Ferill 636. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1074  —  636. mál.




Fyrirspurn


til félags- og barnamálaráðherra um þá sem búa ekki í húsnæði skráðu í fasteignaskrá.

Frá Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margir búa í húsnæði sem ekki er skráð í fasteignaskrá?
     2.      Hvaða úrræða telur ráðherra rétt að leita til að tryggja að fyrrgreindur hópur eigi kost á viðunandi húsnæði?


Skriflegt svar óskast.