2019–2020. | Stjórn útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar starfar skv. 4. gr. reglna um sjóðinn frá 5. febrúar 2013. Hlutverk útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni til stærri áheyrendahóps, á stærri markaði og auka möguleika þess á velgengni utan Íslands. |
| Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar 2018–2019. | Stjórn útflutningssjóðs íslenskrar tónlistar, skipuð skv. 4. gr. reglna um sjóðinn frá 5. febrúar 2013. Hlutverk útflutningssjóðsins er að styrkja íslenskt tónlistarfólk við að koma tónlist sinni til stærri áheyrendahóps, á stærri markaði og auka möguleika þess á velgengni utan Íslands. |
| Þjóðbúningaráð 2018–2020. | Þjóðbúningaráð er skipað með vísun til þingsályktunar um stofnun þjóðbúningaráðs, sem Alþingi samþykkti 10. mars 1999. Hlutverk ráðsins er að varðveita þekkingu á íslensku búningum og gerð þeirra. |
| Stjórn þjóðhátíðargjafar Norðmanna – 2019–2023. | Í tilefni af ellefu alda afmæli Íslandsbyggðar árið 1974 færði Stórþingið í Noregi Íslendingum að gjöf eina milljón norskra króna í ferðasjóð. Sjóðurinn er starfræktur samkvæmt skipulagsskrá nr. 279/1975, með síðari breytingum, nú síðast nr. 988/2009. Skv. 7. gr. skipulagsskrárinnar er sjóðnum stýrt af þriggja manna stjórn. |
| Stjórn Innviðasjóðs 2019–2022. | Að styðja við uppbyggingu rannsóknarinnviða á Íslandi. Við úthlutun eru höfð til hliðsjónar viðmið og áherslur sem birtast í stefnu Vísinda- og tækniráðs um rannsóknarinnviði hverju sinni. |
| Úthlutunarnefnd fyrir styrki Snorra Sturlusonar 2019–2022. | Að úthluta styrkjum til erlendra rithöfunda, þýðenda og fræðimanna til að dveljast á Íslandi í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. |