Ferill 593. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1248 — 593. mál.
Svar
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra við fyrirspurn frá Birni Leví Gunnarssyni um vegtegundir.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er raunveruleg vegtegund allra vega í vegaskrá og hvaða vegtegund er æskileg fyrir hvern vegkafla, þegar aðeins er miðað við almenna umferðarspá?
Þjóðvegakerfið hér á landi er 12.900 km langt. Það hefur verið byggt upp á mörgum áratugum. Gerðar hafa verið lagfæringar og vegir byggðir upp og endurbyggðir með hliðsjón af umferð og aðstæðum, þ.m.t. tegund umferðar.
Í vegaskrá kemur fram hvaða vegtegund er æskileg fyrir hvern vegkafla, þegar miðað er við almenna umferðarspá tuttugu ár fram í tímann. Finna má vegaskrá á vef Vegagerðarinnar: www.vegagerdin.is/vegakerfid/vegaskra/. Vegtegund sem gefin er upp í vegaskrá er sú vegtegund sem skal nota fyrir tiltekinn veg þegar hann er endurbyggður sem hluti af nýframkvæmd eða verulegar lagfæringar eru gerðar á honum í viðhaldi.
Sem dæmi má nefna að í vegaskrá er gert er ráð fyrir að á kaflanum á Hringvegi frá Skeiðavegi í Borgarnes verði vegtegund valin með aðskilnaði akstursstefna. Á þessum 130 km langa kafla er nú aðskilnaður akstursstefna á um 36 km. Í tillögu að samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 er gert ráð fyrir að farið verði í framkvæmdir á þessum vegkafla og akstursstefnur skildar að.
Önnur dæmi mætti nefna, t.d. um bundið slitlag á vegum. Í veghönnunarreglum er gert ráð fyrir að bundið slitlag sé á öllum vegum, nema þeim sem falla undir vegtegund D og F. Samkvæmt þessu gera reglurnar ráð fyrir bundnu slitlagi á öllum stofnvegum utan hálendis eða á 4.443 km. Enn eru þó um 423 km án bundins slitlags. Í tillögu að samgönguáætlun fyrir árin 2020–2034 er áhersla lögð á lagningu bundins slitlags á stofnvegi. Miðað er við að árið 2024 verði lengd óbundins slitlags á stofnvegum í grunnneti utan hálendis komið niður í 285 km. Á sama tíma verði allir byggðarkjarnar landsins með fleiri en 100 íbúa tengdir vegum með bundnu slitlagi. Á tveimur seinni tímabilum áætlunarinnar er lagt til að haldið verði áfram átaki við lagningu bundins slitlags á stofnvegi og þeir færðir að því leyti til samræmis við hönnunarreglur. Miðað við þau uppbyggingaráform sem tillaga að samgönguáætlun 2020–2034 leggur til má gera ráð fyrir að árið 2034 verði lengd óbundins slitlags á stofnvegum komið niður í 80–100 km. Markmiðið er meðal annars að auka umferðaröryggi á vegunum.
Lengd tengivega sem eru ekki í vegflokki D eða F og ættu samkvæmt hönnunarreglum að vera með bundnu slitlagi er 3.073 km. Núna er bundið slitlag á 1.137 km af þessum tengivegum. Samkvæmt tillögu að samgönguáætlun 2020–2034 er gert ráð fyrir átaki í uppbyggingu tengivega og á fyrsta tímabili áætlunarinnar verði lagt bundið slitlag á 130 km af tengivegum. Á tveimur síðari tímabilum áætlunarinnar verði svo settur enn aukinn kraftur í uppbyggingu tengivega og framlög aukin um 40–50%. Til viðbótar gerir áætlunin ráð fyrir uppbyggingu Vatnsnesvegar, en hann flokkast sem tengivegur. Með honum einum bætast 60 km af bundnu slitlagi við á tengivegi.
Í vegaskrá eru skráðir um 4.500 vegkaflar. Til þess að tiltekinn vegkafli uppfylli kröfur viðkomandi vegtegundar þarf hann að uppfylla fjölmörg atriði eins og um breidd vegar og brúa á vegkaflanum, tegund vegamóta, fjarlægð milli vegamóta og um gerð slitlags. Það kostar mikla vinnu að halda utan um mismun á því hvernig hver tiltekinn vegkafli á að vera samkvæmt vegaskrá og hvernig hann raunverulega er í vegakerfi. Ekki hefur verið ráðist í þá vinnu og liggja því þessar upplýsingar ekki fyrir.