Ferill 541. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1020 — 541. mál.
Svar
félags- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Eydísi Blöndal um fæðingarstyrk til foreldra í fullu námi.
1. Út frá hvaða forsendum er fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi reiknaður, sbr. 3. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000?
Fyrir gildistöku laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, byggðist réttur foreldra í fullu námi til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði á þágildandi lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, og 25. gr. þágildandi reglugerðar nr. 296/1998, um greiðslur í fæðingarorlofi. Í 25. gr. fyrrnefndrar reglugerðar var meðal annars kveðið á um að foreldri sem stundað hefði nám á síðastliðnum tólf mánuðum fyrir töku fæðingarorlofs skyldi fá námið metið til dagvinnustunda og fullt nám teldist jafngilda fullu starfshlutfalli. Samkvæmt lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, með síðari breytingum, telst fullt nám foreldra á tilteknu tímabili einnig jafngilda fullu starfshlutfalli.
Við gildistöku laga um fæðingar- og foreldraorlof var gerð sú breyting að greiðslur til foreldra á vinnumarkaði taka mið af meðaltali heildarlauna á ákveðnu tímabili en á þeim greiðslum er síðan tiltekið hámark. Einnig er tekjulágum foreldrum á vinnumarkaði tryggð lágmarksgreiðsla í samræmi við starfshlutfall þeirra en annars vegar er miðað við 25–49% starfshlutfall og hins vegar við 50–100% starfshlutfall. Þá eiga foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli og foreldrar í fullu námi rétt á fæðingarstyrk. Í ljósi þess að fullt nám foreldra á tilteknu tímabili er talið jafngilda fullu starfshlutfalli, sbr. framangreint, hefur fjárhæð fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi og lágmarksgreiðsla til foreldra í 50–100% starfshlutfalli haldist í hendur eftir gildistöku laga um fæðingar- og foreldraorlof.
Í 5. mgr. 19. gr. laga um fæðingar- og foreldraorlof er meðal annars kveðið á um að fjárhæð fæðingarstyrks komi til endurskoðunar við afgreiðslu fjárlaga ár hvert með tilliti til þróunar launa, verðlags og efnahagsmála. Jafnframt kemur fram að ráðherra sé þó heimilt, að fengnu samþykki ríkisstjórnar, að breyta styrkfjárhæðinni til hækkunar ef verulegar breytingar verða á launaþróun og þjóðhagsforsendum frá afgreiðslu fjárlaga. Þegar áðurgreind skilyrði leiða til hækkunar á fjárhæð fæðingarstyrks skal ráðherra breyta fjárhæðinni í reglugerð.
Fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi samkvæmt lögunum hefur í samræmi við framangreint hækkað ár hvert, nú síðast með reglugerð nr. 1238/2019 um breytingu á reglugerð nr. 1218/2008, um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks. Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárhæðir fæðingarstyrks frá árinu 2001 til foreldra í fullu námi samkvæmt lögunum.
| Fæðingarstyrkur til foreldra í fullu námi. |
|||
| Fæðingarár | Styrkfjárhæð | Fæðingarár | Styrkfjárhæð |
| 2001 | 79.077 | 2011 | 127.437 |
| 2002 | 85.798 | 2012 | 131.578 |
| 2003 | 88.544 | 2013 | 135.525 |
| 2004 | 91.200 | 2014 | 139.591 |
| 2005 | 93.113 | 2015 | 153.131 |
| 2006 | 95.441 | 2016** | 153.131/164.003 |
| 2007 | 98.209 | 2017 | 164.003 |
| 2008 | 103.869 | 2018 | 171.711 |
| 2009 | 113.902 | 2019 | 177.893 |
| 2010* | 113.902/123.128 | 2020 | 184.119 |
| * Styrkfjárhæðin hækkaði 1. júní 2010. | |||
| ** Styrkfjárhæðin hækkaði 15. október 2016. | |||
2. Stendur til að breyta þeirri fjárhæð umfram það sem fram kemur í 5. mgr. 19. gr. laganna?
Í tilefni af því að árið 2020 verða tuttugu ár liðin frá gildistöku laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, hefur félags- og barnamálaráðherra skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða lögin í heild sinni og vinna frumvarp í því sambandi. Gert er ráð fyrir að vinnu nefndarinnar ljúki á haustmánuðum árið 2020 þannig að unnt verði að leggja fram frumvarp á haustþingi sama ár. Ætla má að eitt af því sem komi til umræðu í vinnu hópsins sé hvort breyta beri þeim forsendum sem í gildi eru varðandi útreikning á fjárhæð fæðingarstyrks til foreldra í fullu námi samkvæmt lögum um fæðingar- og foreldraorlof.